Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 20. mars 2026 og hófst hann kl. 12:30
Nefndarmenn
- Gunnþórunn Bender (GB) aðalmaður
- Jóhann Örn Hreiðarsson (JÖH) aðalmaður
- Petrína Sigrún Helgadóttir (PSH) aðalmaður
- Sandra Líf Pálsdóttir (SLP) aðalmaður
- Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) formaður
Starfsmenn
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri
- Magnús Arnar Sveinbjörnsson (MAS) sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Fundargerð ritaði
- Magnús A. Sveinbjörnsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Almenn erindi
1. Stjórnskipulag í skólum Vesturbyggðar
Breytingar á stjórnskipulagi grunnskóla og leikskóla Vesturbyggðar
Lagðar eru fram til samþykktar breytingar á stjórnskipulagi leik- og grunnskóla í Vesturbyggð.
Samkvæmt hinu nýja skipulagi verður ráðinn skólastjóri grunnskóla Vesturbyggðar sem fer með faglega forystu og samræmingu grunnskólastarfs í sveitarfélaginu. Við hverja starfsstöð grunnskóla verður deildarstjóri sem ber ábyrgð á daglegri stjórnun og rekstri skólastarfs á viðkomandi stað. Þá verður ráðinn leikskólastjóri Vesturbyggðar með starfsstöð á Arakletti, sem ber ábyrgð á daglegum rekstri þar og sinnir auk þess faglegum stuðningi og samræmingu gagnvart öðrum leikskóladeildum sveitarfélagsins.
Skipulagsbreytingarnar fela ekki í sér sameiningu skóla sveitarfélagsins, heldur breytingu á stjórnun skólastarfs með það að markmiði að styrkja faglega forystu, bæta samræmingu og efla samstarf milli starfsstöðva.
Með þessari skipan er gert ráð fyrir að sérstaða hverrar starfsstöðvar, tengsl við nærsamfélag og staðbundin ábyrgð haldist, um leið og stoðir skólastarfs í sveitarfélaginu eru efldar. Gert er ráð fyrir að innleiðingu skipulagsins verði fylgt markvisst eftir og hún rýnd með reglubundnum hætti.
2. Skóladagatöl grunn- og leikskóla Vesturbyggðar 2026-2027
Skóladagatöl næsta vetrar lögð fram til samþykktar.
Jónína Helga Sigurðardóttir Berg, skólastjóri Patreksskóla, Lilja Rut Rúnarsdóttir, skólastjóri Bíldudalsskóla og Ingibjörg Harldsdóttir, staðgengill leikskólastjóra á Arakletti tóku sæti undir þessum lið og kynntu dagatöl næsta árs.
3. Niðurstöður stefnumótunar - tækifæri til eflingar íþróttastarfs innan HHF
Lagt fram til kynningar skýrsla sem unnin var í kjölfar stefnumótunarfundar með aðildarfélögum Héraðssambands Hrafna-Flóka (HHF) sem haldinn var 12. febrúar síðastliðinn
Birna Hannesdóttir formaður HHF tók sæti undir þessum lið og kynnti skýrslu um stefnumótun íþróttahéraða á Vestfjörðum. Fjölskylduráð þakkar Birnu fyrir góða kynningu.
Fjölskylduráð Vesturbyggðar fagnar framkominni stefnumótun um íþróttastarf á Vestfjörðum og þeirri áherslu sem þar kemur fram um mikilvægi aðgengis barna og ungmenna að skipulögðu íþrótta- og frístundastarfi.
Fjölskylduráð telur afar mikilvægt að börn og ungmenni fái tækifæri til þátttöku í uppbyggilegu starfi enda hefur slíkt starf jákvæð áhrif á heilsu, vellíðan, félagsþroska og virkni í samfélaginu. Ráðið vill því hvetja börn og fjölskyldur þeirra til þátttöku í skipulögðu starfi eftir því sem kostur er.
Jafnframt bendir fjölskylduráð á að Vesturbyggð veitir frístundarstyrki til að styðja við þátttöku barna í íþrótta- og frístundastarfi og hvetur fjölskyldur til að nýta þann stuðning.
4. Framkvæmdir á Vatneyrarvelli
Umræða um fyrirhugaðar framkvæmdir á Vatneyrarvelli á árinu.
Rætt um fyrirhugaðar úrbætur á Vatneyrarvelli.
5. Hjúkrunarrými á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða Patreksfirði
Staða ferlis við hönnun og byggingu hjúkrunarrýma á Patreksfirði.
Gerður B. Sveinsdóttir bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu á vinnu við fyrirhuguð hjúkrunarrými á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Patreksfirði. Hönnunin er á lokametrunum og þegar hún liggur fyrir verður verkið boðið út.
6. Gjaldfrjáls aðgangur barna og ungmenna í sundlaugar Vesturbyggðar
Börn og ungmenni að 18 ára aldri fá frítt í sund í nýrri gjaldskrá íþróttamiðstöðva Vesturbyggðar.
Fjölskylduráð vekur athygli á að börn og ungmenni að 18 ára aldri fá frítt í sund samkvæmt nýrri gjaldskrá íþróttamiðstöðva Vesturbyggðar. Með því eykst aðgengi barna og ungmenna að hreyfingu og uppbyggilegri tómstundaiðkun. Sundlaugin er einnig mikilvægur vettvangur fyrir samveru fjölskyldna og hreyfingu án snjalltækja.
Til kynningar
7. Breyting á verklagi vegna brottfalls laga um Heyrnar- og talmeinastöð
Lagt fram til kynningar tölvupóstur frá Heilbrigðisráðuneytinu með breytingu á verklagi vegna brottfalls laga um Heyrnar- og talmeinastöð
Þar sem Heyrnar- og talmeinastöð verður lögð niður munu sveitarfélög þurfa sjálf að sinna því hlutverki að panta raddverndandi búnað sem tengist heyrnartækjum. Heilbrigðisþjónusta sem miðstöðin hefur veitt færist til Heilsugæslu höfuðbrogarsvæðisins.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:30