Hoppa yfir valmynd

Fjölskylduráð #17

Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 10. apríl 2026 og hófst hann kl. 13:00

Nefndarmenn
  • Gunnþórunn Bender (GB) aðalmaður
  • Jóhann Örn Hreiðarsson (JÖH) aðalmaður
  • Freyja Ragnarsdóttir Pedersen (FRP) varamaður
  • Sandra Líf Pálsdóttir (SLP) aðalmaður
  • Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) formaður
Starfsmenn
  • Magnús Arnar Sveinbjörnsson (MAS) ritari

Fundargerð ritaði
  • Magnús A. Sveinbjörnsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs

Almenn erindi

1. Skólareglur grunnskóla

Umræða um breytingar á skólareglum sem snúa að viðbrögðum við agabrotum.

Unnar hafa verið breytingar á orðalagi skólareglna til að einfalda og skýra hvernig brugðist skuli við agabrotum. Reglurnar eru liður í því að samræma innra starf grunnskólanna þriggja og taka mið af gildum Heillaspora sem eru í innleiðingu í skólastarfi Vesturbyggðar. Breytingarnar styðja við það að allt starfsfólk vinni með sama hætti í skólunum. Reglurnar verða kynntar foreldrum og nemendum á næstu vikum.
Fjölskylduráð fagnar fram komnum reglum.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Símanotkun í skólum

Umræða um stöðuna á samræmdum reglum um símanotkun í skólum Vesturbyggðar.

Í dag eru skólarnir allir símalausir en unnið er að því að skýra betur hvað felst í því sem og að samræma reglur milli skólanna. Jafnframt skýra hvort og í hvers konar tilvikum heimilt sé að leyfa nemendum notkun síma. R

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Viðmið um skólasókn

Umræða um viðbrögð við ófullnægjandi skólasókn í grunnskólum.

Þörf er fyrir ný viðmið varðandi viðbrögð við ófullnægjandi skólasókn. Fjölskylduráð felur sviðsstjóra að vinna málið áfram í samstarfi við skólastjóra grunnskólanna.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Breytingar á starfsdögum vegna Menntaþings

Umræður um breytingar á starfsdögum í vor til að starfsfólk skóla eigi kost á að sækja Menntaþing 8. júní.

Menntaþing verður haldið á Ísafirði 8. júní næstkomandi. Til þess að starfsfólk leikskóla og leikskóladeilda eigi kost á að sækja þingið er lagt til að starfsdagur sem fyrirhugaður var 24. apríl verði færður.
Fjölskylduráð samþykkir breytinguna.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:00