Hoppa yfir valmynd

Fjölskylduráð #18

Fundur haldinn í ráðhúsi Vesturbyggðar, 4. maí 2026 og hófst hann kl. 12:00

Nefndarmenn
  • Gunnþórunn Bender (GB) aðalmaður
  • Jóhann Örn Hreiðarsson (JÖH) aðalmaður
  • Petrína Sigrún Helgadóttir (PSH) aðalmaður
  • Sandra Líf Pálsdóttir (SLP) aðalmaður
  • Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) formaður
Starfsmenn
  • Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri

Fundargerð ritaði
  • Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri

Almenn erindi

1. Starf eldri borgara á Bíldudal

Rætt um húsnæðismál eldri borgara á Bíldudal og starfið næsta vetur.

Eldri borgarar á Bíldudal hafa líst yfir áhuga á því að nýta húsnæði þar sem leikskólinn Tjarnarbrekka er með starfsemi sína í dag. Möguleiki er á því að eldri borgara starf á Bíldudal fara fram í því húsnæði án þess að farið verði miklar framkvæmdir á húsnæðinu þegar leikskólinn flytur í nýtt húsnæði.

Fjölskylduráð leggur til við bæjarráð að eldri borgarar fái húsnæðið til afnota þegar það losnar.
Bæjarstjóra falið að fylgja málinu eftir.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Skóladagatal Tónlistarskóla Vesturbyggðar 2026-2027

Skóladagatal Tónlistarskóla Vesturbyggðar 2026 - 2027 lagt fram til samþykktar.

Kristín Mjöll Jakobsdóttir, skólastjóri Tónlistarskóla Vesturbyggðar kynnir skóladagatal næsta vetrar.

Fjölskylduráð samþykkir skóladagatal Tónlistarskóla Vesturbyggðar fyrir skólaárið 2026-2027.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Sumarfrístund

Rætt um sumarfrístund fyrir börn í 1. - 4. bekk.

Skólastjóri Patreksskóla sat fundinn undir liðnum.

Boðið verður uppá sumarfrístund á Patreksfirði fyrir öll börn í sveitarfélaginu í 1. 4. bekk frá og með 9. júní til og með 3. júlí og frá 4. ágúst til og með 19. ágúst. Opið er frá kl. 8:00-16:00 mánudaga til fimmtudaga og frá kl. 8:00 - 14:00 á föstudögum.
Hægt er að velja staka daga sem og heilan eða hálfan dag, þá frá 8:00-12:00 eða 12:00-16:00, mánudag til fimmtudags. Eyðublöð verða aðgengileg inni á íbúagáttinni

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

4. Vinnuskóli 2026

Rætt um vinnuskólann í sumar.

Bæjarstjóri fór yfir umsóknir um stöður flokkstjóra og yfirflokkstjóra í vinnuskóla í sumar. Enn eru lausar stöður sem á eftir að manna svo hægt sé að auglýsa vinnuskólann í sumar. Stöðurnar verða auglýstar að nýju á heimasíðu Vesturbyggðar og umsóknarfrestur framlengdur.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:15