Hoppa yfir valmynd

Fjölskylduráð #19

Fundur haldinn í ráðhúsi Vesturbyggðar, 2. september 2026 og hófst hann kl. 13:00

Fundinn sátu
  • Gunnþórunn Bender (GB) formaður
  • Jóhann Örn Hreiðarsson (JÖH) aðalmaður
Fundargerð ritaði
  • Anna Vilborg Rúnarsdóttir Sviðsstjóri Fjölskyldusviðs

Formaður setti fund og kannaði hvort athugasemndir væru við fundarboðið. Svo var ekki og formaður lýsti fundinn lögmætan. Silja Baldvinsdóttir boðaði forföll og Egill Níelsson varamaður sat fundinn í hennar stað. Edda Bára Árnadóttir boðaði forföll og sat Jónas Snæbjörnsson varamaður sat fundinn í hans stað.

Almenn erindi

1. Stjórnskipulag í skólum Vesturbyggðar

Farið yfir stöðu mála í tengslum mönnun skólanna.

Sviðstjóri upplýsti um mönnunarstöðuna í skólum Vesturbyggðar. Almennar umræður um stjórnskipulagið. Almennar umræður.

Málsnúmer6

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Skóladagatöl grunn- og leikskóla Vesturbyggðar 2026-2027

Breyting á skóladagatali.

Grunnskóladagatal var með einu degi ofaukið lagt til að skólaslit verði ekki 8.júní heldur 7.júní.

Leikskóladagatal.
Foreldraviðtöl sett í október. Skráningardagar voru 15 enn verða 14 þar sem 15.dagurinn var á sunnudegi.
Samkvæmt leiksskólareglum ætti sumarfríið 2027 að vera frá miðjum júlí til miðjan ágúst. Sviðstjóra falið að ræða við leiksskólastjóra og stjórnendur í Tálknafirði, Bíldudal og Patreksfjörðsem hafa leiksskóladeildir innanhúss og samræma.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Frístund opnunartíma 2026

Tillaga til fjölskylduráðs um opnunartíma grunnskóla Vesturbyggðar verði til 14:00 á föstudögum.
Samþykkt tillaga að opnunartími frístunda við grunnskóla Vesturbyggðar verði til 14:00 á föstudögum. Fjölskylduráð ítrekar að ef barn hefur vegna fötlunar, stuðningsþarfa eða annarra sérstækra aðstæðna þörf fyrir þjónustu eftir klukkan 14:00 á föstudögum þarf að tryggja aðstæður þess sérstaklega.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

4. Samantekt um stöðu innleiðingar farsældar á Vestfjörðum

Lagður fram tölvupóstur frá Vestfjarðarstofu með samantekt um stöðu innleiðingar farsældarlaganna á Vestfjörðum.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


5. Samstarf Vinnumálastofnunar og sveitarfélaga í málefnum innflytjenda og flóttafólks

Lagður fram tölvupóstur frá 10.08.2026 frá Vinnumálastofnun þar sem kynnt er samstarf Vinnumálastofnunar og sveitarfélaga í málefnum innflytjenda og flóttafólks

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:00