Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 7. október 2026 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu
- Edda Bára Árnadóttir (EBA) aðalmaður
- Gunnþórunn Bender (GB) formaður
- Jóhann Örn Hreiðarsson (JÖH) aðalmaður
- Egill Níelsson (EN) varamaður
- Thelma Dögg Theodórsdóttir (TDT) aðalmaður
Fundargerð ritaði
- Anna Vilborg Rúnarsdóttir Sviðsstjóri Fjölskyldusviðs
Almenn erindi
1. Reglur um ungmennráð
Lagðar fram tillögur að breytingum á reglum Ungmennaráðs.
Maggý Hjördís Keransdóttir Tómstundarfulltrúi fór yfir tillöguna um breytingar á reglum ungmennaráðs sem snýr að því að samræma orðalag og hverjir eru tengiliðir ráðsins. Fjölskylduráð samþykkir breytingarnar og felur Tómstundafulltrúa og Sviðsstjóra að klára lagfæringar og birta.
2. Akstursstyrkur
Lagt fram minnisblað tómstundafulltrúa um tillögu að akstursstyrk fyrir börn og ungmenni í Vesturbyggð til að auðvelda þeim að sækja skipulagt félags- og tómstundastarf óháð búsetu.
Maggý Hjördís Keransdóttir Tómstundafulltrúi fór yfir samgöngur í frístundastarfi í Vesturbyggð. Fjölskylduráð leggur til að bæjarráð taki til umræðu hvort Vesturbyggð komi á akstursstyrk fyrir foreldra og forráðamenn barna og ungmenna sem þurfa að aka milli byggðakjarna eða úr dreifbýli vegna þátttöku barna sinna í skipulögðu frístundastarfi, þar sem ekki eru í boði almenningssamgöngur eða áætlunarbílar milli
byggðakjarna sem gera börnum kleift að sækja slíkt starf.
Fjölskylduráð hvetur bæjarráð að finna leiðir til að koma til móts við fjölskyldur vegna
þess aksturs sem fylgir þátttöku barna og ungmenna í skipulögðu frístundastarfi.
3. Skráningardagar
Lögð fyrir tillaga um breytingar á skráningardögum.
Ingibjörg Lilja Kristjánsdóttir Leiksskólastjóri Arakletts fór yfir tillöguna um lokun leiksskóla eftir klukkan 14:00 á föstudögun og breytingar á skráningardögum. Fjölskylduráð samþykkir að lengd viðvera eftir klukkan 14:00 á föstudögum verði felld niður frá og með 1.nóvember. Hins vegar var tekin ákvörðun að heildarendurskoða að skráningardagar verði endurmetin á nýju ári. Sviðsstjóra falið að hefja könnun á nýtingu daganna.
4. Skóladagatöl grunn- og leikskóla Vesturbyggðar 2026-2027
Lagt er til að sumarleyfi leikskóla Vesturbyggðar árið 2027 verði í samræmi við gildandi reglur og standi frá 14. júlí til og með 12. ágúst. Fimmtudagurinn 12. ágúst verði starfsdagur og leikskólinn opni að nýju föstudaginn 13. ágúst.
Ingibjörg Lilja Kristjánsdóttir Leiksskólastjóri fór yfir að fyrirkomulag sumarfrístímann sumarið 2027. Fjölskylduráð samþykkir samhljóma.
5. HHF kynning á starfsemi 2026-2027
Fulltrúi HHF kemur og kynnir starfsemina í vetur
Birna Friðbjört Hannessdóttir fulltrúi HHF kynnir starf Hrafna Flóka og aðildarfélaga á Sunnanverðum Vestfjörðum. Mikið og gott starf er á svæðinu og stefnan er á sterkara starf í öllum byggðarkjörnum. Farið yfir samning um samstarf HHF við Vesturbyggð.
6. Svæðisbundin farsældaráætlun Vestfjarða 2026-2030
Erna LeaBergsteinsdóttir, verkefnastjóri hjá Vestfjarðarstofu, kynnir svæðisbundin forgangsröðun aðgerða vegna farsældar á Vestfjörðum 2026?2030. Áætlunin er unnin á grundvelli 5. gr. laga nr. 86/2021 um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og var samþykkt samhljóða á fundi Farsældarráðs Vestfjarða þann 9. september síðastliðinn.
Erna Lea Bergsteinsdóttir, verkefnastjóri hjá Vestfjarðarstofu, kynnir svæðisbundin forgangsröðun aðgerða vegna farsældar á Vestfjörðum 2026-2030.
Til kynningar
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:40
Formaður setti fund og kannaði hvort athugasemndir væru við fundarboðið. Svo var ekki og formaður lýsti fundinn lögmætan. Silja baldvisdóttir boðaði forföll og Egill Níelsson varamaður sat fundinn í hennar stað.