Fundur haldinn í ráðhúsi Vesturbyggðar, 11. nóvember 2026 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu
- Edda Bára Árnadóttir (EBA) varaformaður
- Gunnþórunn Bender (GB) formaður
- Jóhann Örn Hreiðarsson (JÖH) aðalmaður
- Thelma Dögg Theodórsdóttir (TDT) aðalmaður
Fundargerð ritaði
- Anna Vilborg Rúnarsdóttir Sviðsstjóri Fjölskyldusviðs
Almenn erindi
1. Fræðsluráð, fundartími og fyrirkomulag
Fjölskylduráð ákveður hvaða fundartímar henti í vetur og kosning varaformanns.
Ákveðið að það verði annar miðvikudagur í mánuði klukkan 13:00, samþykkt samhljóða. Einnig kosinn varaformaður ráðsins Edda Bára Árnadóttir, samþykkt samhljóða. Starfsmaður ráðsins er Anna Vilborg Rúnarsdóttir.
2. Bréf frá foreldraráð Araklettur
Lagt fram bréf með athugasemdum frá Foreldraráði Arakletts vegna breytingar á opnunartíma leikskólans Arakletts.
Lagt fram bréf með athugasemdum frá Foreldraráði Arakletts vegna breytingar á opnunartíma leikskólans Arakletts. Fjölskylduráð tekur undir efni bréfsins.
Til kynningar
3. Skóladagatal Tónlistarskóla Vesturbyggðar 2026-2027
Kristín skólastjóri Tónlistarskólans kynnir starfsemi Tónlistarskóla Vesturbyggðar.
Kristín fór yfir starfsáætlun og starfsemi Tónlistarskólans síðastliðið ár og það sem framundan er. Þökkum henni fyrir góða samantekt og gott starf.
4. Starfsáætlun Grunnskóla Vesturbyggðar
Lögð fram til kynningar starfsáætlun Grunnskóla Vesturbyggðar.
Til kynningar starfsáætlanir Grunnskóla Vesturbyggðar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:00