Fundur haldinn í Baldurshaga, Bíldudal., 14. maí 2025 og hófst hann kl. 16:30
Nefndarmenn
- Jón Þórðarson (JÞ) varamaður
- Rúnar Örn Gíslason (RÖG) formaður
- Valdimar Bernódus Ottósson (VBO) varaformaður
- Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) aðalmaður
Starfsmenn
- Lilja Magnúsdóttir (LM) ritari heimastjórna
- Magnús Árnason () verkefnastjóri
Fundargerð ritaði
- Lilja Magnúsdóttir ritari
Almenn erindi
1. Umsókn um framkvæmdaleyfi. Mjólkárlína 2 í sunnanverðum Arnarfirði
Tekið fyrir erindi Landsnets, dagsett 22. apríl 2025 vegna umsóknar um framkvæmdaleyfi fyrir Mjólkárlínu 2. Lagnaleið Mjólkárlínu 2 mun liggja norðaustur frá tengivirkinu við Bíldudal meðfram Bíldudalsvegi. Strengurinn mun þvera veginn og liggur suðaustur í átt að golfvelli Golfklúbbs Bíldudals. Golfvöllurinn verður þveraður í landi Litlu- Eyrar og þar eftir er farið undir Litlu-Eyrará. Eftir þetta mun leiðin liggja í hlíðinni meðfram Bíldudalsveg og að lokum þverar strengleiðin Bíldudalsveg og tengist við sæstreng sem liggur yfir Arnarfjörð. Leiðin er í samræmi við Aðalskipulag Vesturbyggðar 2018-2035. Erindinu fylgir afrit af bréfi Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytis þar sem Landsneti er heimilað eignarnám á þeim hluta lagnaleiðar er liggur innan landamerkja Litlu-Eyrar.
Skipulags- og framkvæmdaráð lagði til við heimastjórn Arnarfjarðar á 10. fundi sínum að erindið verði samþykkt og að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir framkvæmdinni.
Valdimar B. Ottósson lýsir sig vanhæfan vegna venslatengsla og víkur af fundi.
Jón Þórðarson kom inn í fundinn í hans stað.
Heimastjórn Arnarfjarðar samþykkir erindið og að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir framkvæmdinni.
Samþykkt samhljóða.
Jón víkur af fundi og Valdimar kom inn á fundinn aftur.
2. Tjaldsvæði á Bíldudal
Umræða um mögulegar framtíðarlausnir á tjaldsvæði á Bíldudal.
Heimastjórn Arnarfjarðar hefur kynnt sér og rætt þá möguleika sem eru á framtíðartjaldsvæði á Bíldudal.
Heimastjórn Arnarfjarðar leggur til við bæjarstjórn að framtíðartjaldsvæði verði þar sem gamla skólahúsnæðið er í hlíðinni undir væntanlegum ofanflóðavörnum. Rífa þarf gamla skólahúsið og lagfæra lóðina þannig að hún verði slétt og aðgengileg. Þessar framkvæmdir verði unnar í tengslum við og samhliða vinnu við ofanflóðavarnir sem munu hefjast í sumar og ljúka 2028.
Samþykkt samhljóða.
3. Bíldudalshöfn - nýr viðlegukantur
Bíldudalshöfn og nýr viðlegukantur
Heimastjórn Arnarfjarðar leggur áherslu á að bæjarstjórn beiti sér fyrir að viðlegukantur í Bíldudalshöfn haldist inni á samgönguáætlun sem unnið er að endurnýjun á.
Heimastjórn bendir á brýna nauðsyn þess að auka viðlegupláss í Bíldudalshöfn þar sem alltof lítið pláss er miðað við þá aukningu í fiskeldi sem er í Arnarfirði auk þess að koma til móts við aukin umsvif í höfninni.
Heimastjórn Arnarfjarðar hvetur Vegagerðina til að endurskoða þá afstöðu að ekki sé hægt að vinna fleiri en eitt verkefni í hverju sveitarfélagi á tíma hverrar áætlunar. Bent er á að Vesturbyggð rekur fimm hafnir og nauðsynlegar framkvæmdir verða að eiga sér stað í þeim öllum á næstu árum.
Samþykkt samhljóða.
4. Heimastjórnir, fundir með íbúum
Úrvinnsla úr ábendingum og málefnum frá íbúafundi og kaffispjalli heimastjórnar.
Heimastjórn Arnarfjarðar þakkar íbúum fyrir sýndan áhuga og góðar umræður og ábendingar á kaffispjalli og á íbúafundi. Einnig þakkar heimastjórn fyrir góða kynningu á ofanflóðavörnum á Bíldudal á íbúafundinum í gær.
Unnið verður úr ábendingum á næstu fundum heimastjórnar og þeim komið í farveg.
Til kynningar
5. Bíldudalsskóli og Tjarnarbrekka Hönnun og undirbúningur
Fundargerðir vegna byggingar Bíldudalsskóla lagðar fram til kynningar.
Magnús Árnason verkefnastjóri kom inn á fundinn undir þessum lið og svaraði fyrirspurnum heimastjórnarmanna.
Heimastjórn Arnarfjarðar hvetur til að vanda til allra verka og reyna að tryggja af fremsta megni að verkáætlun standist sem best.
6. Stjórnskipan - skipan í ráð og nefndir
Nýr fulltrúi bæjarstjórnar í heimastjórn Arnarfjarðar, Þórkatla Soffía Ólafsdóttir var skipuð á 11. fundi bæjarstjórnar í stað Jennýjar Láru Magnadóttur sem tekið hefur sæti í heimastjórn Patreksfjarðar.
Fulltrúar í heimastjórn Arnarfjarðar bjóða Þórkötlu Soffíu Ólafsdóttur velkomna sem aðalfulltrúa í heimastjórnina.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:40
Formaður setti fund og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðið. Svo var ekki og formaður lýsti fundinn lögmætan.