Hoppa yfir valmynd

Heimastjórn Arnarfjarðar #11

Fundur haldinn í Muggsstofu, Bíldudal, 11. júní 2025 og hófst hann kl. 16:30

Nefndarmenn
  • Rúnar Örn Gíslason (RÖG) formaður
  • Jón Þórðarson (JÞ) varamaður
  • Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) aðalmaður
Starfsmenn
  • Lilja Magnúsdóttir (LM) ritari heimastjórna

Fundargerð ritaði
  • Lilja Magnúsdóttir ritari

Formaður setti fund og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðið. Svo var ekki og formaður lýsti fundinn lögmætan.

Valdimar B. Ottósson boðaði forföll og Jón Þórðarson fyrsti varamaður sat fundinn í hans stað.

Almenn erindi

1. Umsókn um framkvæmdaleyfi. Mjólkárlína 2 í sunnanverðum Arnarfirði

Erindi frá Landsnet hf, dags. 4. júní 2025. Í erindinu er óskað eftir breytingu á framkvæmdaleyfi sem Heimastjórn Arnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 14. maí s.l. Breytingin felur í sér breytta legu strengs þar sem strengurinn þverar dalinn. Eftir breytingu mun strengurinn þvera dalinn innan landamerkja Vesturbyggðar í landi Hóls en þveraði áður dalinn í landi Litlu-Eyrar. Erindinu fylgir teikning er sýnir áformaða lagnaleið.

Heimastjórn Arnarfjarðar samþykkir breytingu á framkvæmdaleyfi vegna breyttrar legu strengs og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram. Heimastjórn leggur áherslu á gott samtal og samstarf við Golfklúbb Bíldudals.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer4

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Fjárhagsáætlun 2026

Fjárhagsáætlun 2026, dagsetningar og kynningar

Lagt fram til kynningar

Málsnúmer7

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Heimastjórnir, fundir með íbúum

Úrvinnsla úr ábendingum og málefnum frá íbúafundi og kaffispjalli, áherslur inn í fjárhagsáætlunargerð.

Forgangsröðun og umræðu vísað áfram til ágústfundar heimastjórnar.

Málsnúmer15

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

4. Bíldudalsskóli og Tjarnarbrekka Hönnun og undirbúningur

Verkfundargerð 13 og 14 vegna Bíldudalsskóla

Lagt fram til kynningar

Málsnúmer15

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


5. Umsóknir Vesturbyggðar í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2024

Niðurstaða umsókna í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2024

Lagt fram til kynningar.
Heimastjórn Arnarfjarðar leggur áherslu á að útsýnispallurinn á Strengfelli verði skráður inn á áfangastaðaáætlun og að sótt verði um verkefnið aftur að ári þar sem verkefnið mun styrkja ferðaþjónustu og auka aðgengi að náttúruperlum á sunnanverðum Vestfjörðum.

Málsnúmer7

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


6. Bíldudalshöfn - búningaaðstaða

Stöðuleyfi fyrir búningaaðstöðu fyrir Arnarlax

Lagt fram til kynningar

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:02