Hoppa yfir valmynd

Heimastjórn Arnarfjarðar #17

Fundur haldinn í Baldurshaga, 11. febrúar 2026 og hófst hann kl. 15:30

Nefndarmenn
  • Jón Þórðarson (JÞ) aðalmaður
  • Rúnar Örn Gíslason (RÖG) formaður
  • Gunnþórunn Bender (GB) varamaður
Starfsmenn
  • Lilja Magnúsdóttir (LM) ritari heimastjórna

Fundargerð ritaði
  • Lilja Magnúsdóttir ritari

Formaður setti fund og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðið.
Svo var ekki og formaður lýsti fundinn lögmætan.
Þórkatla Ólafsdóttir boðaði forföll og Gunnþórunn Bender sat fundinn í hennar stað.

Almenn erindi

1. Vinnufyrirkomulag heimastjórna í Vesturbyggð

Vinnufyrirkomulag heimastjórna, drög lögð fram til umsagnar

Heimastjórn Arnarfjarðar gerir ekki athugasemdir við drögin.

Samþykkt samhljóða

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Umferðarreglur í Vesturbyggð, í þéttbýli

Reglur um umferðarhraða á Bíldudal

Heimastjórn Arnarfjarðar lýsir áhyggjum sínum af umferðaröryggi á Hafnarbraut þar sem gangstéttir eru ekki alla leið meðfram götunni og um hana er þung umferð flutningabíla. Brýnt er að huga að öryggi skólabarna og annarra vegfarenda þegar nýtt skólahúsnæði verður tekið í notkun auk þess sem íþróttahúsið er á þessu svæði.
Skoða þarf vel hvaða leiðir eru færar til að afmarka gönguleiðir/gangbrautir meðfram götunni, alla leið frá Dalbraut og niður brekkuna að skólanum og einnig meðfram hafnarsvæði þannig að öryggi allra vegfarenda sé tryggt sem best.
Einnig má benda á að framkvæmdir eru framundan við hafnarsvæðið þar sem ráðgert er að setja upp trébryggju í sumar og því nauðsynlegt að hafa öll þessi atriði í huga við skipulag gönguleiða strax í vor.
Heimastjórn Arnarfjarðar beinir þeim tilmælum til bæjarstjórnar að koma þessum málum í framkvæmd sem fyrst til að tryggja öryggi allra þeirra sem leið eiga um þetta svæði.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer4

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Snjómokstur að Bíldudalsflugvelli

Snjómokstur og hálkuvarnir að Bíldudalsflugvelli

Heimastjórn Arnarfjarðar lýsir áhyggjum sínum af ástandi Bíldudalsvegar inn að Bíldudalsflugvelli þar sem brýnt er að tryggja aukna vetrarþjónustu á þeim kafla og þá sérstaklega hálkuvörn sem þarf að vera hluti af vetrarþjónustunni. Á kaflanum eru tvær einbreiðar brýr auk þess sem slitlag vegarins er orðið það skemmt að um einbreiðan veg er að ræða stærstan hluta leiðarinnar.
Þessi leið er gríðarlega mikilvæg fyrir samfélagið á sunnanverðum Vestfjörðum þar sem Bíldudalsflugvöllur gegnir hlutverki sjúkraflugvallar og því nauðsynlegt að tryggja samgöngur við völlinn sem allra best.
Við endurbyggingu Bíldudalsvegar sem er í drögum að samgönguáætlun, er brýnt að þessi kafli verði tekinn sem hluti af þeirri framkvæmd en ekki skilinn eftir eins og lítur út fyrir í þeim drögum sem nú liggja frammi.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

4. Öryggi varaafls og fjarskipta í Arnarfirði

Svör Orkubús Vestfjarða og fjarskiptafyrirtækja vegna bókunar heimastjórnar Arnarfjarðar.

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:25