Fundur haldinn í Baldurshaga, 11. mars 2026 og hófst hann kl. 15:30
Nefndarmenn
- Tryggvi Baldur Bjarnason (TBB) varamaður
- Rúnar Örn Gíslason (RÖG) formaður
- Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) aðalmaður
Starfsmenn
- Lilja Magnúsdóttir (LM) ritari heimastjórna
Fundargerð ritaði
- Lilja Magnúsdóttir ritari
Almenn erindi
1. Almenningssamgöngur í Vesturbyggð
Almenningssamgöngur í Vesturbyggð og staða þeirra eftir 1. mars 2026.
Heimastjórn Arnarfjarðar tekur undir bókun bæjarráðs Vesturbyggðar frá 20.01.2026 og bókun Ungmennaráðs Vestfjarða varðandi almenningssamgöngur innan sveitarfélagsins. Heimastjórn ítrekar mikilvægi almenningssamgangna fyrir íbúa á svæðinu þar sem þær tryggja aðgengi barna og unglinga að íþróttastarfi og félagsstarfi þeirra milli staða. Auk þess hafa aðrir íbúar nýtt sér þessar almenningssamgöngur til að sækja þjónustu milli staða.
Heimastjórn Arnarfjarðar telur það óeðlilegt að sveitarfélög séu hvött til að sameinast en sameiningin hafi síðan í för með sér niðurskurð á þjónustu ríkisins við íbúa.
Samþykkt samhljóða.
2. Minnisvarði á Bíldudal, viðgerð
Minnisvarði á Bíldudal og viðgerð á honum.
Tekin fyrir tillaga Jóns Þórðarsonar varðandi viðgerð á minnisvarðanum um sjóslys þar sem báturinn Gyða fórst í Arnarfirði með allri áhöfn.
Minnisvarðinn er mastur sem er orðið lúið og einnig þarf að skoða viðgerð á steinstöplinum sem mastrið stendur á.
Meta þarf kostnað við viðgerðina og hvort sá kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar þessa árs eða hvort vísa þarf málinu til fjárhagsáætlunargerðar í haust.
Heimastjórn Arnarfjarðar tekur undir tillögu Jóns og beinir þeim tilmælum til bæjarstjóra að setja málið í viðeigandi farveg.
Samþykkt samhljóða.
3. Fánastangir við skólahúsnæði
Flutningur og uppsetning fánastanga við nýtt skólahúsnæði og við minnismerki.
Tekin fyrir tillaga Jóns Þórðarsonar sem leggur til að fánastangir sem nú standa við gamla skólahúsnæðið fyrir ofan Dalbraut verði fluttar að nýja skólahúsnæðinu. Einnig leggur hann til að fánastöng verði sett upp við minnismerki um Gísla Jónsson við Skrímslasetrið.
Unnið er að hönnun lóðar við nýtt skólahúsnæði og taka þarf afstöðu til staðsetningar fánastanganna við þá vinnu.
Einnig þarf að skoða fjárheimildir fyrir svona framkvæmd.
Heimastjórn Arnarfjarðar beinir þeim tilmælum til bæjarstjóra að setja málið í viðeigandi farveg eftir því sem best hentar.
Samþykkt samhljóða.
4. Ketildalavegur 619
Ketildalavegur 619 og ástand hans og nauðsyn á viðhaldi vegarins.
Heimastjórn Arnarfjarðar ítrekar bókun sína frá 16.fundi 14.01.2026 til Vegagerðarinnar þar sem lýst er alvarlegum áhyggjum af ástandi Ketildalavegar 619 sem liggur frá Bíldudal út í Selárdal og nauðsyn þess að sinna viðhaldi vegarins fyrir sumarið.
Bent er á að þessi vegur liggur að Hvestuvirkjun og hún skiptir mjög miklu máli fyrir varaafl á Bíldudal og þurft hefur að brjótast út í Hvestu til að koma afli á línuna.
Einnig er mikil uppbygging í gangi úti í Selárdal þar sem unnið er að opnun á nýju safni Gísla á Uppsölum í vor og unnið er að undirbúningi fyrir margs konar listaviðburði í sumar. Einnig er stefnt að Sólmyrkvahátíð 11-12.ágúst þar sem gert er ráð fyrir miklum fjölda gesta.
Það er því gríðarlega mikilvægt að tryggja að vegurinn sé fær öllum bílum í sumar og að íbúum séu tryggðar öruggar samgöngur um þennan veg allt árið um kring.
Samþykkt samhljóða.
Til kynningar
5. Starf eldri borgara á Bíldudal
6. Fyrirspurn um skólahúsnæðið að Dalbraut 2 Bíldudal
Fyrirspurn frá Borgarverk varðandi gamla skólahúsnæðið á Bíldudal og afgreiðsla bæjarráðs.
Lagt fram til kynningar.
7. Snjómokstur að Bíldudalsflugvelli
Svar Vegagerðarinnar við bókun heimastjórnar á 17. fundi 11.02.2026
Lagt fram til kynningar
8. Öryggi varaafls og fjarskipta í Arnarfirði
Svör Orkubús Vestfjarða við bókun heimastjórnar Arnarfjarðar um öryggi varaafls og fjarskipta í Arnarfirði.
Lagt fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:55
Formaður setti fund og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðið. Svo var ekki og formaður lýsti fundinn lögmætan.
Jón Þórðarson boðaði forföll og Tryggvi Bjarnason annar varamaður sat fundinn í hans stað.