Fundur haldinn í Muggsstofu, Bíldudal, 10. ágúst 2026 og hófst hann kl. 09:00
Nefndarmenn
- Ásdís Snót Guðmundsdóttir (ÁSG) varamaður
- Freyja Ragnarsdóttir Pedersen (FRP) aðalmaður
- Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) aðalmaður
Starfsmenn
- Lilja Magnúsdóttir (LM) ritari heimastjórna
- Valgerður María Þorsteinsdóttir (VMÞ) menningar- og ferðamálafulltrúi
Fundargerð ritaði
- Valgerður María Þorsteinsdóttir ritari
Almenn erindi
1. Dýrahald í Vesturbyggð
Reglur um gæludýra- og búfjárhald í Vesturbyggð.
Heimastjórn Arnarfjarðar skorar á kattaeigendur og aðra gæludýraeigendur að virða þær samþykktir og reglugerðir sem eru í gildi um gæludýrahald.
Heimastjórn beinir þeim tilmælum til bæjarstjórnar að skerpt verði á samþykktum og reglugerðum varðandi allt gæludýrahald í Vesturbyggð. Auk þess þurfi að taka tillit til nýsamþykktra laga um gæludýrahald í fjölbýlishúsum.
Heimastjórn beinir einnig þeim tilmælum til bæjarstjórnar að skilgreint verði svæði fyrir hundagerði.
Samþykkt samhljóða.
2. Umferðaröryggi á Bíldudal
Umferðaröryggi á Bíldudal
Heimastjórn Arnarfjarðar skorar á Vegagerðina að setja upp hraðahindrun við innkomu í þéttbýlið.
Heimastjórn beinir því til bæjarstjórnar að bæta umferðaröryggi og -merkingar. Huga skuli sérstaklega að svæðum við skóla með þrengingum og hraðahindrunum.
Samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:20
Formaður setti fund og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðið. Svo var ekki og formaður lýsti fundinn lögmætan.
Björn Magnús Magnússon boðaði forföll og Ásdís Snót Guðmundsdóttir fyrsti varamaður sat fundinn í hans stað.