Fundur haldinn í Muggsstofu, Bíldudal, 12. október 2026 og hófst hann kl. 14:00
Nefndarmenn
- Ásdís Snót Guðmundsdóttir (ÁSG) varamaður
- Freyja Ragnarsdóttir Pedersen (FRP) aðalmaður
- Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) aðalmaður
Starfsmenn
- Valgerður María Þorsteinsdóttir (VMÞ) ritari heimastjórna
Fundargerð ritaði
- Valgerður María Þorsteinsdóttir ritari heimastjórnar Arnarfjarðar
Almenn erindi
1. Vegur að skógrækt á Bíldudal
Freyja Ragnarsdóttir Pedersen vék af fundi undir þessum lið. Rúnar Örn Gíslason kom inn á fundinn.
Málið var tekið fyrir á 4. fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 23. september síðastliðinn þar sem fjallað var um fyrirhugaða vegtengingu að skógræktarsvæðinu í Seljadal og þær útfærslur á legu vegarins sem ræddar hafa verið við forsvarsmenn Skógræktarfélags Bíldudals.
Skipulags- og umhverfisráð lagði áherslu á að fylgt yrði gildandi deiliskipulagi á svæðinu. Ráðið taldi að veglínur sem þvera fyrirhugaðar frístundalóðir gætu takmarkað möguleika á framtíðaruppbyggingu og gengið gegn þeim skipulagsforsendum sem liggja til grundvallar deiliskipulaginu. Ráðið lýsti jafnframt áhyggjum af þeirri leið sem lögð hefur verið til undir hlíðinni, meðal annars með tilliti til þess að vegslóðinn gæti orðið erfiður yfirferðar að vetrarlagi og þannig haft áhrif á aðgengi og nýtingu svæðisins.
Niðurstaða ráðsins var því að ítreka fyrri afstöðu um að aðkoma að skógræktarsvæðinu verði í samræmi við gildandi deiliskipulag frístundabyggðar við Tagl. Óskað var eftir uppfærðum framkvæmdaleyfisgögnum sem byggja á þeirri leið og málinu vísað til Heimastjórnar Arnarfjarðar til umfjöllunar.
Heimastjórn Arnarfjarðar tekur undir afstöðu skipulags- og umhverfisráðs um að aðkoma að skógræktarsvæðinu í Seljadal verði í samræmi við gildandi deiliskipulag frístundabyggðar við Tagl.
Mikilvægt er að fyrirhuguð vegagerð skerði ekki möguleika til framtíðaruppbyggingar á svæðinu og að tekið verði mið af þeim skipulagsforsendum sem þegar hafa verið samþykktar.
Heimastjórn tekur því undir þá niðurstöðu skipulags- og umhverfisráðs að óskað verði eftir uppfærðum framkvæmdaleyfisgögnum þar sem lega vegarins er í samræmi við gildandi deiliskipulag. Jafnframt er frumkvæði Skógræktarfélags Bíldudals að veglagningu að skógræktinni fagnað, framkvæmdin mun bæta aðgengi og öryggi vegfarenda að svæðinu.
Freyja Ragnarsdóttir Pedersen kom aftur inn á fundinn. Rúnar Örn Gíslason vék af fundi.
Til kynningar
2. Framkvæmdir 2026
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kom inn á fundinn og kynnti stöðu á framkvæmdum við Bíldudalsskóla og skólalóð. Heimastjórn þakkar fyrir yfirferðina.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:00
Formaður setti fund og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðið. Svo var ekki og formaður lýsti fundinn lögmætan.
Björn Magnús Magnússon boðaði forföll og Ásdís Snót Guðmundsdóttir sat fundinn í hans stað.