Hoppa yfir valmynd

Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps #10

Fundur haldinn í Birkimel á Barðaströnd, 15. maí 2025 og hófst hann kl. 14:30

Nefndarmenn
  • Edda Kristín Eiríksdóttir (EKE) varaformaður
  • Elín Eyjólfsdóttir (EE) formaður
  • Jóhann Örn Hreiðarsson (JÖH) varamaður
Starfsmenn
  • Lilja Magnúsdóttir (LM) ritari heimastjórna

Fundargerð ritaði
  • Lilja Magnúsdóttir ritari

Formaður setti fund og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðið. Svo var ekki og formaður lýsti fundinn lögmætan.

Maggý Hjördís Keransdóttir boðaði forföll og Jóhann Örn Hreiðarsson varamaður sat fundinn í hennar stað.

Almenn erindi

1. Sjónarhóll Barðaströnd, umsókn um byggingarleyfi.

Erindi frá Gunnari I. Bjarnasyni, dags. 11. apríl 2025. Í erindinu er sótt um samþykki byggingaráforma fyrir 84m2 sumarhúsi úr timbri á Sjónarhól, L225784, Barðaströnd.

Skipulags- og framkvæmdaráð lagði til við heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps á 10. fundi sínum að samþykkja byggingaráformin og mat sem svo að framkvæmdin sé þess eðlis að heimilt sé að falla frá grenndarkynningu þar sem framkvæmdin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda.

Edda Kristín Eiríksdóttir lýsti sig vanhæfa til að fjálla um málið vegna venslatengsla og vék af fundi.

Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps samþykkir byggingaráformin og er sammála því að framkvæmdin sé þess eðlis að heimilt sé að falla frá grenndarkynningu þar sem framkvæmdin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda.

Samþykkt samhljóða.

Edda Kristín Eiríksdóttir kom aftur inn á fundinn.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Ábendingar til Vegagerðarinnar varðandi Örlygshafnarveg

Mokstur upp Vörðubrekku og lokunarslá ef ófært

Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps fer þess á leit við Vegagerðina að við mokstursleiðina út í Hænuvík verði bætt við mokstri í svokallaðri Vörðubrekku sem liggur upp úr Örlygshöfn á leið út á Látrabjarg þannig að stungið sé úr brekkunni reglulega. Um er að ræða vegkafla með mikla snjósöfnun og vegna hliðarhalla, þegar snjór safnast þar upp, er nánast útilokað að þræða kantana upp brekkuna.
Vegurinn upp Vörðubrekku er mikill farartálmi að vetri til á leið út á Látrabjarg þar sem starfræktur er viti sem þarf að vitja reglulega. Einnig eru á þessu svæði mikilvægir fjarskiptainnviðir sem skipta miklu máli fyrir sjófarendur og aðra umferð um svæðið og nauðsynlegt að aðgengi sé fyrir hendi ef eitthvað kemur upp á.
Einnig leggur heimastjórn til að sett verði lokunarslá á veginn upp Vörðubrekkuna þannig að ekki fari á milli mála að vegurinn sé lokaður en mörg dæmi eru um að ferðamenn lendi í vandræðum í brekkunni.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Öryggi vegfarenda á Raknadalshlíð og Kleifarheiði

Tillaga um að koma samgöngubótum á Raknadalshlíð inn á samgönguáætlun ásamt vegriðum á Kleifaheiði.

Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps leggur til við bæjarstjórn Vesturbyggðar að beita sér fyrir því að vegurinn um Raknadalshlíð fari inn á samgönguáætlun með það að markmiði að auka umferðaröryggi um veginn. Þar er snjóflóðahætta og grjóthrun og auk annarra vegfarenda er skólabörnum frá Barðaströnd ekið um veginn daglega á skólatíma. Brýnt er að auka öryggi vegfarenda með vegskápum, vegriðum og/eða að færa veginn neðar í hlíðina eða með öðrum útfærslum sem tryggja öryggi sem best.

Einnig er mjög áríðandi að setja vegrið á veginn um Kleifaheiði til að bæta öryggi vegfarenda þar, sérstaklega þar sem veghalli er ekki réttur.

Á báðum leiðum er mjög mikilvægt að bæta fjarskiptaöryggi eins og kemur fram í bókun heimastjórnar Patreksfjarðar frá 05.02.2025 auk bókunar bæjarstjórnar Vesturbyggðar. Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps tekur undir báðar þessar bókanir.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer4

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Garðar BA Skápadal

Garðar BA í Skápadal, mögulegar aðgerðir og lausnir varðandi ástand og umhverfi.

Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps beinir þeim tilmælum til bæjarstjóra Vesturbyggðar að farið verði í formlega úttekt á ástandi Garðars BA í Skápadal af þar til bærum aðilum með tilliti til mengunarhættu og slysahættu svo til séu gögn um raunverulegt ástand skipsins.
Heimastjórn telur að þetta séu nauðsynlegar úttektir til að hægt sé að ræða næstu skref varðandi framtíð Garðars BA.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


5. Heimastjórnir, fundir með íbúum

Úrvinnsla á athugasemdum og ábendingum frá kaffispjalli og íbúafundum.

Rætt áfram um þau verkefni sem eiga að fara inn á fjárhagsáætlun næsta árs og þau verða unnin áfram á næsta fundi.

Málsnúmer12

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

6. Upplýsingar frá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

Svar Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða við fyrirspurn heimastjórnar

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:09