Hoppa yfir valmynd

Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps #11

Fundur haldinn í Birkimel á Barðaströnd, 12. júní 2025 og hófst hann kl. 14:30

Nefndarmenn
  • Edda Kristín Eiríksdóttir (EKE) varaformaður
  • Elín Eyjólfsdóttir (EE) formaður
  • Maggý Hjördís Keransdóttir (MHK) aðalmaður
Starfsmenn
  • Lilja Magnúsdóttir (LM) ritari heimastjórna

Fundargerð ritaði
  • Lilja Magnúsdóttir ritari

Formaður setti fund og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðið.
Svo var ekki og formaður lýsti fundinn lögmætan.

Almenn erindi

1. Breiðavík. Ósk um stofnun lóðar - veðursjá.

Erindi frá Hótel Breiðavík ehf. Í Í erindinu er óskað eftir stofnun 2500m2 lóðar á Brunnahæð úr landi Breiðavíkur, L139860. Erindinu fylgir drög að merkjalýsingu unnin af Verkís.

Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps á 11. fundi sínum að stofnun lóðarinnar verði samþykkt. Skipulags- og framkvæmdaráð mat sem svo að heimilt sé að falla frá grenndarkynningu þar sem breytingin vaarði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélags og umsækjenda, sbr. 3. mgr 44. gr skipulagslaga nr. 123/2010.

Maggý Hjördís Keransdóttir lýsti sig vanhæfa til að fjalla um málið og vék af fundi.

Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps samþykkir stofnun lóðar og tekur undir mat skipulags- og framkvæmdaráðs um að ekki þurfi grenndarkynningu á verkefninu.

Samþykkt samhljóða.

Maggý Hjördís Keransdóttir kom aftur inn á fundinn.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Asparhlíð, leyfi fyrir gestahúsi

Erindi frá Jóni V. Aðalsteinssyni, dags. 25. apríl 2025. Í erindinu er sótt um leyfi fyrir 25,5 m2 gestahúsi við Asparhlíð, L139793, Barðaströnd. Erindinu fylgir samþykki fulltrúa landeigenda, Ríkiseigna.

Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps á 11. fundi sínum að samþykkja byggingaráformin með fyrirvara um jákvæða niðurstöðu grenndarkynningar, en grenndarkynna þarf áformin fyrir eigendum aðliggjandi frístundahúsa.

Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps samþykkir byggingaráformin með fyrirvara um jákvæða niðurstöðu grenndarkynningar, en grenndarkynna þarf áformin fyrir eigendum aðliggjandi frístundahúsa.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Samgönguáætlun 2026-2030 endurskoðun áætlunar - Hafnaframkvæmdir og sjóvarnir

Endurskoðun samgönguáætlunar 2026-2030 með áherslu á höfn á Gjögrum í Örlygshöfn.

Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps hvetur bæjarráð Vesturbyggðar til að leggja fram tillögur til samgönguáætlunar um að fá fjármagn í endurbætur á höfninni við Gjögra í Örlygshöfn við endurskoðun samgönguáætlunar.
Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps bendir á að þessi höfn getur skipt máli varðandi viðbragð björgunaraðila ef ófært er út í Örlygshöfn landleiðina auk þess sem höfnin er heimahöfn þriggja smábáta á strandveiðum. Einnig getur lagfæring á höfninni opnað möguleika á aukinni fjölbreytni í afþreyingu ferðamanna með siglingum yfir fjörðinn til og frá höfninni á Patreksfirði.
Nauðsynlegt er að fá mat á þeim endurbótum sem þurfa að eiga sér stað á höfninni til að tryggja starfsemi þar og möguleika á að nýta þessa innviði. Vitað er að grjóthreinsa þarf og dýpka lítillega innan við kantinn sem fyrir er. Einnig þarf að lagfæra kantinn sjálfan þannig að öryggi notenda sé tryggt á bryggjunni og framkvæma þarf mat á kostnaði við framkvæmdirnar.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Sólmyrkvi 12 ágúst 2026

Umræða um sólmyrkva 2026 og undirbúning.

Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps hvetur formann starfshóps Vesturbyggðar um undirbúning fyrir sólmyrkva 2026 til að kalla saman fund sem fyrst til að halda áfram vinnu við undirbúning fyrir sólmyrkvann í ágúst 2026.
Íbúar Vesturbyggðar kalla eftir upplýsingum um viðbúnað í tengslum við viðburðinn.

Samþykkt samhljóða

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


5. Fjárhagsáætlun 2026

Fjárhagsáætlun 2026, dagsetningar og tilhögun

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer7

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


6. Heimastjórnir, fundir með íbúum

Úrvinnsla úr ábendingum og málefnum frá íbúafundi og kaffispjalli, áherslur inn í fjárhagsáætlunargerð.

Forgangsröðun og umræðu vísað áfram til ágústfundar heimastjórnar.

Málsnúmer15

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

7. Umsóknir Vesturbyggðar í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2024

Niðurstaða varðandi umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2024

Upplýsingar um umsókn fyrir Laugarneslaug í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða þar sem umsókn er synjað.

Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps harmar að ekki hafi fengist fé til framkvæmda við nýjan búningsklefa laugarinnar í Laugarnesi, einkum með tilliti til þess að FF veitti fé til hönnunar aðstöðunnar á sínum tíma. Heimastjórn gerir alvarlegar athugasemdir við gæðamatsblað sem fylgdi synjun með vísan í skýr og greinargóð efnisatriði og rökstuðning sem koma fram í umsókn Vesturbyggðar.
Rökstuðningur FF fyrir höfnun umsóknarinnar byggist á grundvelli e-liðar 6. greinar reglugerðar nr. 782/2017, þar sem segir: ..."FF er ekki heimilt að veita styrki til ferðamannastaða sem ekki eru opnir gjaldfrjálsri umferð almennings. Heimilt er þó að taka gjald fyrir veitta þjónustu."
Mat heimastjórnar er að forsendur FF fyrir synjun séu ekki réttar þar sem ekki standi til að innheimta gjald fyrir komu í laugina og það kemur skýrt fram í umsókninni. Heimastjórn óskar eftir að fá nánari skýringar og rökstuðning fyrir afgreiðslu sjóðsins.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer7

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


8. Fundargerðir 2025 Breiðafjarðarnefndar

Lagðar fram til kynningar fundargerðir fyrir 230. fund, sem var haldinn 4. mars 2025, og 231. fund Breiðafjarðarnefndar, haldinn 20. mars 2025,

Málsnúmer4

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:25