Hoppa yfir valmynd

Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps #15

Fundur haldinn í Birkimel á Barðaströnd, 12. febrúar 2026 og hófst hann kl. 14:30

Nefndarmenn
  • Þórður Sveinsson (ÞS) varamaður
  • Elín Eyjólfsdóttir (EE) formaður
  • Maggý Hjördís Keransdóttir (MHK) aðalmaður
Starfsmenn
  • Lilja Magnúsdóttir (LM) ritari heimastjórna

Fundargerð ritaði
  • Lilja Magnúsdóttir ritari

Formaður setti fund og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðið.
Svo var ekki og formaður lýsti fundinn lögmætan.
Edda Kristín Eiríksdóttir boðaði forföll og Þórður Sveinsson, fyrsti varamaður sat fundinn í hennar stað.

Áður en formlegur fundur heimastjórnar hófst sat heimastjórn fund Vesturbyggðar um undirbúning fyrir sólmyrkvann í ágúst.

Almenn erindi

1. Brunavarnir í Vesturbyggð

Brunavarnir í dreifbýli. Davíð Rúnar Gunnarsson slökkviliðsstjóri kom á fundinn og kynnti stöðu mála í sambandi við brunavarnir í dreifbýli Vesturbyggðar.

Slökkviliðsstjóri fór yfir möguleika á brunavörnum í dreifbýli og það sem nauðsynlegt er að hafa í huga varðandi forvarnir og hvað er gott að hafa á hverju heimili og í útihúsum.
Stefnt er að því að halda almennan upplýsingafund fyrir íbúa í dreifbýli til að fara yfir helstu öryggisatriði og viðbrögð við eldsvoða.
Stefnt verði að því að halda þennan fund fyrir vorið.

Davíð Rúnar Gunnarsson, slökkviliðsstjóri vék af fundi.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Brjánslækur - aðalskipulagsbreyting

Tekin fyrir tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2018-2035. Meðfylgjandi er breytingaruppdráttur og gátlisti um óverulega breytingu. Breytingin gengur út á breytta afmörkun á verslunar- og þjónustusvæði við Brjánslæk (VÞ8) sem og aukið byggingarmagn úr 500 fm í 1000 fm.

Skipulags- og framkvæmdaráð lagði til við heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps á 17. fundi sínum að gerð verði breyting á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2018-2035 til samræmis við erindið.

Að mati skipulags- og framkvæmdaráðs er um óverulega breytingu að ræða í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem breytingin hefur hvorki í för með sér breytingar á landnotkun né er hún líkleg til að hafa áhrif á einstaka aðila eða stór svæði.

Skipulags- og framkvæmdaráð lagði til við heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps á 17. fundi sínum að gerð verði breyting á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2018-2035 til samræmis við erindið.

Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps samþykkir erindið með fyrirvara um samþykki landeiganda.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Fjarskiptasamband í Patreksfirði

Fjarskiptasamband í Patreksfirði og á Kleifaheiði og úrbætur á því.

Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps leggur mikla áherslu á nauðsyn þess að sett verði upp fjarskiptasamband í innanverðum Patreksfirði og á vestanverðri Kleifaheiði þar sem nánast ekkert samband er á þeirri leið. Vakin er athygli á að á þessum vegi er ofanflóðahætta, bæði grjóthrun og snjóflóð og ekki hægt að ná sambandi ef slys eða óhöpp verða. Um þennan veg fara skólabörn á Barðaströnd daglega og öryggi þeirra getur því verið í hættu ef ekki er hægt að kalla eftir aðstoð ef eitthvað kemur upp. Um þennan veg er einnig mikil umferð íbúa og flutningabíla alla daga þar sem vegurinn um Kleifaheiði er aðalleið flutninga að og frá sunnanverðum Vestfjörðum.
Heimastjórn hvetur bæjarstjórn Vesturbyggðar til að beita sér fyrir því að fjarskiptasamband verði sett upp á þessari leið sem allra fyrst með öryggi allra vegfarenda að leiðarljósi.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Vinnufyrirkomulag heimastjórna í Vesturbyggð

Vinnufyrirkomulag heimastjórna, drög lögð fram til umsagnar

Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps gerir ekki athugasemdir við drögin.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

5. Akstursþjónusta

Upplýsingar um akstursþjónustu fyrir eldri borgara í Vesturbyggð frá fundi öldungaráðs Vesturbyggðar 29.01.2026.

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:22