Hoppa yfir valmynd

Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps #17

Fundur haldinn í Birkimel á Barðaströnd, 11. maí 2026 og hófst hann kl. 14:30

Nefndarmenn
  • Edda Kristín Eiríksdóttir (EKE) varaformaður
  • Elín Eyjólfsdóttir (EE) formaður
  • Maggý Hjördís Keransdóttir (MHK) aðalmaður
Starfsmenn
  • Lilja Magnúsdóttir (LM) ritari heimastjórna

Fundargerð ritaði
  • Lilja Magnúsdóttir ritari

Formaður setti fund og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðið.
Svo var ekki og formaður lýsti fundinn lögmætan.

Almenn erindi

1. Brjánslækur 1 139787 - Umfangsflokkur 1

Erindi frá Náttúruverndarstofnun, dagsett 17.mars 2026. Í erindinu er sótt um samþykki byggingaráforma vegna salernisaðstöðu við Þingmannaá, Vatnsfirði. Húsið er almenningssalerni / snyrtingar úr færanlegum húseiningum sem reisa á við bílastæði hjá Þingmannaá. Húsið er óupphitað, enda einungis opið hluta úr ári eða yfir sumartíma og gengið frá og lokað yfir vetrartímann. Heildarstærð 25 m2.

Skipulags- og framkvæmdaráð lagði til við heimastjórn fyrrum Barðarstrandarhrepps og Rauðasandshrepps á 20. fundi sínum að erindið verði samþykkt með fyrirvara um samþykki ábúenda og metur sem svo að framkvæmdin varði ekki hagsmuni annarra en umsækjenda og sveitarfélagsins sjálfs og sé því undanþegið grenndarkynningu í samræmi við 3. mgr. 44. gr skipulagslaga nr. 123/2010.

Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps samþykkir erindið með fyrirvara um samþykki ábúenda og er sammála erindi skipulagsnefndar að framkvæmdin varði ekki hagsmuni annarra en umsækjenda og sveitarfélagsins sjálfs og sé því undanþegið grenndarkynningu í samræmi við 3. mgr. 44. gr skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:45