Hoppa yfir valmynd

Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps #18

Fundur haldinn í Birkimel á Barðaströnd, 9. júlí 2026 og hófst hann kl. 14:30

Nefndarmenn
  • Elín Eyjólfsdóttir (EE) formaður
  • Rebekka Hilmarsdóttir (RH) aðalmaður
  • Sandra Líf Pálsdóttir (SLP) aðalmaður
  • Þórður Sveinsson (ÞS) varamaður
Starfsmenn
  • Lilja Magnúsdóttir (LM) ritari heimastjórna

Fundargerð ritaði
  • Lilja Magnúsdóttir ritari

Formaður setti fund og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðið.
Svo var ekki og formaður lýsti fundinn lögmætan.

Almenn erindi

1. Kosning varaformanns í heimastjórnum

Bæjarstjórn skipaði Elínu Eyjólfsdóttur formann heimastjórnar fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps. Fulltrúar bæjarstjórnar eru Rebekka Hilmarsdóttir, aðalmaður og Gunnþórunn Bender til vara.
Kjósa þarf varaformann heimastjórnar.

Formaður lagði til að Sandra Líf verði kosin varaformaður.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer4

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Tímasetning funda heimastjórna

Ákvörðun um tímasetningu funda heimastjórna.

Formaður lagði til að fundað yrði annan fimmtudag í mánuði kl. 13.00

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer4

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Brjánslækur 1, deiliskipulag ferðaþjónusta.

Skipulags- og umhverfisráð tekur fyrir að nýju tillögu að deiliskipulagi fyrir Brjánslæk 1 á Barðaströnd að lokinni auglýsingu skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, ásamt fyrirliggjandi lagfærðum skipulagsgögnum. Á auglýsingartíma bárust umsagnir frá Slökkviliði Vesturbyggðar , Vegagerðinni, Minjastofnun Íslands, Náttúruverndarstofnun og Náttúrufræðistofnun.

Slökkvilið Vesturbyggðar óskaði eftir skýrari umfjöllun um brunavarnir, einkum vegna fjarlægðar frá slökkvistöð, aðgengis viðbragðsaðila og útvegunar slökkvivatns. Í lagfærðum gögnum hefur verið bætt við ákvæðum um brunavarnir, slökkvivatn og samráð við slökkvilið við nánari hönnun.
Vegagerðin gerði ekki athugasemd við tillöguna en benti á upplýsingar um Brjánslækjarkirkjuveg, veghelgunarsvæði og fjarlægðir milli vegamóta. Tekið hefur verið mið af umsögninni og áréttað að nánari útfærsla aðkomu og framkvæmdir innan veghelgunarsvæðis verði unnar í samráði við Vegagerðina eftir því sem við á.
Minjastofnun Íslands benti á mikið minjagildi Brjánslækjar og að líklegt sé að fornleifar leynist undir sverði innan heimatúnsins. Í lagfærðum gögnum hefur verið bætt við skýrari ákvæðum um fornleifar, mótvægisaðgerðir, könnunarskurði og/eða framkvæmdaeftirlit áður en til jarðrasks kemur.
Náttúruverndarstofnun benti á nálægð við náttúruvættið Surtarbrandsgil og mikilvægi þess að hugað verði að áhrifum á verndargildi, landslag og ásýnd. Í lagfærðum gögnum hefur verið bætt við umfjöllun um Surtarbrandsgil, landslagsaðlögun, litaval, frágang og samráð við Náttúruverndarstofnun eftir því sem við á.
Náttúrufræðistofnun benti á nálægð við Surtarbrandsgil og Breiðafjörð og að fuglar kunni að nýta túnið til varps. Í lagfærðum gögnum hefur verið tekið mið af þessu með ákvæði um að leitast skuli við að framkvæmdir fari fram utan varptíma fugla, eftir því sem unnt er.

Skipulags- og umhverfisráð telur að með fyrirliggjandi lagfærðum skipulagsgögnum hafi verið brugðist við umsögnum sem bárust á auglýsingartíma með fullnægjandi hætti. Ráðið telur að tillagan samræmist stefnu aðalskipulags um uppbyggingu verslunar- og þjónustusvæðis á Brjánslæk og geti stutt við ferðaþjónustu og nýtingu fyrirliggjandi innviða, að því gefnu að tekið verði mið af skilyrðum um minjavernd, brunavarnir, landslagsaðlögun, náttúruvernd og samráð við viðeigandi umsagnaraðila á síðari stigum.

Sandra Líf Pálsdóttir lýsti sig vanhæfa til að fjalla um málið og vék af fundi. Þórður Sveinsson, fyrsti varamaður tók sæti hennar á fundinum.

Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps samþykkir deiliskipulag Brjánslækjar 1 með fyrirliggjandi lagfæringum og samþykkir deiliskipulagið samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Heimastjórn bendir á að uppdráttur þurfi að uppfærast miðað við textalýsingu um aðkomu að Brjánslækjarkirkju þannig að samræmis sé gætt.

Heimastjórnin samþykkir jafnframt að deiliskipulagið verði sent til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar til yfirferðar að undangenginni breytingu á aðalskipulagi Vesturbyggðar, í samræmi við afgreiðslubréf Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um sama mál.

Málsnúmer4

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Rauðasandsstrengur. Umsókn um framvæmdaleyfi

Lagt fram erindi Orkubús Vestfjarða ohf., dags. 16. júní 2026, þar sem óskað er eftir framkvæmdaleyfi vegna lagningar 3x95q / 24 kV háspennustrengs og ljósleiðara yfir Skersfjall á Rauðasandi. Samkvæmt umsókn er fyrirhugað að áfangaskipta framkvæmdinni og tekur fyrsti áfangi til lagningar strengs frá spennistöð í landi Hvalskers, yfir fjallið og niður á Rauðasand, í námunda við núverandi sorpgám. Fram kemur að reynt verði að takmarka rask eins og kostur er og ganga snyrtilega frá plægingarsári að framkvæmd lokinni. Áætlaður framkvæmdatími er haustið 2026 og unnið er að fornleifaskráningu á lagnaleiðinni.
Með erindinu fylgja yfirlitsuppdráttur og afstöðumyndir sem sýna áætlaða lagnaleið um Skersfjall, frá Mikladal, yfir Skersfjall og niður um Bjarngötudal, ásamt lagnaleiðasamningum við hlutaðeigandi landeigendur.

Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps samþykkir að fela skipulagsfulltrúa að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna lagningar 3x95q / 24 kV háspennustrengs og ljósleiðara yfir Skersfjall á Rauðasandi.

Heimastjórnin leggur áherslu á að við afgreiðslu framkvæmdaleyfis verði tryggt að lagnaleið, verklag, frágangur og mótvægisaðgerðir verði skýr í leyfisgögnum, að rask verði lágmarkað og að tekið verði tillit til niðurstöðu fornleifaskráningar áður en framkvæmd hefst.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

5. Erindisbréf

Erindisbréf heimastjórnar fyrrum Barðastrandar- og Rauðasandshrepps

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer13

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


6. Samþykkt um stjórn Vesturbyggðar

Samþykktir Vesturbyggðar lagðar fram.

Lagt fram til kynningar

Málsnúmer15

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


7. Siðareglur kjörinna fulltrúa

Siðareglur Vesturbyggðar fyrir kjörna fulltrúa lagðar fram.

Lagt fram til kynningar

Málsnúmer11

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


8. Vinnufyrirkomulag heimastjórna í Vesturbyggð

Vinnufyrirkomulag og vinnureglur heimastjórna í Vesturbyggð.

Lagt fram til kynningar

Málsnúmer9

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


9. Fjárhagsáætlun 2027 - 2030

Dagsetningar í fjárhagsáætlunarvinnu fyrir 2027-2030

Lagt fram til kynningar

Málsnúmer5

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


10. Fundargerðir 2026 Breiðafjarðarnefndar

Lagt fram til kynningar fundargerð fyrir 242. fund Breiðafjarðarnefndar, sem haldin var 26. mars 2026.

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer5

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:30