Hoppa yfir valmynd

Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps #21

Fundur haldinn í Birkimel á Barðaströnd, 8. október 2026 og hófst hann kl. 12:55

Nefndarmenn
  • Elín Eyjólfsdóttir (EE) formaður
  • Gunnþórunn Bender (GB) varamaður
  • Sandra Líf Pálsdóttir (SLP) aðalmaður
Starfsmenn
  • Maggý Hjördís Keransdóttir (MHK) ritari heimastjórna

Fundargerð ritaði
  • Elín Eyjólfsdóttir formaður

Formaður setti fund og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðið. Svo var ekki og formaður lýsti fundinn lögmætan.

Almenn erindi

1. Umsagnarbeiðni rekstrarleyfi Hótel Flókalundur

Lagður fram tölvupóstur með umsókn vegna rekstrarleyfis Hótel Flókalundur

Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps gerir ekki athugasemdir við veitingu rekstrarleyfisins.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Brunnahæð og Urðarhjalli. Umsókn um framkvæmdaleyfi - plæging á streng.

Tekin fyrir umsókn Orkubús Vestfjarða um framkvæmdaleyfi vegna lagningar 24 kV háspennustrengs og ljósleiðara frá Breiðavík að Brunnahæð og Urðarhjalla, samkvæmt fyrirliggjandi umsókn, minnisblaði og lagnaleiðaruppdrætti.

Skipulags- og umhverfisráð lagði til við heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps á 4. fundi sínum þann 23. september að samþykkt verði að veita framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdinni með fyrirvara um jákvæða umsögn Minjastofnunar Íslands vegna fyrirliggjandi fornleifaskráningar og að nauðsynleg leyfi og samþykki Vegagerðarinnar liggi fyrir vegna þverunar Örlygshafnarvegar nr. 612 og eftir atvikum annarra vega sem framkvæmdin tekur til.

Framkvæmdir skulu fylgja þeirri lagnaleið sem sýnd er í fyrirliggjandi gögnum. Rask á landi skal lágmarkað og ganga skal snyrtilega frá framkvæmdasvæðinu að framkvæmd lokinni, þ.m.t. með jöfnun yfirborðs og uppgræðslu þar sem jarðvegur raskast.

Komi fram í umsögn Minjastofnunar eða við afgreiðslu Vegagerðarinnar skilyrði sem kalla á efnislegar breytingar á legu eða umfangi framkvæmdarinnar, skal málið tekið fyrir að nýju í ráðinu.

Ráðið fól skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar framangreind skilyrði hafa verið uppfyllt.

Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps samþykkir að veitt verði framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdinni með fyrirvara um jákvæða umsögn Minjastofnunar Íslands sem og að nauðsynleg leyfi og samþykki Vegagerðarinnar liggi fyrir vegna þverunar Örlygshafnarvegar nr. 612 og eftir atvikum annarra vega sem framkvæmdin tekur til.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

3. Ósk um svæði undir flugvöll í Sauðlauksdal.

Lögð fram til kynningar bókun frá 4. fundi skipulags- og umhverfisráðs dagsett 23. september sl. varðandi ósk um svæði fyrir flugvöll í Sauðlauksdal frá Módelsmiðju Vestfjarða

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:13