Fundur haldinn í Birkimel á Barðaströnd, 19. nóvember 2026 og hófst hann kl. 13:00
Nefndarmenn
- Elín Eyjólfsdóttir (EE) formaður
- Rebekka Hilmarsdóttir (RH) aðalmaður
- Þórður Sveinsson (ÞS) varamaður
Starfsmenn
- Maggý Hjördís Keransdóttir (MHK) ritari heimastjórna
Fundargerð ritaði
- Maggý Hjördís Keransdóttir ritari
Almenn erindi
1. Brjánslækur 1, deiliskipulag ferðaþjónusta.
Lögð fram til afgreiðslu uppfærð tillaga að deiliskipulagi fyrir Brjánslæk 1 á Barðaströnd, ásamt umsögnum sem bárust á auglýsingartíma tillögunnar frá 24. ágúst til 5. október 2026 og bókun skipulags- og umhverfisráðs.
Umsagnir bárust frá Slökkviliði Vesturbyggðar, Náttúruverndarstofnun, Vegagerðinni og Minjastofnun Íslands. Brugðist hefur verið við framkomnum ábendingum í uppfærðum skipulagsgögnum, meðal annars varðandi brunavarnir, fornleifar, aðkomu, bílastæði og aðlögun mannvirkja að umhverfi.
Skipulags- og umhverfisráð telur að brugðist hafi verið við umsögnum með fullnægjandi hætti og að breytingar á tillögunni kalli ekki á endurauglýsingu. Ráðið samþykkti tillöguna fyrir sitt leyti og vísaði henni til heimastjórnar til afgreiðslu, samhliða breytingu á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2018-2035 vegna verslunar- og þjónustusvæðis VÞ8.
Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps tekur undir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs og telur að brugðist hafi verið við framkomnum umsögnum með fullnægjandi hætti.
Heimastjórn telur að breytingar sem gerðar hafa verið á tillögunni eftir auglýsingu breyti ekki grundvallarforsendum deiliskipulagsins og kalli því ekki á endurauglýsingu.
Heimastjórn samþykkir uppfærða tillögu að deiliskipulagi fyrir Brjánslæk 1 til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 41. og 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, samhliða breytingu á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2018-2035 vegna verslunar- og þjónustusvæðis VÞ8.
Heimastjórn felur skipulagsfulltrúa að annast framhald málsins og lögformlega afgreiðslu þess.
Til kynningar
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:15
Formaður setti fund og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðið. Svo var ekki og formaður lýsti fundinn lögmætan. Sandra Líf Pálsdóttir lýsti sig vanhæfa til að fjalla um málið. Þórður Sveinsson, fyrsti varamaður tók sæti hennar á fundinum.