Hoppa yfir valmynd

Heimastjórn Patreksfjarðar #11

Fundur haldinn í ráðhúsi Vesturbyggðar, 4. júní 2025 og hófst hann kl. 14:00

Nefndarmenn
  • Gunnar Sean Eggertsson (GSE) varaformaður
  • Jenný Lára Magnadóttir (JLM) aðalmaður
  • Rebekka Hilmarsdóttir (RH) formaður
Starfsmenn
  • Lilja Magnúsdóttir (LM) ritari heimastjórna
  • Valgerður María Þorsteinsdóttir (VMÞ) menningar- og ferðamálafulltrúi

Fundargerð ritaði
  • Lilja Magnúsdóttir ritari

Formaður setti fund og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðið. Svo var ekki og formaður lýsti fundinn lögmætan.

Formaður bað fundarmenn um að minnast Sigurjóns Páls Haukssonar, varamanns í heimastjórn Patreksfjarðar með þakklæti fyrir vel unnin störf í þágu samfélagsins.

Almenn erindi

1. 17. júní 2025

Valgerður Þorsteinsdóttir menningar- og ferðamálafulltrúi kom inn á fundinn undir þessum lið.

Valgerður sagði heimastjórn Patreksfjarðar frá þeirri tilhögun sem verið hefur í sambandi við 17.júní hátíðahöld. Vesturbyggð hefur haldið 17.júní hátíðlegan á Bíldudal með stuðningi og formlegri dagskrá auk þess sem Kvenfélagið Neisti hefur boðið til kaffiveislu í Birkimel og fengið stuðning frá sveitarfélaginu.
Heimastjórn Patreksfjarðar lýsir ánægju sinni með þetta fyrirkomulag og telur óraunhæft að sveitarfélagið standi að viðburðum á öllum stöðum en bendir sjálfboðaliðum eða félagasamtökum á að þeim er heimilt að standa fyrir viðburðum ef vilji er fyrir hendi.

Samþykkt samhljóða.

Valgerður vék af fundi.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Umsagnarbeiðni breyting á leyfi, Hótel West Patreksfirði

Heimastjórn Patreksfjarðar gerir ekki athugasemd við þessa breytingu á rekstrarleyfi Hótel Vest og samþykkir umsóknina.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Þúfneyri. Umsókn um lóð undir spennistöð.

Þúfneyri, frágangur OV eftir framkvæmdir, staðan og næstu skref.

Heimastjórn Patreksfjarðar lýsir óánægju sinni með frágang OV við spennistöð á Þúfneyri og hvernig umhverfið lítur þar út núna. Í samþykkt heimastjórnar Patreksfjarðar frá 3. fundi 04.09.2024 var sérstaklega tekið fram að frágangur á verkinu eigi að vera snyrtilegur og að honum verði lokið strax að verki loknu. Það hefur ekki gengið eftir ennþá.
Heimastjórn bendir á að vinna við deiliskipulag á Þúfneyri er að hefjast og hvetur OV til að taka þátt í þeirri vinnu þannig að samfella verði í hönnun svæðisins.
Þangað til vinnu við deiliskipulag er lokið er OV hvatt til að lagfæra umhverfi spennistöðvarinnar til bráðabirgða svo umhverfið líti betur út og að ekki sé hætta á að fólk skemmi bíla sína við að komast um eyrina. Slíkar lagfæringar verða að vera unnar í samráði við sveitarfélagið.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Þúfneyri útivistarsvæði

Umfjöllun um deiliskipulag á Þúfneyri og möguleikar á óformlegum vinnuhóp til að undirbúa skipulagslýsingu.

Rætt um undirbúning deiliskipulags fyrir útivistarsvæðið á Þúfneyri. Samkvæmt fjárhagsáætlun Vesturbyggðar 2025 er gert ráð fyrir að unnið verði deiliskipulag fyrir svæðið.
Heimastjórn leggur til að óformlegur vinnuhópur komi að undirbúningi skipulagslýsingar í samvinnu við heimastjórn. Formaður leggur til að fulltrúar hópsins verði Alda Hrannardóttir, Gísli Ásgeirsson og Þórkatla Soffía Ólafsdóttir.
Þá áformar heimastjórn að boða til hugarflugsfundar með íbúum um skipulag og uppbyggingu á Þúfneyri í haust, þar sem íbúar geta komið á framfæri hugmyndum um framtíðarskipulag svæðisins sem nýtast við vinnslu skipulagslýsingar fyrir svæðið.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


5. Straumnes - Kaldbakshús

Húsið Straumnes, framtíðarskipulag lóðar og afdrif hússins.

Heimastjórn ræddi um Straumnes (Kaldbak) á hafnarsvæði Patrekshafnar og það bága ástand sem húsið er í. Að mati heimastjórnar er húsið mikið lýti fyrir þorpið, húsið stendur að einhverju leyti opið og því kann að skapast slysahætta af því.
Heimastjórn hvetur bæjarstjórn til að skoða möguleika þess að auglýsa lóðina til úthlutunar fyrir nýja atvinnustarfsemi gegn því að húsið verði fjarlægt. Að öðrum kosti verði gert ráð fyrir því í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins að húsið verði rifið á næstu árum. Fram að þeim tíma verði tryggt að húsið sé lokað fyrir óviðkomandi og svæðið í kringum húsið hreinsað af hlutum sem þar eiga ekki að vera. Heimastjórn bendir á að fokhætta er af þaki hússins, þar fjúka plötur nánast á hverju ári og nauðsynlegt að bregðast við þeirri hættu strax.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


6. Fjárhagsáætlun 2026

Fjárhagsáætlun 2026, dagsetningar og verktilhögun.

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


7. Heimastjórnir, fundir með íbúum

Úrvinnsla úr ábendingum og málefnum frá íbúafundi og kaffispjalli, áherslur inn í fjárhagsáætlunargerð.

Forgangsröðun og umræðu vísað áfram til ágústfundar heimastjórnar.

Málsnúmer12

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

8. Erindi til heimastjórnar Patreksfjarðar frá árgangi 71

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


9. Listaverk á gafl Verbúðar

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


10. Stekkar gatnahönnun

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:20