Hoppa yfir valmynd

Heimastjórn Patreksfjarðar #17

Fundur haldinn í ráðhúsi Vesturbyggðar, 4. mars 2026 og hófst hann kl. 13:00

Nefndarmenn
Starfsmenn
  • Lilja Magnúsdóttir (LM) ritari heimastjórna

Fundargerð ritaði
  • Lilja Magnúsdóttir ritari

Formaður setti fund og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðið. Svo var ekki og formaður lýsti fundinn lögmætan.

Gunnar Sean Eggertsson boðaði forföll og Smári Gestsson annar varamaður sat fundinn í hans stað.

Almenn erindi

1. Þúfneyri útivistarsvæði

Skipulag á Þúfneyri sem útivistarsvæði

Farið yfir drög að tillögu að deiliskipulagi Þúfneyrar. Heimastjórn lýst vel á hugmyndina.

Málsnúmer6

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Vinnufyrirkomulag heimastjórna í Vesturbyggð

Vinnufyrirkomulag heimastjórna, drög lögð fram til umsagnar

Heimastjórn Patreksfjarðar gerir ekki athugasemd við drögin.

Samþykkt samhljóða

Málsnúmer4

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

3. Hitaveituframkvæmdir Patreksfirði

Lagt fram til kynningar erindi Orkubús Vestfjarða ohf. dags. 12. febrúar 2026. Í erindinu eru kynnt áform Orkubúsins varðandi fyrirhugaðar lagnaleiðir fyrir stofnlagnir hitaveitu á Patreksfirði. Um er að ræða annars vegar safnæð frá borholu undir Geirseyrarmúla að nýrri kyndistöð að Aðalstræti 112 og hinsvegar lagnir þaðan ásamt háspennustrengjum, út Strandgötu og niður á eyrina til þess að endurtengja dreifikerfi hitaveitu og háspennukerfis þegar núverandi kyndistöð verður aflögð.

Framkvæmdin nær yfir mest alla Strandgötu að gatnamótum Bjarkargötu, Urðargötu og Aðalstrætis og hluta af Sigtúni. Erindinu fylgir teikning er sýnir grófa legu lagna. Áformaður verktími verður sumar og haust 2026. Í ljósi þess er jafnframt óskað eftir því að áformaðri malbikun á Strandgötu verði frestað um eitt ár, með það að leiðarljósi að koma í veg fyrir tvíverknað og rask á svæðinu.
Bæjarráð tók erindið fyrir á 48. fundi sínum þann 24. febrúar. Bæjarráð tók vel í erindið og fól bæjarstjóra að vinna málið áfram í samstarfi við Orkubúið.

Lagt fram til kynningar

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Hafnarsvæði Patrekshafnar, ósk um lageringu á steypumöl.

Tímabundin geymsla á steypumöl á hafnarsvæði Patrekshafnar.

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


5. Til umsagnar 322. mál-Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030

Umsögn Vesturbyggðar um samgönguáætlun 2026 - 2040

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


6. Stjórnskipan - skipan í ráð og nefndir

Skipan nýs varamanns samkvæmt niðurstöðum kosninga vorið 2024 í heimastjórn Patreksfjarðar í stað Jóns Árnasonar sem hefur tekið sæti í bæjarstjórn.
Bæjarráð skipaði Smára Gestsson sem annan varamann í heimastjórn Patreksfjarðar í samræmi við niðurstöður kosninga.

Heimastjórn Patreksfjarðar býður Smára Gestsson velkominn til starfa.

Málsnúmer20

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:51