Hoppa yfir valmynd

Heimastjórn Patreksfjarðar #18

Fundur haldinn í ráðhúsi Vesturbyggðar, 8. apríl 2026 og hófst hann kl. 13:00

Nefndarmenn
  • Gunnar Sean Eggertsson (GSE) varaformaður
  • Jenný Lára Magnadóttir (JLM) aðalmaður
  • Smári Gestsson (SG) varamaður
Starfsmenn
  • Lilja Magnúsdóttir (LM) ritari heimastjórna

Fundargerð ritaði
  • Lilja Magnúsdóttir ritari

Varaformaður sem stýrði fundi í forföllum formanns, setti fund og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðið. Svo var ekki og formaður lýsti fundinn lögmætan.

Rebekka Hilmarsdóttir boðaði forföll og Smári Gestsson annar varamaður sat fundinn í hennar stað.

Almenn erindi

1. Ósk um breytingu á afmörkun lóða - Mikladalsvegur 7 og 9, Patreksfirði.

Erindi frá Vegagerðinni og Agli Össurarsyni, dags. 19. mars 2026. Í erindinu er sótt um breytt lóðarmörk við Mikladalsveg 7 og 9 á Patreksfirði þar sem lóðirnar eru stækkaðar. Fyrir umbeðna stækkun var loðin að Mikladalsveg 7 326 m2 en eftir stækkun verður lóðin 755m2, lóðin umhverfis Mikladalsveg 9 var 4.500 m2 en verður 6.053m2. Stækkun lóðar Mikladalsvegar 9 er hluti af áformum Vegagerðarinnar í að bæta aðstöðu við starfsstöðina, en til stendur að reisa skemmu innan lóðarinnar og flytja saltgeymslu á lóðina.

Skipulags- og framkvæmdaráð metur sem svo að málið varði ekki hagsmuni annarra en umsækjenda og sveitarfélagsins sjálfs.

Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við heimastjórn Patreksfjarðar að stækkun lóðanna verði samþykkt.

Heimastjórn Patreksfjarðar samþykkir stækkun lóðanna og felur byggingafulltrúa að ganga frá gögnum þar að lútandi.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Deiliskipulag hafnar- og þjónustusvæðis á Patreksfirði - Breyting.

Tekin fyrir eftir auglýsingu breyting á deiliskipulagi hafnar- og þjónustusvæðis á Patreksfirði. Tillaga var auglýst frá 13.10.2025 - 24.11.2025. Alls bárust 6 umsagnir/athugasemdir á auglýsingatíma frá Náttúruverndarstofnun, Minjastofnun, Slökkviliði Vesturbyggðar, Vegagerðinni, Náttúrufræðistofnun og Hafrannsóknarstofnun. Umsagnir leiddu ekki til breytinga á tillögunni.

Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við heimastjórn Patreksfjarðar að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Heimastjórn Patreksfjarðar samþykkir að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en óskar eftir því að bætt verði við svæði þar sem gert er ráð fyrir skipalyftu á milli eldra stálþils og nýs kants.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer7

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Bjarkargata 9, Patreksfirði. Lóð og byggingaráform

Fyrir liggur erindi frá Oddi Þ. Rúnarssyni, f.h. Skemmunar Vatneyri ehf. dags 20. mars 2026, þar sem óskað er eftir úthlutun lóðar á Patreksfirði, nánar tiltekið á túninu bak við Rauðakrosshúsið, Bjarkargötu 9 til byggingar 6 íbúða húss.

Upphaflega hafði umsækjanda verið úthlutað lóð að Bölum 2 með það að markmiði að reisa þar fjölbýlishús í samstarfi við HMS með stofnframlagi. Undirbúningur verkefnisins var hafinn, þar á meðal vinna við deiliskipulag. Nú hafa forsendur verkefnisins hins vegar breyst og stendur til að reisa minna hús með sex íbúðum í stað stærra fjölbýlishúss.

Að mati umsækjanda er lóðin að Bölum 2 betur til þess fallin að hýsa stærri byggingu. Í framhaldi hefur umsækjandi skoðað aðrar lóðir á Patreksfirði og telur að umrætt svæði við Rauðakrosshúsið henti betur fyrir fyrirhugaða uppbyggingu, bæði með tilliti til stærðar og umfangs byggingar.

Bæjarráð tók umsókn um úthlutun lóðarinnar fyrir á 50. fundi sínum þann 24. mars og bókaði eftirfarandi:

Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðar án auglýsingar skv. reglum Vesturbyggðar að undangenginni skipulagsbreytingu.

Svæðið sem óskað er eftir skipulagsbreytingu á er í dag skilgreint sem opið svæði samkvæmt deiliskipulagi Ofanflóðagarða ofan Urða og Mýra á Patreksfirði og byggðar neðan þeirra og sem miðsvæði í aðalskipulagi Vesturbyggðar 2018-2035. Óskað er eftir að svæðið verði skilgreint sem íbúðalóð í deiliskipulagi svæðisins.

Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirhuguð áform að undangenginni skipulagsbreytingu og vísar málinu áfram til heimastjórnar Patreksfjarðar og leggur til að breytingin verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Túngötu 15, 17 og 19, Þórsgötu 4, 6 og 8, Bjarkargötu 7 og 11. Með breytingunni eru einnig lagfærð lóðamörk aðliggjandi lóða.

Heimastjórn Patreksfjarðar samþykkir tillögu skipulags- og framkvæmdaráðs með fyrirvara um grenndarkynningu fyrir lóðarhöfum Túngötu 15, 17 og 19, Þórsgötu 4, 6 og 8, Bjarkargötu 7 og 11. Með breytingunni eru einnig lagfærð lóðamörk aðliggjandi lóða.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Umsagnarbeiðni breyting á gildandi rekstrarleyfi, Sigtún 4 Patreksfirði

Umsagnarbeiðni frá sýslumanninum á Vestfjörðum vegna breytingar á gildandi rekstrarleyfi gististaðar.

Heimastjórn Patreksfjarðar gerir ekki athugasemdir við breytingu á gildandi rekstrarleyfi fyrir Sigtún 4.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


5. Þúfneyri útivistarsvæði

Lögð var fram tillaga að deiliskipulagi fyrir Þúfneyri, Patreksfirði. Um er að ræða deiliskipulag fyrir útivistarsvæði á Þúfneyri, þar sem gert er ráð fyrir uppbyggingu útivistaraðstöðu. Samkvæmt tillögunni verður heimilt að reisa litlar þjónustubyggingar, auk þess sem gert er ráð fyrir uppbyggingu áningarstaðar, bílastæða og útivistarstíga.

Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við heimastjórn Patreksfjarðar að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Heimastjórn Patreksfjarðar samþykkir að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer8

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


6. Sláttur og hirðing 2026

Sláttur og hirðing á grænum svæðum í Vesturbyggð 2026

Græn svæði á Patreksfirði og sláttur þeirra kynntur fyrir heimastjórn Patreksfjarðar.
Heimastjórn gerir ekki athugasemdir við tillögurnar.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

7. Stofnframlag sveitarfélags íbúðir á Patreksfirði

Bókanir bæjarráðs og bæjarstjórnar Vesturbyggðar vegna stofnframlags til byggingar íbúða á Patreksfirði.

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer5

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


8. Stjórnskipulag í skólum Vesturbyggðar

Breytingar á skipulagi skóla í Vesturbyggð, bókun fjölskylduráðs

Lagt fram til kynningar

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


9. Fjarskiptasamband í Vesturbyggð í ljósi lokunar á 2G og 3G

Bókanir bæjarráðs og almannavarnanefndar vegna fjarskiptasambands í Vesturbyggð í kjölfar lokunar á 2G og 3G.

Lagt fram til kynningar

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


10. Hjúkrunarrými á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða Patreksfirði

Fyrirhuguð hjúkrunarrými á Patreksfirði, bókun fjölskylduráðs

Lagt fram til kynningar

Málsnúmer8

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


11. Flugsamgöngur til Bíldudals

Bókun bæjarráðs vegna áætlunarflugs til Bíldudals.

Lagt fram til kynningar

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


12. Fegrun umhverfis

Fegrun umhverfis í Vesturbyggð, bókun bæjarráðs

Lagt fram til kynningar

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


13. Sólmyrkvi 12 ágúst 2026

Bókun almannavarnanefndar Vesturbyggðar varðandi sólmyrkvann 12.08.2026 og undirbúning fyrir hann.

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer8

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:00