Fundur haldinn í ráðhúsi Vesturbyggðar, 6. maí 2026 og hófst hann kl. 13:00
Nefndarmenn
- Gunnar Sean Eggertsson (GSE) varaformaður
- Jenný Lára Magnadóttir (JLM) aðalmaður
- Rebekka Hilmarsdóttir (RH) formaður
Starfsmenn
- Lilja Magnúsdóttir (LM) ritari heimastjórna
Fundargerð ritaði
- Lilja Magnúsdóttir ritari
Almenn erindi
1. Umsókn um framkvæmdaleyfi. Lagning stofnæðar hitaveitu, Patreksfirði.
Erindi frá Orkubúi Vestfjarða, dagsett 17. apríl 2026. Sótt er um leyfi til að fyrir skurðgreftri, lagningu hitaveitu, fjarskipta- og rafstrengja skv. fyrirliggjandi gögnum. Áætlaður framkvæmdatími er frá maí 2026 og út árið 2026.
Skipulags- og framkvæmdaráð lagði til við heimastjórn Patreksfjarðar á 20. fundi sínum að erindið verði samþykkt og að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir framkvæmdinni. Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir með tilvísan í 8. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og 44.gr skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna ofangreinda umsókn um framkvæmdaleyfi.
Skipulags- og framkvæmdaráð vekur athygli á að á hluta svæðisins hefur ekki farið fram skráning fornleifa.
Heimastjórn Patreksfjarðar samþykkir erindið og að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir framkvæmdinni. Heimastjórn Patreksfjarðar samþykkir að skipulagsfulltrúa verði falið að grenndarkynna ofangreinda umsókn um framkvæmdaleyfi.
Heimastjórn Patreksfjarðar leggur ríka áherslu á að gott upplýsingaflæði verði til íbúa á framkvæmdatíma og þá sérstaklega til þeirra íbúa sem búa við framkvæmdasvæðin. Einnig þarf framkvæmdaaðili að gæta að samráði við landeigendur þar sem hluti af framkvæmdasvæðinu er ekki í eigu sveitarfélagsins.
Heimastjórn Patreksfjarðar leggur mikla áherslu á að frágangur og umgengni á framkvæmdatíma taki mið af umferð og aðstæðum og að lögð verði áhersla á að loka skurðum jafnóðum og hægt er. Einnig verður að tryggja að frágangur að verki loknu verði í samræmi við kröfur sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
2. Umsókn um framkvæmdaleyfi, rannsóknarholur Patreksfirði
Erindi frá Orkubúi Vestfjarða, dagsett 28. mars 2026. Sótt er um leyfi til að bora tvær rannsóknarholur skv. fyrirliggjandi gögnum. Holurnar eru staðsettar við Geirseyrarmúla og Mikladalsveg.
Með samningi dags. 1. september 2023 úthlutaði Vesturbyggð Skógræktarfélagi Patreksfjarðar umræddu svæði undir nytjaskógrækt, í þeim samningi er kveðið á um rétt sveitarfélagsins til annarrar nýtingar sbr. 2. mgr 6. gr. en þar segir að "sveitarfélagi sé heimilt að nýta landið til annars en sem skógræktar- og útivistarsvæði og skal þá viðkomandi aðili bæta allt tjón leigutaka og/eða Skógræktarfélags Íslands bæði vegna gróðursetningar og gerð mannvirkja."
Skipulags- og framkvæmdaráð lagði til við heimastjórn Patreksfjarðar á 20. fundi sínum að erindið verði samþykkt og að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir framkvæmdinni. Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir með tilvísan í 8. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og 44.gr skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna ofangreinda umsókn um framkvæmdaleyfi.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur áherslu á að frágangur og umgengni við og eftir framkvæmdina verði til fyrirmyndar.
Heimastjórn Patreksfjarðar samþykkir erindið og að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir framkvæmdinni. Heimastjórn Patreksfjarðar samþykkir að skipulagsfulltrúa verði falið að grenndarkynna ofangreinda umsókn um framkvæmdaleyfi.
Heimastjórn Patreksfjarðar tekur undir erindi Skógræktarfélags Patreksfjarðar um frágang og mögulegar mótvægisaðgerðir vegna rasks á svæðinu vegna holu B. Einnig bendir heimastjórn á að hola B er rétt við ljósaskilti í Geirseyrarmúla og að nauðsynlegt sé að huga vel að frágangi að borun lokinni. Ljósaskiltið skiptir íbúa Patreksfjarðar miklu máli og nauðsynlegt að hafa það í huga við þessar framkvæmdir.
Heimastjórn Patreksfjarðar lýsir sig tilbúna til að veita upplýsingar um skiltið og aðkomu að því ef þörf krefur og frágang að verki loknu.
Varðandi holu A þá bendir heimastjórn Patreksfjarðar Orkubúi Vestfjarða á minnisvarða sem stendur við Mikladalsveg og er í eigu Kvenfélagsins Sifjar á Patreksfirði. Nauðsynlegt er að eiga samtal við Kvenfélagið Sif um frágang nálægt minnisvarðanum þannig að sómi verði að.
Samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:45
Formaður setti fund og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðið.
Svo var ekki og formaður lýsti fundinn lögmætan.