Fundur haldinn í ráðhúsi Vesturbyggðar, 1. júlí 2026 og hófst hann kl. 13:00
Nefndarmenn
- Edda Bára Árnadóttir (EBA) varamaður
- Jenný Lára Magnadóttir (JLM) aðalmaður
- Lilja Sigurðardóttir Silva (LSS) aðalmaður
Starfsmenn
- Lilja Magnúsdóttir (LM) ritari heimastjórna
Fundargerð ritaði
- Lilja Magnúsdóttir ritari
Almenn erindi
1. Kosning varaformanns í heimastjórnum
Bæjarstjórn skipaði Gunnar Sean Eggertsson formann heimastjórnar Patreksfjarðar. Fulltrúar bæjarstjórnar eru Jenný Lára Magnadóttir, aðalmaður og Þórkatla Soffía Ólafsdóttir til vara.
Kjósa þarf varaformann heimastjórnar.
Jenný Lára stakk upp á Lilju Sigurðardóttur sem varaformanni og það var samþykkt samhljóða. Lilja tók við stjórn fundarins.
2. Tímasetning funda heimastjórna
Ákvörðun um tímasetningu funda heimastjórna.
Fundir heimastjórnar Patreksfjarðar hafa verið fyrsta miðvikudag í mánuði kl. 13.00. Tillaga kom fram um að halda þeim fundartíma.
Samþykkt samhljóða.
3. Breyting á aðalskipulagi Vesturbyggðar - Patrekshöfn.
Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2018 -2035 er varðar þéttbýlisuppdrátt Patreksfjarðar, dagsett 28. maí 2026. Breytingin felst í lítilsháttar stækkun á landnotkunarflokknum sérstök not haf- og strandsvæða (SN1) úr 17,2 ha í 17,4 ha. Breytingin er gerð til þess að fyrirhugaður 180 metra langur viðlegukantur rúmist að öllu leyti innan afmörkunar svæðisins.
Heimastjórn Patreksfjarðar tekur undir mat skipulags- og umhverfisráðs um að fyrirhuguð breyting teljist óveruleg í skilningi 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með vísan til fyrirliggjandi gátlista. Breytingin víkur ekki frá meginstefnu aðalskipulagsins, hefur mjög staðbundið áhrifasvæði og er ekki talin hafa veruleg áhrif á einstaka aðila eða umhverfið.
Heimastjórn Patreksfjarðar samþykkir því að breytingin verði afgreidd sem óveruleg breyting á aðalskipulagi.
Samþykkt samhljóða.
Til kynningar
5. Samþykkt um stjórn Vesturbyggðar
6. Siðareglur kjörinna fulltrúa
7. Vinnufyrirkomulag heimastjórna í Vesturbyggð
8. Fjárhagsáætlun 2027 - 2030
9. Umsókn um framkvæmdaleyfi - Vegagerð Miklidalur.
Afgreiðsla bæjarstjórnar á umsókn Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi vegna styrkingar og endurbyggingar Bíldudalsvegar um Mikladal.
Lagt fram til kynningar
10. Bjarkargata 9, Patreksfirði. Lóð og byggingaráform
Afgreiðsla bæjarstjórnar á breytingu á deiliskipulagi íbúðabyggðar og ofanflóðavarnargarða Urðir-Mýrar.
Lagt fram til kynningar
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:27
Jenný Lára Magnadóttir setti fund og stýrði kosningu varaformanns í fjarveru formanns. Engar athugasemdir voru við fundarboðið og fundarstjóri lýsti fundinn lögmætan.
Gunnar Sean Eggertsson boðaði forföll og Edda Bára Árnadóttir, fyrsti varamaður sat fundinn í hans stað.