Hoppa yfir valmynd

Heimastjórn Patreksfjarðar #21

Fundur haldinn í ráðhúsi Vesturbyggðar, 14. ágúst 2026 og hófst hann kl. 09:00

Nefndarmenn
  • Gunnar Sean Eggertsson (GSE) formaður
  • Jenný Lára Magnadóttir (JLM) aðalmaður
  • Lilja Sigurðardóttir Silva (LSS) varaformaður
Starfsmenn
  • Lilja Magnúsdóttir (LM) ritari heimastjórna
  • Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir (NLS) ritari heimastjórna

Fundargerð ritaði
  • Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir ritari

Formaður setti fund og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðið.
Svo var ekki og formaður lýsti fundinn lögmætan.

Almenn erindi

1. Listaverk á gafl Pakkhússins á Patreksfirði

Lagt fram erindi frá Westfjords Adventures þar sem óskað er eftir leyfi fyrir að fá að setja upp vegglistaverk eftir listamanninn Juan á gafl Pakkhússins á Patreksfirði. Verkið mun snúa að gamla Salthúsinu. Listaverkið yrði vísun í sjávarþorpið Patreksfjörð og kostað af Westfjords Adventures.

Heimastjórn Patreksfjarðar tekur vel í erindið og felur menningar og ferðamálafulltrúa að vinna málið áfram með Westfjords Adventures.

Samþykkt samhljóða

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Þúfneyri útivistarsvæði

Fyrir liggur til endanlegrar afgreiðslu tillaga A að deiliskipulagi fyrir útivistarsvæði á Þúfneyri á Patreksfirði. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á tímabilinu 20. apríl til 1. júní 2026. Á kynningartíma bárust umsagnir frá Minjastofnun Íslands, Náttúrufræðistofnun Íslands, Umhverfisstofnun (Náttúruverndarstofnun) og Slökkviliði Vesturbyggðar.

Í umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 30. júní 2026, er gerð krafa um breytingar á legu stíga og vega til að tryggja vernd fornleifa innan skipulagssvæðisins. Skipulags- og umhverfisráð samþykkti á fundi sínum 22. júlí 2026 tillögu A að deiliskipulagi með þeim breytingum og skilyrðum sem leiða af umsögn Minjastofnunar. Ráðið taldi breytingarnar fela í sér minniháttar lagfæringar sem væru í samræmi við stefnu deiliskipulagsins og því ekki þörf á endurauglýsingu tillögunnar samkvæmt skipulagslögum.

Málinu var vísað til endanlegrar afgreiðslu hjá Heimastjórn Patreksfjarðar.

Heimastjórn Patreksfjarðar samþykkir tillögu A að deiliskipulagi fyrir útivistarsvæði á Þúfneyri með þeim breytingum og skilyrðum sem leiða af umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 30. júní 2026, í samræmi við tillögu skipulags- og umhverfisráðs.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer10

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Aðalstræti 112 - Flokkur 1

Erindi frá Orkubúi Vestfjarða ohf., dags. 29. júní 2026, þar sem óskað er samþykkis byggingaráforma vegna Aðalstrætis 112 á Patreksfirði. Byggingaráformin fela meðal annars í sér breytta notkun hluta húsnæðisins fyrir spennistöð og kyndistöð, breytingar á innra skipulagi, endurnýjun raf- og frárennslislagna, lokun fimm glugga á norðurhlið hússins og uppsetningu tveggja vatnstanka á lóð sunnan við húsið. Gert er ráð fyrir að tankarnir verði 8,6 m á hæð.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkti á fundi sínum þann 22.júlí að byggingaráformin verði grenndarkynnt í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir eigendum og umráðamönnum nærliggjandi fasteigna sem kunna að eiga hagsmuna að gæta.
Áður en grenndarkynning hefst skulu liggja fyrir fullnægjandi gögn sem sýna staðsetningu, hæð, útlit og ásýnd vatnstankanna, ásamt upplýsingum um möguleg áhrif starfseminnar á nærliggjandi byggð.

Heimastjórn Patreksfjarðar tekur undir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs frá 22. júlí 2026 um grenndarkynningu byggingaráforma við Aðalstræti 112.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Heilsustígar

Kynning á stöðu verkefnisins Heilsustígar á Patreksfirði.

Maggý Hjördís Keransdóttir tómstundarfulltrúi sat fundinn undir liðnum.

Heimastjórn Patreksfjarðar leggur til að verkefnið verið unnið áfram í samræmi við aðrar gönguleiðir á svæðinu og hvetur bæjarstjórn til að hafa verkefnið í huga við gerð næstu fjárhagsáætlunar.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


5. Fjárhagsáætlun 2027 - 2030

Fjárhagsáætlun 2027 - 2030, tillögur heimastjórnar Patreksfjarðar

Tillögur til fjárhagsáætlunargerðar ræddar.

Málsnúmer10

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:43