Fundur haldinn í ráðhúsi Vesturbyggðar, 7. október 2026 og hófst hann kl. 13:00
Nefndarmenn
- Gunnar Sean Eggertsson (GSE) formaður
- Jenný Lára Magnadóttir (JLM) aðalmaður
- Lilja Sigurðardóttir Silva (LSS) varaformaður
Starfsmenn
- Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir (NLS) ritari heimastjórna
Fundargerð ritaði
- Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir ritari
Almenn erindi
1. Þúfneyri útivistarsvæði
Tekið fyrir afgreiðslubréf Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS), dags. 9. september 2026, vegna deiliskipulags Þúfneyrar, ásamt leiðréttum skipulagsgögnum.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkti fyrirliggjandi leiðrétt skipulagsgögn á fundi sínum þann 23. september með fyrirvara um jákvæða umsögn Vegagerðarinnar og veitingu undanþágu frá ákvæði skipulagsreglugerðar um fjarlægð mannvirkja frá sjó.
Tillagan hefur verið send Vegagerðinni til umsagnar. Fyrir endanlega afgreiðslu og gildistöku deiliskipulagsins skal liggja fyrir afstaða Vegagerðarinnar til fyrirhugaðrar vegtengingar við Barðastrandarveg og upplýsingar frá stofnuninni sem unnt er að leggja til grundvallar ákvörðun lágmarksgólfkóta mannvirkja á lágsvæðum.
Jafnframt samþykkti ráðið að óska eftir undanþágu ráðherra, sbr. 45. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, frá ákvæði 5.3.2.14. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013, vegna þeirra byggingarreita innan deiliskipulagssvæðisins sem eru nær sjó en 50 m.
Skipulags- og umhverfisráð lagði til við heimastjórn Patreksfjarðar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá og senda undanþágubeiðni ásamt tilheyrandi gögnum og að uppfæra skipulagsgögn í samræmi við umsögn Vegagerðarinnar og niðurstöðu undanþágubeiðninnar. Gefi umsögn Vegagerðarinnar eða afgreiðsla undanþágubeiðninnar tilefni til efnislegra breytinga á tillögunni skal málið tekið fyrir að nýju.
Heimastjórn Patreksfjarðar samþykkir að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá og senda undanþágubeiðni ásamt tilheyrandi gögnum og að uppfæra skipulagsgögn í samræmi við umsögn Vegagerðarinnar og niðurstöðu undanþágubeiðninnar. Gefi umsögn Vegagerðarinnar eða afgreiðsla undanþágubeiðninnar tilefni til efnislegra breytinga á tillögunni skal málið tekið fyrir að nýju.
2. Deiliskipulag hafnar- og þjónustusvæðis á Patreksfirði - Breyting.
Tekin fyrir breyting á deiliskipulagi hafnar- og þjónustusvæðis á Patreksfirði ásamt afgreiðslubréfi Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar og umsögn Veðurstofu Íslands, dags. 21. september 2026.
Í umsögn Veðurstofu Íslands kemur fram að þær hættumatslínur sem sýndar hafa verið á tillöguuppdrætti séu tillögur úr frumathugun vegna ofanflóðavarna og að hættumat fyrir Patreksfjörð hafi ekki verið endurskoðað. Hættumatslínur samkvæmt staðfestu hættumati frá árinu 2003 eru því áfram í gildi.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkti á fundi sínum þann 23. september breytingu á deiliskipulaginu með þeirri breytingu að gildandi hættumatslínur samkvæmt staðfestu hættumati frá 2003 verði sýndar með skýrum hætti á uppdrætti og lagðar til grundvallar skipulagsskilmálum.
Jafnframt er heimilt að sýna tillögur að breyttum hættumatslínum samkvæmt frumathugun Veðurstofu Íslands til skýringar, enda komi skýrt fram á uppdrætti og í greinargerð að um óstaðfestar tillögulínur sé að ræða sem hafi ekki réttaráhrif og verði ekki lagðar til grundvallar leyfisveitingum fyrr en endurskoðað hættumat hefur öðlast gildi.
Ráðið fól Skipulagsfulltrúa að uppfæra skipulagsgögn til samræmis við framangreint og senda þau Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun til yfirferðar og afgreiðslu.
Heimastjórn Patreksfjarðar samþykkir breytingu á deiliskipulaginu.
Til kynningar
3. Ósk um lóð í Mikladal vegna uppbyggingar hestamennsku á Patreksfirði erindi til Bæjarráðs
Lögð fram til kynningar erindi frá Karen Ósk Pétursdóttur dags. 3. september sl. í erindinu er óskað eftir lóð í Mikladal til uppbyggingar hestamennsku á Patreksfirði.
Bæjarráð tók erindið fyrir á 62. fundi sínum þann 8. september sl. Bæjarráð tók vel í erindið og fagnar frumkvæðinu. Bæjarstjóra var falið að fylgja erindinu eftir.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:15
Formaður setti fund og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðið. Svo var ekki og formaður lýsti fundinn lögmætan.