Hoppa yfir valmynd

Heimastjórn Tálknafjarðar #17

Fundur haldinn í fundarsal, Strandgötu 38, Tálknafirði, 5. febrúar 2026 og hófst hann kl. 14:00

Nefndarmenn
  • Gunnþórunn Bender (GB) aðalmaður
  • Jónas Snæbjörnsson (JS) varaformaður
  • Þór Magnússon (ÞM) formaður
Starfsmenn
  • Lilja Magnúsdóttir (LM) ritari heimastjórna
  • Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir (NLS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Fundargerð ritaði
  • Lilja Magnúsdóttir ritari

Formaður setti fund og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðið.
Svo var ekki og formaður lýsti fundinn lögmætan.

Almenn erindi

1. Fjárhagsáætlun 2026 - 2029.

Samþykkt fjárhagsáætlun 2026 - 2029 lögð fram til kynningar.

Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir sat fundinn undir þessum lið og fór yfir afgreidda fjárhagsáætlun Vesturbyggðar 2026-2029 og þau verkefni sem farið verður í á árinu á Tálknafirði.

Málsnúmer27

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Vinnufyrirkomulag heimastjórna í Vesturbyggð

Vinnufyrirkomulag heimastjórna, drög lögð fram til umsagnar

Heimastjórn Tálknafjarðar gerir ekki athugasemdir við drögin.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

3. Orkubú Vestfjarða - Rafmagnsleysi og tjón af því

Svör Orkubús Vestfjarða við bókun heimastjórnar Tálknafjarðar. Einnig eru bókanir bæjarráðs og bæjarstjórnar varðandi málið lagðar fram.

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer5

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Öryggi i fjarskiptum í Tálknafirði

Svör fjarskiptafyrirtækja við bókun heimastjórnar Tálknafjarðar.

Svör raforku- og fjarskiptafyrirtækja lögð fram til kynningar.

Heimastjórn Tálknafjarðar þakkar fyrir svör fyrirtækjanna við bókun heimastjórnar frá 08.01.2026 um rafmagnsleysi og fjarskiptarof í desember. Einnig er gott að sjá að þessi þjónustufyrirtæki hafi tekið sín mál föstum tökum og gert úrbætur.

Heimastjórn leggur mikla áherslu á nauðsyn þess að rafmagn og fjarskipti séu til staðar og virki þar sem bæði íbúar og atvinnulíf byggja allt sitt á því. Varaafl fyrir rafmagn og fjarskipti verður að vera fyrir hendi og í lagi.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


5. Varaafl Tálknafirði - bráðaaðgerð

Lagt fram til kynningar erindi frá Orkubúi Vestfjarða ohf. varðandi bráðabirgðastaðsetningu fyrir gám undir varaafl við Strandgötu á Tálknafirði og ákvörðun þar um.

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:10