Hoppa yfir valmynd

Heimastjórn Tálknafjarðar #18

Fundur haldinn í fundarsal, Strandgötu 38, Tálknafirði, 9. mars 2026 og hófst hann kl. 14:00

Nefndarmenn
  • Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) varamaður
  • Jónas Snæbjörnsson (JS) varaformaður
  • Þór Magnússon (ÞM) formaður
Starfsmenn
  • Lilja Magnúsdóttir (LM) ritari heimastjórna

Fundargerð ritaði
  • Lilja Magnúsdóttir ritari

Formaður setti fund og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðið.
Svo var ekki og formaður lýsti fundinn lögmætan.

Gunnþórunn Bender boðaði forföll og Þórkatla Ólafsdóttir sat fundinn í hennar stað.

Almenn erindi

1. Deiliskipulag Tálknafjarðarhafnar - breyting á lóðum

Tillaga að breytingu deiliskipulags hafnarsvæðis á Tálknafirði. Breytingin fjallar um að skilgreind er ný lóð. Stærð lóðar verður 1086 m2. Innan lóðar er heimilt að reisa byggingu að stærð 455 m2. Vegur á hafnarsvæði er hliðraður aðeins þannig að hann samsvari núverandi legu. Til samræmis er byggingareitur og lóð Strandgötu 29 minnkuð úr 5752 m2 í 4872 m2. Lóð fyrir þvottaplan minnkar úr 553 m2 í 483 m2. Lóðin mun fá staðfangið Hafnarstræti 3.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við heimastjórn Tálknafjarðar að samþykkja grenndarkynningu á viðkomandi breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.

Heimastjórn Tálknafjarðar samþykkir grenndarkynningu á viðkomandi breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Túngata 40a, Tálknafirði. Ósk um stækkun lóðar.

Tekin fyrir eftir grenndarkynningu óveruleg breyting á deiliskipulagi Túnahverfis á Tálknafirði. Grenndarkynningin var auglýst 14. janúar 2026 með athugasemdafresti til 11. febrúar 2026. Engar athugasemdir bárust á kynningartíma.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við heimastjórn Tálknafjarðar að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Heimastjórn Tálknafjarðar samþykkir að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða

Málsnúmer4

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Nýtt byggðarmerki

Merkingar á húsnæði sveitarfélagsins Vesturbyggðar með nýju byggðamerki

Heimastjórn Tálknafjarðar óskar Vesturbyggð til hamingju með hönnunarverðlaun sem nýja byggðamerkið fékk nú nýverið og hvetur bæjarstjórn Vesturbyggðar til að láta merkja byggingar sveitarfélagsins með nýju byggðamerki sem allra fyrst. Einnig leggur heimastjórn til að hugað verði að merkingum við innkomu í byggðakjarna sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Endurskoðun húsnæðisáætlana 2026

Húsnæðisáætlun Vesturbyggðar 2026 og lóðir í Tálknafirði.

Heimastjórn Tálknafjarðar vekur athygli á að í Tálknafirði er fjöldi lóða fyrir íbúðahús á deiliskipulagi sem eru tilbúnar til byggingar strax og hvetur byggingarverktaka til að skoða þessar lóðir með byggingar í huga þar sem skortur er á húsnæði í sveitarfélaginu.
Einnig bendir heimastjórn á að á deiliskipulagi eru nokkrar lóðir fyrir atvinnuhúsnæði.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


5. Tálknafjarðarvegur snjómokstur

Snjómokstur á Tálknafjarðarvegi 617

Rætt um snjómokstursreglur á Tálknafjarðarvegi 617.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

6. Brothættar byggðir - Tálknafjörður

Samþykki stjórnar Byggðastofnunar að taka Tálknafjörð inn í verkefnið Brothættar byggðir.

Heimastjórn Tálknafjarðar fagnar þessum áfanga og vonar að verkefnið gangi vel, Tálknfirðingum til heilla.

Málsnúmer4

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


7. Fjárhagsáætlun 2026 - 2029.

Fyrirhugaðar framkvæmdir í Tálknafirði

Lagt fram til kynningar

Málsnúmer28

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


8. Til umsagnar 322. mál-Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030

Umsögn Vesturbyggðar um samgönguáætlun 2026 - 2040

Lagt fram til kynningar

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:20