Fundur haldinn í fundarsal, Strandgötu 38, Tálknafirði, 9. apríl 2026 og hófst hann kl. 14:00
Nefndarmenn
- Gunnþórunn Bender (GB) aðalmaður
- Jón Aron Benediktsson (JAB) varamaður
- Jónas Snæbjörnsson (JS) varaformaður
- Þór Magnússon (ÞM) formaður
Starfsmenn
- Lilja Magnúsdóttir (LM) ritari heimastjórna
Fundargerð ritaði
- Lilja Magnúsdóttir ritari
Almenn erindi
1. Sláttur og hirðing 2026
Sláttur og hirðing á grænum svæðum í Vesturbyggð 2026
Þór Magnússon lýsti sig vanhæfan til að fjalla um málið og vék af fundi. Jón Aron Benediktsson fyrsti varamaður tók sæti á fundinum í stað Þórs.
Græn svæði á Tálknafirði og sláttur þeirra kynntur fyrir heimastjórn Tálknafjarðar.
Heimastjórn gerir ekki athugasemdir við tillögurnar.
Jón Aron vék af fundi og Þór kom inn aftur.
2. Norður-Botn, Tálknafirði. Nýtt skotíþróttasvæði.
Fulltrúar Skotíþróttafélags Vestfjarða, Valur Smárason og Gísli Rúnar Kristinsson komu inn á fundinn og kynntu hugmyndir um fyrirhugað skotíþróttasvæði í Norðurbotni, Tálknafirði. Málið er á undirbúningsstigi og snýr að mögulegu deiluskipulagi og tengingu við aðalskipulag. Fyrir liggur samningur við landeigendur í Norður-Botni vegna áformanna.
Skipulags- og framkvæmdaráð tekur jákvætt í áformin og vísar málinu áfram til heimastjórnar Tálknafjarðar.
Fulltrúar Skotíþróttafélags Vestfjarða, Valur Smárason og Gísli Rúnar Kristinsson komu inn á fundinn á Teams og kynntu hugmyndir um fyrirhugað skotíþróttasvæði í Norðurbotni, Tálknafirði.
Heimastjórn Tálknafjarðar þakkar fyrir góða kynningu og lýst vel á hugmyndina um skotíþróttasvæði í Norður-Botni. Heimastjórn bendir þó á nauðsyn þess að hafa í huga útivist og aðgengi að náttúru svæðisins við gerð deiliskipulagsins ásamt því að kynna verkefnið mjög vel fyrir íbúum. Einnig verður að tryggja öryggi vel á svæðinu og við aðkomu að svæðinu hvort sem komið er að í dalnum eða ofan af fjalli. Yfir Miðvörðuheiði er ein af þjóðleiðunum milli Tálknafjarðar og Barðastrandar og gönguhópar fara þarna um.
Til kynningar
3. Kópanes, sskr. 1985. Tjón í Tálknafjarðarhöfn 25.feb 2026
Staða björgunar Kópaness í Tálknafjarðarhöfn
Elfar Steinn Karlsson hafnarstjóri kom inn á fundinn og gerði grein fyrir stöðunni á að fjarlægja Kópanesið úr höfninni.
4. Stjórnskipulag í skólum Vesturbyggðar
5. Brothættar byggðir - Tálknafjörður
Bókun bæjarráðs vegna þátttöku Tálknafjarðar í Brothættum byggðum og samningur við Byggðastofnun
Lagt fram til kynningar
6. Öryggi i fjarskiptum í Tálknafirði
Bókun almannavarnanefndar Vesturbyggðar öryggi í fjarskiptum vegna rafmagnsleysis
Lagt fram til kynningar
7. Fjarskiptasamband í Vesturbyggð í ljósi lokunar á 2G og 3G
Bókanir bæjarráðs og almannavarnanefndar vegna fjarskiptasambands í Vesturbyggð í kjölfar lokunar á 2G og 3G.
Lagt fram til kynningar
8. Flugsamgöngur til Bíldudals
9. Hjúkrunarrými á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða Patreksfirði
10. Fegrun umhverfis
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:31
Formaður setti fund og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðið.
Svo var ekki og formaður lýsti fundinn lögmætan.