Hoppa yfir valmynd

Heimastjórn Tálknafjarðar #20

Fundur haldinn í fundarsal, Strandgötu 38, Tálknafirði, 7. maí 2026 og hófst hann kl. 14:00

Nefndarmenn
  • Gunnþórunn Bender (GB) aðalmaður
  • Jónas Snæbjörnsson (JS) varaformaður
  • Jón Aron Benediktsson (JAB) varamaður
Starfsmenn
  • Lilja Magnúsdóttir (LM) ritari heimastjórna

Fundargerð ritaði
  • Lilja Magnúsdóttir ritari

Varaformaður sem stýrði fundi í fjarveru formanns, setti fund og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðið.
Svo var ekki og formaður lýsti fundinn lögmætan.

Þór Magnússon boðaði forföll og Jón Aron Benediktsson fyrsti varamaður sat fundinn í hans stað.

Almenn erindi

1. Deiliskipulag Tálknafjarðarhafnar - breyting á lóðum

Tekin fyrir eftir grenndarkynningu óveruleg breyting á deiliskipulagi Tálknafjarðarhafnar. Grenndarkynningin var auglýst með athugasemdafresti til 9. apríl 2026. Umsagnir/athugasemdir bárust frá Minjastofnun, Vegagerðinni og slökkviliði Vesturbyggðar sem gerðu engar athugasemdir við tillöguna.

Skipulags- og framkvæmdaráð lagði til við Heimastjórn Tálknafjarðar á 20. fundi sínum að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Heimastjórn Tálknafjarðar samþykkir að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur skipulagsfulltrúa að ganga frá málinu.

Samþykkt samhljóða

Málsnúmer4

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Miðtún 3, Tálknafirði. Ósk um breytt lóðarmörk.

Erindi frá Jörgen F. Eiríkssyni, dags. 16.3.2026. Í erindinu er sótt um breytt lóðarmörk við Miðtún 3 á Tálknafirði. Sótt er um stækkun um tæpan 1m til SV.

Skipulags- og framkvæmdaráð lagði til við heimastjórn Tálknafjarðar á 20. fundi sínum að breyting á lóðamörkum verði samþykkt. Þá leggur ráðið til eftirfarandi breytingar á deiliskipulagi svæðisins:

Lóðamörk Hvamms í norðri verði færð að lóðarmörkum Miðtúns 3 og að lóðamörk í vestri verði færð um 2 m í austur að gróðurlínu.

Lóðamörk Laufáss verði færð upp að lóðarmörkum Miðtúns 3 og Miðtúns 1.

Með þessari breytingu er fært inn á skipulag opið svæði milli Miðtúns 3 og 7 en þar undir liggja lagnir úr veitukerfi bæjarins sem einnig mun nýtast sem aðkoma að húsunum í kring.

Jón Aron Benediktsson lýsti yfir vanhæfi sínu til að fjalla um málið þar sem hann er eigandi Hvamms, en óskaði eftir að fá að koma sínum sjónarmiðum á framfæri þar sem hann hafði ekki fengið neinar upplýsingar um þessar breytingar sem húseigandi. Hann lýsti óánægju sinni með að hafa ekki fengið þessar upplýsingar áður en málið er tekið til afgreiðslu.
Jón Aron vék síðan af fundi.

Heimastjórn Tálknafjarðar samþykkir breytingu á lóðamörkum í norður milli Miðtúns 3 og Hvamms ásamt breytingum á lóðamörkum hjá Laufási og Miðtúni 1 samkvæmt beiðni Jörgens og tillögu skipulagsnefndar.
Heimastjórn bendir skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa á að greina eigendum Laufáss og Miðtúns 1 frá þessum breytingum þannig að þeir séu meðvitaðir um þær.
Hins vegar telur heimastjórn breytingu á lóðamörkum Hvamms í vestri um 2 m til austurs að gróðurmörkum ganga of langt þar sem lóðarhafi getur ekki tryggt aðkeyrslu að bílastæði sínu fyrir norðan Hvamm nema með því að fara í jarðvegsskipti á lóðinni og í kjölfarið láta breyta gangstétt við Bugatún. Heimastjórn leggur því til að þinglýst lóðamörk að vestanverðu við Hvamm gildi áfram.
Heimastjórn beinir þeim tilmælum til skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa að skoða þessa breytingartillögu heimastjórnarinnar til að tryggja aðgengi að Hvammi að norðanverðu.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:00