Hoppa yfir valmynd

Heimastjórn Tálknafjarðar #21

Fundur haldinn í fundarsal, Strandgötu 38, Tálknafirði, 2. júlí 2026 og hófst hann kl. 14:00

Nefndarmenn
  • Gunnþórunn Bender (GB) aðalmaður
  • Jón Aron Benediktsson (JAB) aðalmaður
  • Jónas Snæbjörnsson (JS) formaður
Starfsmenn
  • Lilja Magnúsdóttir (LM) ritari heimastjórna

Fundargerð ritaði
  • Lilja Magnúsdóttir ritari

Formaður setti fund og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðið.
Svo var ekki og formaður lýsti fundinn lögmætan.

Almenn erindi

1. Kosning varaformanns í heimastjórnum

Bæjarstjórn skipaði Jónas Snæbjörnsson formann heimastjórnar Tálknafjarðar. Fulltrúar bæjarstjórnar eru Gunnþórunn Bender aðalmaður og Rebekka Hilmarsdóttir til vara.
Kjósa þarf varaformann heimastjórnar.

Formaður stingur upp á Jóni Aroni Benediktssyni sem varaformanni.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Tímasetning funda heimastjórna

Ákvörðun um tímasetningu funda heimastjórna.

Formaður lagði til fundartímann fyrsti fimmtudagur í mánuði og að fundir hefjist kl. 09.00 að morgni.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Brothættar byggðir - Tálknafjörður

Val heimastjórnar Tálknafjarðar á fulltrúum íbúa í verkefnisstjórn Brothættra byggða í Tálknafirði.

Auglýst var eftir áhugasömum íbúum til að gefa kost á sér í verkefnisstjórn Brothættra byggða í Tálknafirði. Fjórir gáfu kost en einn dró umsókn sína til baka.
Heimastjórn Tálknafjarðar tilnefnir þau Nancy Helgadóttur og Gunnlaug B. Jónsson sem fulltrúa íbúa í verkefnisstjórnina. Öðrum umsækjendum er þakkaður áhugi á verkefninu. Ritara var falið að senda umsækjendum svar.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer8

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Kópanes, sskr. 1985. Tjón í Tálknafjarðarhöfn 25.feb 2026

Frágangur og öryggi vegna staðsetningar bátsins Kópaness á geymslusvæði báta við Tálknafjarðarhöfn.

Heimastjórn Tálknafjarðar beinir þeim tilmælum til bæjarráðs að tryggja öryggi við bátinn Kópanes sem stendur á geymslusvæði Tálknafjarðarhafnar. Tryggja þarf stöðugleika bátsins betur en nú er gert og ganga þannig frá honum að ekki sé hætta á að hann velti.
Einnig er brýnt að tæma olíu og önnur spilliefni úr bátnum sem allra fyrst þannig að engin hætta sé á mengun úr skipinu meðan það stendur þarna.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

5. Erindisbréf

Erindisbréf heimastjórnar Tálknafjarðar

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer11

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


6. Samþykkt um stjórn Vesturbyggðar

Samþykktir Vesturbyggðar lagðar fram.

Lagt fram til kynningar

Málsnúmer13

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


7. Siðareglur kjörinna fulltrúa

Siðareglur Vesturbyggðar fyrir kjörna fulltrúa lagðar fram.

Lagt fram til kynningar

Málsnúmer9

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


8. Vinnufyrirkomulag heimastjórna í Vesturbyggð

Vinnufyrirkomulag og vinnureglur heimastjórna í Vesturbyggð.

Lagt fram til kynningar

Málsnúmer7

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


9. Fjárhagsáætlun 2027 - 2030

Dagsetningar í fjárhagsáætlunarvinnu fyrir 2027-2030

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


10. Umsókn um framkvæmdaleyfi - Vegagerð Miklidalur.

Afgreiðsla bæjarstjórnar á umsókn Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi vegna styrkingar og endurbyggingar Bíldudalsvegar um Mikladal.

Lagt fram til kynningar

Málsnúmer4

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


11. Samstarfssamningur við Tálknafjör

Samningur Vesturbyggðar við Tálknafjör, bæjarhátíð í Tálknafirði.

Lagt fram til kynningar

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:42