Hoppa yfir valmynd

Heimastjórn Tálknafjarðar #24

Fundur haldinn í fundarsal, Strandgötu 38, Tálknafirði, 5. nóvember 2026 og hófst hann kl. 09:00

Nefndarmenn
  • Gunnþórunn Bender (GB) aðalmaður
  • Jón Aron Benediktsson (JAB) aðalmaður
  • Jónas Snæbjörnsson (JS) formaður
  • Thelma Dögg Theodórsdóttir (TDT) varamaður
Starfsmenn
  • Eygló Hreiðarsdóttir (EH) ritari heimastjórna

Fundargerð ritaði
  • Eygló Hreiðarsdóttir Ritari

Almenn erindi

1. Framtíðarsamkomulag um vatnsafhendingu til Pollsins í Tálknafirði

Lagt fram erindi frá Jónasi Snæbjörnssyni formanni Pollvina með beiðni um framtíðarsamkomulag um vatnsafhendingu til Pollsins í Tálknafirði

Heimastjórn tekur jákvætt í málið, en áréttar mikivægi þess að Pollurinn sé opinn almenningi og það sé tryggt til frambúðar.

Heimastjórn vísar málinu til bæjarráðs til nánari skoðunar.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Norður-Botn, Tálknafirði. Nýtt skotíþróttasvæði.

Lögð fram skipulags- og matslýsing, dags. 15. október 2026, vegna fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Tálknafjarðarhrepps 2019?2039 og deiliskipulagi Norður-Botns í Tálknafirði.

Breytingarnar eru unnar vegna áforma Skotíþróttafélags Vestfjarða um uppbyggingu skotíþróttasvæðis í Botnsdal, austan við seiðaeldisstöð Arctic Fish. Fyrirhugað er að skilgreina nýtt íþróttasvæði í aðalskipulagi og breyta gildandi deiliskipulagi þannig að heimilt verði að koma þar fyrir leirdúfu- og riffilskotvöllum ásamt tilheyrandi öryggissvæðum, aðkomu og aðstöðuhúsi.

Við áframhaldandi skipulagsvinnu verður meðal annars lagt mat á hljóðvist, mögulega mengun vegna skotstarfsemi, áhrif á náttúrufar og vatnafar Botnsár og samspil við aðra landnotkun á svæðinu.

Skipulags- og umhverfisráð fjallaði um málið á fundi sínum 28. október 2026 og tók jákvætt í fyrirhugaða skipulagsvinnu. Ráðið samþykkti skipulags- og matslýsinguna fyrir sitt leyti og lagði til við bæjarstjórn Vesturbyggðar og heimastjórn Tálknafjarðar að hún yrði samþykkt til kynningar og umsagnar í samræmi við skipulagslög.

Heimastjórn Tálknafjarðar hefur farið yfir framlagða skipulags- og matslýsingu og afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs frá 28. október 2026.

Heimastjórnin tekur jákvætt í fyrirhugaða skipulagsvinnu og samþykkir skipulags- og matslýsinguna fyrir sitt leyti. Heimastjórnin leggur til við bæjarstjórn Vesturbyggðar að lýsingin verði samþykkt til kynningar og umsagnar í samræmi við 1. mgr. 30. gr. og 40. gr., sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer4

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

3. Íbúaþing Tálknafirði niðurstöður frá þinginu

Bergdís Þrastardóttir verkefnastjór brothættar byggðar á Tálknafirði ætlar að koma og kynna niðurstöður frá íbúaþinginu sem var haldið dagan 30 og 31 október 2026

Bergdís kom og fór yfir niðurstöður frá íbúaþinginu. Það sköpuðust góðar og jákvæðar umræður. Heimastjórn þakkar fyrir góða yfirferð. Bergdís mætir á næsta fund og fer yfir drög að aðgerðaráætlun.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:15