Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 28. maí 2025 og hófst hann kl. 09:00
Nefndarmenn
- Jóhann Pétur Ágústsson (JPÁ) formaður
- Jóhann Örn Hreiðarsson (JÖH) aðalmaður
- Ólafur Byron Kristjánsson (ÓBK) aðalmaður
- Jenný Lára Magnadóttir (JLM) varamaður
- Steinunn Sigmundsdóttir (SS) varaformaður
Starfsmenn
- Elfar Steinn Karlsson (ESK) byggingarfulltrúi
- Óskar Örn Gunnarsson (ÓÖG) skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði
- Elfar Steinn Karlsson byggingarfulltrúi
Almenn erindi
1. Breiðavík. Ósk um stofnun lóðar - veðursjá.
Erindi frá Hótel Breiðavík ehf. Í Í erindinu er óskað eftir stofnun 2500m2 lóðar á Brunnahæð úr landi Breiðavíkur, L139860. Erindinu fylgir drög að merkjalýsingu unnin af Verkís.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps að stofnun lóðarinnar verði samþykkt. Skipulags- og framkvæmdaráð metur sem svo að heimilt sé að falla frá grenndarkynningu þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélags og umsækjenda, sbr. 3. mgr 44. gr skipulagslaga nr. 123/2010.
2. Dalbraut 34, Bíldudal. Ósk um endurnýjun lóðarleigusamnings
Erindi frá Ólafi J. Högnasyni, dags. 19. mars 2025. Í erindinu er óskað eftir endurnýjun lóðarleigusamnings fyrir Dalbraut 34 á Bíldudal.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir stækkun lóðar og nýjan lóðarleigusamning.
3. Asparhlíð, leyfi fyrir gestahúsi
Erindi frá Jóni V. Aðalsteinssyni, dags. 25. apríl 2025. Í erindinu er sótt um leyfi fyrir 25,5 m2 gestahúsi við Asparhlíð, L139793, Barðaströnd. Erindinu fylgir samþykki fulltrúa landeigenda, Ríkiseigna.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps að samþykkja byggingaráformin með fyrirvara um jákvæða niðurstöðu grenndarkynningar, en grenndarkynna þarf áformin fyrir eigendum aðliggjandi frístundahúsa.
4. Búðeyri Tálknafirði. Ósk um heimild til niðurrifs.
Erindi frá Árna G. Bárðarsyni, dags. 22. maí 2025. Í erindinu er sótt um leyfi til niðurrifs á matshlutum 02,03 og 04 á Búðeyri, L140427, Tálknafirði. Matshlutarnir eru eldisker sem byggð voru 1987.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir erindið, förgun skal vera samkvæmt reglum.
5. Stekkar 20 Patreksfirði. Staðfesting lóðarmarka.
Erindi frá Jan Jodas, dags. 28.apríl 2025. Í erindinu er óskað eftir staðfestingu sveitarfélagsins á lóðarmörkum Stekka 20, Patreksfirði sem er eignarlóð. Erindinu fylgir afmörkun lóðarinnar.
Skipulags- og framkvæmdaráð staðfestir lóðarmörkin.
Til kynningar
6. Skógar og lýðheilsa ályktun aðalfundar Skógfræðingafélags Íslans
Lögð fram til kynningar ályktun aðalfundar Skógfræðingafélags Íslands frá 25. mars síðastliðnum.
Aðalfundur Skógfræðingafélags Íslands haldinn á Hallormsstað 25. mars 2025 beinir
þeirri ábendingu til sveitarstjórna í landinu að græn svæði í þéttbýli eru mikilvæg fyrir lýðheilsu fólks og vill jafnframt minna á mikilvægi þess að sveitarfélög nýti sér sérþekkingu skógfræðinga til að styðja við uppbyggingu grænna svæða í þéttbýli.
Skógfræðingafélag Íslands lýsir sig hér með tilbúið til að ræða við og fræða
sveitarstjórnir og þá sem fara með umhverfismál hjá sveitarfélögum um uppbyggingu
og umhirðu skógarsvæða í og við þéttbýli íbúum til heilla.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:40
Óskar Örn Gunnarsson var viðstaddur fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.