Hoppa yfir valmynd

Skipulags- og framkvæmdaráð #16

Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 18. desember 2025 og hófst hann kl. 09:00

Nefndarmenn
  • Jóhann Pétur Ágústsson (JPÁ) formaður
  • Jóhann Örn Hreiðarsson (JÖH) aðalmaður
  • Ólafur Byron Kristjánsson (ÓBK) aðalmaður
  • Jenný Lára Magnadóttir (JLM) varamaður
Starfsmenn
  • Elfar Steinn Karlsson (ESK) byggingarfulltrúi
  • Óskar Örn Gunnarsson (ÓÖG) skipulagsfulltrúi

Fundargerð ritaði
  • Elfar Steinn Karlsson byggingarfulltrúi

Óskar Örn skipulagsfulltrúi var viðstaddur fundinn í gegnum fjarfundarbúnað. Aðalsteinn Magnússon forfallaðist og ekki reyndist unnt að boða varamann.

Almenn erindi

1. Duftgarður

Lögð fra beiðni frá Sóknarnefnd Stóra- Laugardalssóknar um undirbúning að duftgarði í Tálknafirði dags. 31. október 2025.

Samkvæmt deiliskipulagi Þinghóls sem samþykkt var í heimatjórn Tálknafjarðar þann 3. apríl 2025 er gert ráð fyrir 0,41 ha kirkjugarði norðan við kirkjuna.Jenný Lára vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Skipulags- og framkvæmdaráð tekur jákvætt í erindið og vísar því áfram til bæjarráðs Vesturbyggðar.

Jenný Lára kom aftur inn á fundinn.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Ljósleiðari Tálknafirði, ósk um framkvæmdaleyfi

Tekin fyrir umsókn Mílu um ljósleiðaravæðingu á Tálknafirði, dagsett 26. nóvember 2025. Með umsókninni fylgir teikningasett þar sem sett er fram áætlun um lagningu ljósleiðara um þéttbýlið.

Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við heimastjórn Tálknafjarðar að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Strandgata 29, Tálknafirði. Umsókn um byggingarlóð - iðnaðarhús.

Erindi frá Guðjóni Indriðasyni f.h. óstofnaðs félags, dags. 10. desember 2025. Í erindinu er sótt um byggingarlóðina að Strandgötu 29, Tálknafirði. Samkvæmt umsókninni er áformað að byggja 420m2 stálgrindarhús. Lóðin er 5752 m2 iðnaðar og athafnalóð við hafnarsvæðið á Tálknafirði.

Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir að leigja út hluta byggingarlóðarinnar að Strandgötu 29 á Tálknafirði.

Í ljósi þess að lóðin er 5752 m2 felur skipulags- og framkvæmdaráð skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna tillögu að skiptingu lóðar í tvo reiti.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Túngata 40a, Tálknafirði. Ósk um stækkun lóðar.

Tekin fyrir umsókn Lilju Magnúsdóttur, dagsett 8. desember 2025. Í umsókninni er sótt um stækkun lóðarinnar Túngötu 40a til austurs þannig að pláss verði fyrir bílastæði við hlið hússins austan við inngang íbúðar.

Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við heimastjórn Tálknafjarðar að samþykkt verði að stækka lóðina til austurs svo lóðin rúmi einnig bílastæði að undangenginni grenndarkyningu. Gera þarf óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir svæðið. Grenndarkynna skal fyrir Túngötu 29 og 31 sem og Móatún 15 og 17.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


5. Lóðamál við Lönguhlíð 1,3 og 5 á Bíldudal

Á 15. fundi skipulags- og framkvæmdaráðs var erindið tekið fyrir og byggingarfulltrúa falið að vinna að málinu áfram. Byggingarfulltrúi og formaður skipulags- og framkvæmdaráðs funduðu með lóðarhafa að Lönguhlíð 5 þann 17. desember.

Skoðaðar verða þær hugmyndir sem komu fram á fundi með lóðarhafa Lönguhlíðar 5 og unnið áfram að málinu.

Málsnúmer4

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


6. Járnhóll 13, Bíldudalur - ósk um breytingu á skipulagi

Tekin fyrir umsókn Láss ehf, dagsett 25. nóvember 2025. Í umsókninni er sótt um stækkun lóðar Járnhóls 13 (L231108) og færslu á byggingareit.

Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir áformin og telur að um óveruleg frávik sé að ræða og hagsmunir nágranna skerðist í engu og að breytingin sé undanþegin grenndarkynningu, sbr. 3. mgr. 44. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 enda varðar breytingin ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins sem landeiganda og lóðarumsækjanda. Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við heimastjórn Arnarfjarðar að málið verði samþykkt.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


7. Hafnarbakki 12, Patreksfirði. Byggingaráform

Tekin fyrir umsókn Héðins Hákonarsonar, dagsett 16. desember 2025. Sótt er um að setja upp tæknirými við austurgafl Hafnarbakka 12 sem stæði 2 m út fyrir byggingareit og yrði 7 m langt.

Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við heimastjórn Patreksfjarðar að áformin verði samþykkt. Ráðið telur að áformin séu þess eðlis að þau séu undanþegin grenndarkynningu þar sem um óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn, sbr. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


8. Umsókn um lóðarúthlutun fyrir hraðhleðslustöðvar

Erindi frá Instavolt Iceland ehf, dags. 24. september 2025. Í erindinu er óskað eftir vilyrði fyrir úthlutun lóða undir hleðslustöðvar fyrir rafbíla á Patreksfirði, Bíldudal og Tálknafirði.

Skipulags- og framkvæmdaráð tekur jákvætt í erindið og felur byggingarfulltrúa að skoða hentugar staðsetningar í samráði við umsækjenda.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00