Hoppa yfir valmynd

Skipulags- og framkvæmdaráð #18

Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 25. febrúar 2026 og hófst hann kl. 09:00

Nefndarmenn
Starfsmenn
  • Elfar Steinn Karlsson (ESK) byggingarfulltrúi
  • Óskar Örn Gunnarsson (ÓÖG) skipulagsfulltrúi

Fundargerð ritaði
  • Elfar Steinn Karlsson byggingarfulltrúi

Aðalsteinn Magnússon og Freyja Pedersen boðuðu forföll og ekki reyndist unnt að boða varamenn. Óskar Örn Gunnarsson var viðstaddur fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.

Almenn erindi

1. Túngata 40a, Tálknafirði. Ósk um stækkun lóðar.

Tekin fyrir eftir grenndarkynningu óveruleg breyting á deiliskipulagi Túnahverfis á Tálknafirði. Grenndarkynningin var auglýst 14. janúar 2026 með athugasemdafresti til 11. febrúar 2026. Engar athugasemdir bárust á kynningartíma.

Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við heimastjórn Tálknafjarðar að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Hitaveituframkvæmdir Patreksfirði

Lagt fram til kynningar erindi Orkubús Vestfjarða ohf. dags. 12. febrúar 2026. Í erindinu eru kynnt áform Orkubúsins varðandi fyrirhugaðar lagnaleiðir fyrir stofnlagnir hitaveitu á Patreksfirði. Um er að ræða annars vegar safnæð frá borholu undir Geirseyrarmúla að nýrri kyndistöð að Aðalstræti 112 og hinsvegar lagnir þaðan ásamt háspennustrengjum, út Strandgötu og niður á eyrina til þess að endurtengja dreifikerfi hitaveitu og háspennukerfis þegar núverandi kyndistöð verður aflögð.

Framkvæmdin nær yfir mest alla Strandgötu að gatnamótum Bjarkargötu, Urðargötu og Aðalstrætis og hluta af Sigtúni. Erindinu fylgir teikning er sýnir grófa legu lagna.

Áformaður verktími verður sumar og haust 2026. Í ljósi þess er jafnframt óskað eftir því að áformaðri malbikun á Strandgötu verði frestað um eitt ár, með það að leiðarljósi að koma í veg fyrir tvíverknað og rask á svæðinu.

Bæjarráð tók erindið fyrir á 48. fundi sínum þann 24. febrúar. Bæjarráð tók vel í erindið og fól bæjarstjóra að vinna málið áfram í samstarfi við Orkubúið.

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Deiliskipulag Tálknafjarðarhafnar - breyting á lóðum

Tekin fyrir tillaga að breytingu deiliskipulags hafnarsvæðis á Tálknafirði. Breytingin fjallar um að skilgreind er ný lóð. Stærð lóðar verður 1086 m2. Innan lóðar er heimilt að reisa byggingu að stærð 455 m2. Vegur á hafnarsvæði er hliðraður aðeins þannig að hann samsvari núverandi legu. Til samræmis er byggingareitur og lóð Strandgötu 29 minnkuð úr 5752 m2 í 4872 m2. Lóð fyrir þvottaplan minnkar úr 553 m2 í 483 m2. Lóðin mun fá staðfangið Hafnarstræti 3.

Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við heimastjórn Tálknafjarðar að samþykkja grenndarkynningu á viðkomandi breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00