Hoppa yfir valmynd

Skipulags- og framkvæmdaráð #19

Fundur haldinn í fjarfundi, 27. mars 2026 og hófst hann kl. 09:00

Nefndarmenn
  • Jenný Lára Magnadóttir (JLM) varamaður
  • Freyja Ragnarsdóttir Pedersen (FRP) aðalmaður
  • Jóhann Pétur Ágústsson (JPÁ) formaður
  • Jóhann Örn Hreiðarsson (JÖH) aðalmaður
  • Steinunn Sigmundsdóttir (SS) aðalmaður
Starfsmenn
  • Elfar Steinn Karlsson (ESK) byggingarfulltrúi
  • Geir Gestsson (GG) sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
  • Óskar Örn Gunnarsson (ÓÖG) skipulagsfulltrúi

Fundargerð ritaði
  • Elfar Steinn Karlsson byggingarfulltrúi

Almenn erindi

1. Norður-Botn, Tálknafirði. Nýtt skotíþróttasvæði.

Fulltrúar Skotíþróttafélags Vestfjarða, Valur Smárason og Gísli Rúnar Kristinsson komu inn á fundinn og kynntu hugmyndir um fyrirhugað skotíþróttasvæði í Norðurbotni, Tálknafirði. Málið er á undirbúningsstigi og snýr að mögulegu deiluskipulagi og tengingu við aðalskipulag. Fyrir liggur samningur við landeigendur í Norður-Botni vegna áformanna.

Skipulags- og framkvæmdaráð tekur jákvætt í áformin og vísar málinu áfram til heimastjórnar Tálknafjarðar.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Ósk um breytingu á afmörkun lóða - Mikladalsvegur 7 og 9, Patreksfirði.

Erindi frá Vegagerðinni og Agli Össurarsyni, dags. 19. mars 2026. Í erindinu er sótt um breytt lóðarmörk við Mikladalsveg 7 og 9 á Patreksfirði þar sem lóðirnar eru stækkaðar. Fyrir umbeðna stækkun var loðin að Mikladalsveg 7 326 m2 en eftir stækkun verður lóðin 755m2, lóðin umhverfis Mikladalsveg 9 var 4.500 m2 en verður 6.053m2. Stækkun lóðar Mikladalsvegar 9 er hluti af áformum Vegagerðarinnar í að bæta aðstöðu við starfsstöðina, en til stendur að reisa skemmu innan lóðarinnar og flytja saltgeymslu á lóðina.

Skipulags- og framkvæmdaráð metur sem svo að málið varði ekki hagsmuni annarra en umsækjenda og sveitarfélagsins sjálfs.

Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við heimastjórn Patreksfjarðar að stækkun lóðanna verði samþykkt.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Miðtún 3, Tálknafirði. Ósk um breytt lóðarmörk.

Erindi frá Jörgen F. Eiríkssyni, dags. 16.3.2026. Í erindinu er sótt um breytt lóðarmörk við Miðtún 3 á Tálknafirði. Sótt er um stækkun um tæpan 1m til SV. Fyrir breytingu var lóðin 1394 m2 en eftir stækkun verður lóðin 1303m2. Stækkunin er í samræmi við skipulag.Jenný Lára Magnadóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Skipulags- og framkvæmdaráð frestar afgreiðslu málsins og felur byggingarfulltrúa að skoða samræmi lóða á svæðinu við gildandi deiliskipulag og kynna fyrir ráðinu á næsta fundi.

Jenný Lára Magnadóttir kom aftur inn á fundinn.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Þúfneyri útivistarsvæði

Lögð var fram tillaga að deiliskipulagi fyrir Þúfneyri, Patreksfirði. Um er að ræða deiliskipulag fyrir útivistarsvæði á Þúfneyri, þar sem gert er ráð fyrir uppbyggingu útivistaraðstöðu. Samkvæmt tillögunni verður heimilt að reisa litlar þjónustubyggingar, auk þess sem gert er ráð fyrir uppbyggingu áningarstaðar, bílastæða og útivistarstíga.

Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við heimastjórn Patreksfjarðar að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer7

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


5. Brjánslækur - aðalskipulagsbreyting

Tekin fyrir óveruleg breyting á aðalskipulagi Vesturbyggðar 2018-2035. Breytingin var kynnt frá 17.2.2026 til 10.3.2026 þar sem óskað var eftir umsögn Framkvæmdasýslunar-Ríkiseigna. Fyrir liggur einnig umsögn frá Minjastofnun Íslands.Jóhann Pétur Ágústsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 36 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 enda liggur fyrir samþykki Framkvæmdasýslunnar-Ríkiseigna.

Jóhann Pétur Ágústsson kom aftur inn á fundinn.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


6. Bjarkargata 9, Patreksfirði. Lóð og byggingaráform

Fyrir liggur erindi frá Oddi Þ. Rúnarssyni, f.h. Skemmunar Vatneyri ehf. dags 20. mars 2026, þar sem óskað er eftir úthlutun lóðar á Patreksfirði, nánar tiltekið á túninu bak við Rauðakrosshúsið, Bjarkargötu 9 til byggingar 6 íbúða húss.

Upphaflega hafði umsækjanda verið úthlutað lóð að Bölum 2 með það að markmiði að reisa þar fjölbýlishús í samstarfi við HMS með stofnframlagi. Undirbúningur verkefnisins var hafinn, þar á meðal vinna við deiliskipulag. Nú hafa forsendur verkefnisins hins vegar breyst og stendur til að reisa minna hús með sex íbúðum í stað stærra fjölbýlishúss.

Að mati umsækjanda er lóðin að Bölum 2 betur til þess fallin að hýsa stærri byggingu. Í framhaldi hefur umsækjandi skoðað aðrar lóðir á Patreksfirði og telur að umrætt svæði við Rauðakrosshúsið henti betur fyrir fyrirhugaða uppbyggingu, bæði með tilliti til stærðar og umfangs byggingar.

Bæjarráð tók umsókn um úthlutun lóðarinnar fyrir á 50. fundi sínum þann 24. mars og bókaði eftirfarandi:

Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðar án auglýsingar skv. reglum Vesturbyggðar að undangenginni skipulagsbreytingu.

Svæðið sem óskað er eftir skipulagsbreytingu á er í dag skilgreint sem opið svæði samkvæmt deiliskipulagi Ofanflóðagarða ofan Urða og Mýra á Patreksfirði og byggðar neðan þeirra og sem miðsvæði í aðalskipulagi Vesturbyggðar 2018-2035. Óskað er eftir að svæðið verði skilgreint sem íbúðalóð í deiliskipulagi svæðisins.

Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirhuguð áform að undangenginni skipulagsbreytingu og vísar málinu áfram til heimastjórnar Patreksfjarðar og leggur til að breytingin verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Túngötu 15, 17 og 19, Þórsgötu 4, 6 og 8, Bjarkargötu 7 og 11. Með breytingunni eru einnig lagfærð lóðamörk aðliggjandi lóða.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


7. Brjánslækur 1, deiliskipulag ferðaþjónusta.

Tekin fyrir tillaga að deiliskipulagi fyrir Brjánslæk 1 ferðaþjónusta. Innan svæðisins verði heimilt að reisa 11 hús til gistingar, hvert um sig á bilinu 40-100 m², auk eins þjónustuhúss allt að 150 m² að stærð. Hámarksbyggingarmagn innan lóðar er samtals 1.000 m².Jóhann Pétur Ágústsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 1. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Jóhann Pétur Ágústsson kom aftur inn á fundinn.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


8. Deiliskipulag hafnar- og þjónustusvæðis á Patreksfirði - Breyting.

Tekin fyrir eftir auglýsingu breyting á deiliskipulagi hafnar- og þjónustusvæðis á Patreksfirði. Tillaga var auglýst frá 13.10.2025 - 24.11.2025. Alls bárust 6 umsagnir/athugasemdir á auglýsingatíma frá Náttúruverndarstofnun, Minjastofnun, Slökkviliði Vesturbyggðar, Vegagerðinni, Náttúrufræðistofnun og Hafrannsóknarstofnun. Umsagnir leiddu ekki til breytinga á tillögunni.

Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við heimastjórn Patreksfjarðar að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer6

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:10