Hoppa yfir valmynd

Skipulags- og framkvæmdaráð #20

Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 22. apríl 2026 og hófst hann kl. 09:00

Nefndarmenn
  • Aðalsteinn Magnússon (AM) aðalmaður
  • Freyja Ragnarsdóttir Pedersen (FRP) aðalmaður
  • Jóhann Pétur Ágústsson (JPÁ) formaður
  • Jóhann Örn Hreiðarsson (JÖH) aðalmaður
  • Steinunn Sigmundsdóttir (SS) aðalmaður
Starfsmenn
  • Elfar Steinn Karlsson (ESK) byggingarfulltrúi
  • Geir Gestsson (GG) sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
  • Óskar Örn Gunnarsson (ÓÖG) skipulagsfulltrúi

Fundargerð ritaði
  • Elfar Steinn Karlsson byggingarfulltrúi

Óskar Örn Gunnarsson var viðstaddur í gegnum fjarfundarbúnað.

Almenn erindi

1. Deiliskipulag Tálknafjarðarhafnar - breyting á lóðum

Tekin fyrir eftir grenndarkynningu óveruleg breyting á deiliskipulagi Tálknafjarðarhafnar. Grenndarkynningin var auglýst með athugasemdafresti til 9. apríl 2026. Umsagnir/athugasemdir bárust frá Minjastofnun, Vegagerðinni og slökkviliði Vesturbyggðar sem gerðu engar athugasemdir við tillöguna.Aðalsteinn Magnússon vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við Heimastjórn Tálknafjarðar að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Aðalsteinn Magnússon kom aftur inn á fundinn.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Miðtún 3, Tálknafirði. Ósk um breytt lóðarmörk.

Tekið fyrir aftur erindi Jörgens F. Eiríkssonar sem frestað var á 19. fundi skipulags- og framkvæmdaráðs.

Byggingarfulltrúi fór yfir ósamræmi á milli þinglýstra lóðamarka og gildandi deiliskipulags.

Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við heimastjórn Tálknafjarðar að breyting á lóðamörkum verði samþykkt. Þá leggur ráðið til eftirfarandi breytingar á deiliskipulagi svæðisins:

Lóðamörk Hvamms í norðri verði færð að lóðarmörkum Miðtúns 3 og í austri verði lóðamörkin færð um 2 m að gróðurlínu.

Lóðamörk Laufáss verði færð upp að lóðarmörkum Miðtúns 3 og Lækjargötu 1.

Með þessari breytingu er fært inn á skipulag opið svæði milli Miðtúns 3 og 5 en þar undir liggja lagnir úr veitukerfi bæjarins sem einnig mun nýtast sem aðkoma að húsunum í kring.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Umsókn um framkvæmdaleyfi, rannsóknarholur Patreksfirði

Erindi frá Orkubúi Vestfjarða, dagsett 28. mars 2026. Sótt er um leyfi til að bora tvær rannsóknarholur skv. fyrirliggjandi gögnum. Holurnar eru staðsettar við Geirseyrarmúla og Mikladalsveg.

MEð samningi dags. X úthlutaði Vesturbyggð Skógræktarfélagi Patreksfjarðar umræddu svæði undir nytjaskógrækt, í þeim samningi er kveðið á um rétt sveitarfélagsins til annarrar nýtingar sbr. 2. mgr 6. gr. en þar segir að "sveitarfélagi sé heimilt að nýta
landið til annars en sem skógræktar- og útivistarsvæði og skal þá viðkomandi aðili bæta allt tjón leigutaka og/eða Skógræktarfélags ?slands bæði vegna gróðursetningar og gerð mannvirkja."

Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við heimastjórn Patreksfjarðar að erindið verði samþykkt og að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir framkvæmdinni. Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir með tilvísan í 8. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og 44.gr skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna ofangreinda umsókn um framkvæmdaleyfi.

Skipulags- og framkvæmdaráð leggur áherslu á að frágangur og umgengni við og eftir framkvæmdina verði til fyrirmyndar.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Umsókn um framkvæmdaleyfi. Lagning stofnæðar hitaveitu, Patreksfirði.

Erindi frá Orkubúi Vestfjarða, dagsett 17. apríl 2026. Sótt er um leyfi til að fyrir skurðgreftri, lagningu hitaveitu, fjarskipta- og rafstrengja skv. fyrirliggjandi gögnum. Áætlaður framkvæmdatími er frá maí 2026 og út árið 2026.

Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við heimastjórn Patreksfjarðar að erindið verði samþykkt og að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir framkvæmdinni. Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir með tilvísan í 8. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og 44.gr skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna ofangreinda umsókn um framkvæmdaleyfi.

Skipulags- og framkvæmdaráð vekur athygli á að á hluta svæðisins hefur ekki farið fram skráning fornleifa.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


5. Brjánslækur 1 139787 - Umfangsflokkur 1

Erindi frá Náttúruverndarstofnun, dagsett 17.mars 2026. Í erindinu er sótt um samþykki byggingaráforma vegna salernisaðstöðu við Þingmannaá, Vatnsfirði. Húsið er almenningssalerni / snyrtingar úr færanlegum húseiningum sem reisa á við bílastæði hjá Þingmannaá. Húsið er óupphitað, enda einungis opið hluta úr ári eða yfir sumartíma og gengið frá og lokað yfir vetrartímann. Heildarstærð 25 m2.

Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við heimastjórn fyrrum Barðarstrandarhrepps og Rauðasandshrepps að erindið verði samþykkt með fyrirvara um samþykki ábúenda og metur sem svo að framkvæmdin varði ekki hagsmuni annarra en umsækjenda og sveitarfélagsins sjálfs og sé því undanþegið grenndarkynningu í samræmi við 3. mgr. 44. gr skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

6. Ályktun tekin á fulltrúafundi Skógræktarfélags Íslands

Tölvupóstur lagður fram til kynningar frá Skógræktarfélagi Íslands, ályktun sem samþykkt var af fundarmönnum á fulltrúafundi þann 28. mars 2026

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:20