Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 27. maí 2026 og hófst hann kl. 09:00
Nefndarmenn
- Aðalsteinn Magnússon (AM) aðalmaður
- Freyja Ragnarsdóttir Pedersen (FRP) aðalmaður
- Jóhann Pétur Ágústsson (JPÁ) formaður
- Jóhann Örn Hreiðarsson (JÖH) aðalmaður
- Steinunn Sigmundsdóttir (SS) aðalmaður
Starfsmenn
- Elfar Steinn Karlsson (ESK) byggingarfulltrúi
- Geir Gestsson (GG) sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
- Óskar Örn Gunnarsson (ÓÖG) skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði
- Elfar Steinn Karlsson byggingarfulltrúi
Almenn erindi
1. Umsókn um framkvæmdaleyfi - Vegagerð Miklidalur.
Tekið fyrir erindi Vegagerðarinnar dagsett 21. maí 2026. Í erindinu er óskað eftir framkvæmdaleyfi vegna styrkingar og endurbyggingar Bíldudalsvegar (63): Um Mikladal, 2 áfangi. Fyrirhuguð framkvæmd er á um 3,9 km kafla og liggur um lönd Geirseyrar og Höfðadals. Framkvæmdin felur í sér breikkun og styrkingu vegarins, nýlögn ræsa ásamt nýlögn bundins slitlags.
Skipulags- og framkvæmdaráð tekur undir mikilvægi þess að bæta burð, styrk og breidd Bíldudalsvegar í samræmi við markmið framkvæmdarinnar og þau veghönnunarviðmið sem fram koma í umsókn Vegagerðarinnar um veg af tegund C8.
Ráðið vill þó koma á framfæri verulegum áhyggjum af fyrirhuguðum langhalla vegarins. Samkvæmt framlögðum gögnum er langhalli á köflum um 9?10% og mestur 11,6%, sem verður að teljast verulega mikill fyrir almennan þjóðveg og umfram þau viðmið sem almennt eru höfð til hliðsjónar við hönnun þjóðvega innanlands.
Ráðið telur mikilvægt að sérstaklega verði farið yfir áhrif þessa mikla langhalla með tilliti til umferðaröryggis, vetrarþjónustu, umferðar þungaflutninga og þjónustustigs vegarins til framtíðar. Þá óskar ráðið eftir því að Vegagerðin geri nánari grein fyrir þeim hönnunarforsendum og mótvægisaðgerðum sem liggja að baki þessari útfærslu.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við heimastjórn Patreksfjarðar og heimastjórn Tálknafjarðar að erindið verði samþykkt og að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir framkvæmdinni. Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir með tilvísan í 8. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og 44.gr skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna ofangreinda umsókn um framkvæmdaleyfi. Fyrir liggur samþykki landeigenda.
2. Bjarkargata 9, Patreksfirði. Lóð og byggingaráform
Tekið fyrir eftir grenndarkynningu óveruleg breyting á á deiliskipulagi íbúðabyggðar og ofanflóðvarnargarða Urðir-Mýrar. Tillagan var grenndarkynnt frá 10. apríl til 8. maí 2026. Fyrir liggur umsögn frá Minjastofnun Íslands sem gerði ekki athugasemdir við breytinguna.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við heimastjórn Patreksfjarðar að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
3. Deiliskipulag hafnar- og þjónustusvæðis á Patreksfirði - Breyting.
Tekið fyrir eftir afgreiðslubréf Skipulagsstofnunar dagsett 18. maí 2026 ásamt leiðréttum skipulagsgögnum þar sem tekið hefur verið tillit til athugasemda Skipulagsstofnunar.
Gerðar hafa verið nokkrar breytingar á skipulagsgögnum sem fela í sér eftirfarandi atriði. Uppdráttur og greinargerð hafa verið aðskilin og breytingar númeraðar. Skráðar minjar færðar inn á uppdrátt. Gert grein fyrir umfangi landfyllingar, gert grein fyrir áhrifum á vatnshlot og uppdráttur yfirfarinn.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við heimastjórn Patreksfjarðar að breytingarnar sem gerðar hafa verið á tillögunni verði samþykktar og skipulagsfulltrúa falin fullnaðarafgreiðsla á deiliskipulaginu í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að undangenginni óverulegri breytingu á aðalskipulagi Vesturbyggðar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00
Óskar Örn Gunnarsson skipualgsfulltrúi var viðstaddur fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.