Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 30. júní 2026 og hófst hann kl. 09:00
Nefndarmenn
- Friðbjörn Steinar Ottósson (FSO) varamaður
- Hlynur Ársælsson (HÁ) aðalmaður
- Jóhann Pétur Ágústsson (JPÁ) formaður
- Steinunn Sigmundsdóttir (SS) aðalmaður
- Þorbjörn Guðmundsson (ÞG) aðalmaður
Starfsmenn
- Elfar Steinn Karlsson (ESK) byggingarfulltrúi
- Geir Gestsson (GG) sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
- Óskar Örn Gunnarsson (ÓÖG) skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði
- Elfar Steinn Karlsson byggingarfulltrúi
Almenn erindi
1. Kosning varaformanns og ritara, fundartimi o.fl. Skipulags- og umhverfisráð
Jóhann Pétur Ágústsson formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna. Ákveðinn fundartími er fjórða miðvikudag hvers mánaðar klukkan 09:00.
Kosning varaformanns Skipulags- og umhverfisráð. Gerð er tillaga um Aðalstein Magnússon sem varaformann. Samþykkt samhljóða.
Ritari og starfsmaður nefndarinnar verður Elfar Steinn Karlsson, byggingarfulltrúi.
2. Breyting á aðalskipulagi Vesturbyggðar - Patrekshöfn.
Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2018 -2035 er varðar þéttbýlisuppdrátt Patreksfjarðar, dagsett 28. maí 2026. Breytingin felst í lítilsháttar stækkun á landnotkunarflokknum sérstök not haf- og strandsvæða (SN1) úr 17,2 ha í 17,4 ha. Breytingin er gerð til þess að fyrirhugaður 180 metra langur viðlegukantur rúmist að öllu leyti innan afmörkunar svæðisins.
Með vísan til fyrirliggjandi gátlista telur skipulags- og umhverfisráð að breytingin teljist óveruleg í skilningi 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin víkur ekki frá meginstefnu aðalskipulagsins, hún hefur mjög staðbundið áhrifasvæði og er ekki talin hafa veruleg áhrif á einstaka aðila eða umhverfið og vísar málinu áfram til heimastjórnar Patreksfjarðar.
3. Rauðasandsstrengur. Umsókn um framvæmdaleyfi
Lagt fram erindi Orkubús Vestfjarða ohf., dags. 16. júní 2026, þar sem óskað er eftir framkvæmdaleyfi vegna lagningar 3x95q / 24 kV háspennustrengs og ljósleiðara yfir Skersfjall á Rauðasandi. Samkvæmt umsókn er fyrirhugað að áfangaskipta framkvæmdinni og tekur fyrsti áfangi til lagningar strengs frá spennistöð í landi Hvalskers, yfir fjallið og niður á Rauðasand, í námunda við núverandi sorpgám. Fram kemur að reynt verði að takmarka rask eins og kostur er og ganga snyrtilega frá plægingarsári að framkvæmd lokinni. Áætlaður framkvæmdatími er haustið 2026 og unnið er að fornleifaskráningu á lagnaleiðinni.
Með erindinu fylgja yfirlitsuppdráttur og afstöðumyndir sem sýna áætlaða lagnaleið um Skersfjall, frá Mikladal, yfir Skersfjall og niður um Bjarngötudal, ásamt lagnaleiðasamningum við hlutaðeigandi landeigendur.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps að skipulagsfulltrúa verði falið að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ráðið leggur áherslu á að við nánari afgreiðslu framkvæmdaleyfis verði tryggt að lagnaleið, verklag, frágangur og mótvægisaðgerðir verði skýr í leyfisgögnum, að rask verði lágmarkað og að tekið verði tillit til niðurstöðu fornleifaskráningar áður en framkvæmd hefst.
4. Brjánslækur - aðalskipulagsbreyting
Lagt er fram afgreiðslubréf Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS), dagsett 21. maí 2026, vegna innsendrar tillögu um óverulega breytingu á Aðalskipulagi Vesturbyggðar vegna Brjánslækjar (stækkun á verslunar- og þjónustusvæði VÞ8). Í bréfi sínu fellst HMS ekki á að breytingin teljist óveruleg skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga, þar sem fyrirhuguð fjölgun gistirúma og umfang starfsemi telst vera veruleg viðbót við núverandi ferðaþjónustu á svæðinu. Stofnunin vísar til þess að fara skuli með málið sem verulega aðalskipulagsbreytingu skv. 30.-32. gr. skipulagslaga, en telur unnt að sleppa kynningu lýsingar þar sem málið hafi þegar verið kynnt. Lögð eru fram uppfærð skipulagsgögn þar sem málsmeðferðinni hefur verið breytt í verulega aðalskipulagsbreytingu í samræmi við ákvörðun HMS. Í gögnunum er jafnframt brugðist við athugasemdum stofnunarinnar, þ.á m. varðandi umhverfisáhrif, ásýnd, innviði, áskilnað jarðalaga vegna landbúnaðarlands, ásamt fyrirkomulagi fráveitu og vatnsöflunar.Jóhann Pétur Ágústsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að breyta málsmeðferðinni í samræmi við afgreiðslu HMS og samþykkir hina uppfærðu tillögu til auglýsingar skv. 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Jóhann Pétur Ágústsson kom aftur inn á fundinn.
5. Brjánslækur 1, deiliskipulag ferðaþjónusta.
Skipulags- og umhverfisráð tekur fyrir að nýju tillögu að deiliskipulagi fyrir Brjánslæk 1 á Barðaströnd að lokinni auglýsingu skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, ásamt fyrirliggjandi lagfærðum skipulagsgögnum. Á auglýsingartíma bárust umsagnir frá Slökkviliði Vesturbyggðar , Vegagerðinni, Minjastofnun Íslands, Náttúruverndarstofnun og Náttúrufræðistofnun.
Slökkvilið Vesturbyggðar óskaði eftir skýrari umfjöllun um brunavarnir, einkum vegna fjarlægðar frá slökkvistöð, aðgengis viðbragðsaðila og útvegunar slökkvivatns. Í lagfærðum gögnum hefur verið bætt við ákvæðum um brunavarnir, slökkvivatn og samráð við slökkvilið við nánari hönnun.
Vegagerðin gerði ekki athugasemd við tillöguna en benti á upplýsingar um Brjánslækjarkirkjuveg, veghelgunarsvæði og fjarlægðir milli vegamóta. Tekið hefur verið mið af umsögninni og áréttað að nánari útfærsla aðkomu og framkvæmdir innan veghelgunarsvæðis verði unnar í samráði við Vegagerðina eftir því sem við á.
Minjastofnun Íslands benti á mikið minjagildi Brjánslækjar og að líklegt sé að fornleifar leynist undir sverði innan heimatúnsins. Í lagfærðum gögnum hefur verið bætt við skýrari ákvæðum um fornleifar, mótvægisaðgerðir, könnunarskurði og/eða framkvæmdaeftirlit áður en til jarðrasks kemur.
Náttúruverndarstofnun benti á nálægð við náttúruvættið Surtarbrandsgil og mikilvægi þess að hugað verði að áhrifum á verndargildi, landslag og ásýnd. Í lagfærðum gögnum hefur verið bætt við umfjöllun um Surtarbrandsgil, landslagsaðlögun, litaval, frágang og samráð við Náttúruverndarstofnun eftir því sem við á.
Náttúrufræðistofnun benti á nálægð við Surtarbrandsgil og Breiðafjörð og að fuglar kunni að nýta túnið til varps. Í lagfærðum gögnum hefur verið tekið mið af þessu með ákvæði um að leitast skuli við að framkvæmdir fari fram utan varptíma fugla, eftir því sem unnt er.
Skipulags- og umhverfisráð telur að með fyrirliggjandi lagfærðum skipulagsgögnum hafi verið brugðist við umsögnum sem bárust á auglýsingartíma með fullnægjandi hætti. Ráðið telur að tillagan samræmist stefnu aðalskipulags um uppbyggingu verslunar- og þjónustusvæðis á Brjánslæk og geti stutt við ferðaþjónustu og nýtingu fyrirliggjandi innviða, að því gefnu að tekið verði mið af skilyrðum um minjavernd, brunavarnir, landslagsaðlögun, náttúruvernd og samráð við viðeigandi umsagnaraðila á síðari stigum.Jóhann Pétur Ágústsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir deiliskipulag Brjánslækjar 1 með fyrirliggjandi lagfæringum og leggur til við heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps að deiliskipulagið verði samþykkt skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og sent HMS til yfirferðar að undangenginni breytingu á aðalskipulagi Vesturbyggðar sbr. afgreiðslubréf HMS um sama mál.
Jóhann Pétur Ágústsson kom aftur inn á fundinn.
Til kynningar
6. Erindi varðandi skipulagsmál á Vestfjörðum
Lagt fram til kynningar bréf Minjastofnunar Íslands, dags. 16. júní 2026, þar sem áréttuð er skylda sveitarfélaga til samráðs við Minjastofnun vegna skipulagsmála, breytinga á eldri húsum og framkvæmda sem kunna að hafa áhrif á menningarminjar. Jafnframt er bent á mikilvægi þess að slík mál berist stofnuninni tímanlega til umsagnar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00
Óskar Örn Gunnarsson skipulagsfulltrúi var viðstaddur fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.