Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 22. júlí 2026 og hófst hann kl. 09:00
Nefndarmenn
- Aðalsteinn Magnússon (AM) aðalmaður
- Hlynur Ársælsson (HÁ) aðalmaður
- Jóhann Pétur Ágústsson (JPÁ) formaður
- Steinunn Sigmundsdóttir (SS) aðalmaður
- Þorbjörn Guðmundsson (ÞG) aðalmaður
Starfsmenn
- Elfar Steinn Karlsson (ESK) byggingarfulltrúi
- Óskar Örn Gunnarsson (ÓÖG) skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði
- Elfar Steinn Karlsson byggingarfulltrúi
Almenn erindi
1. Móatún 7. Tálknafirði Ósk um endurnýjun lóðarleigusamnings.
Erindi frá Arctic Sea Farm ehf. Í erindinu er óskað eftir endurnýjun lóðarleigusamnings fyrir Móatún 7, Tálknafirði. Svæðið er deiliskipulagt.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir endurnýjun lóðarleigusamnings, afmörkun lóðar skal vera samkvæmt deiliskipulagi.
2. Þúfneyri útivistarsvæði
Fyrir liggur til lokaafgreiðslu tillaga að deiliskipulagi fyrir útivistarsvæði á Þúfneyri á Patreksfirði. Tillagan var áður auglýst til kynningar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á tímabilinu frá 20. apríl til 1. júní 2026.
Á kynningartíma bárust fjórar umsagnir og athugasemdir frá eftirfarandi aðilum: Minjastofnun Íslands, Náttúrufræðistofnun Íslands, Umhverfisstofnun (Náttúruverndarstofnun), Slökkviliði Vesturbyggðar. Umsagnir þriggja síðastnefndu aðilanna gáfu ekki tilefni til breytinga á skipulagstillögunni. Í kjölfar fornleifaskráningar Náttúrustofu Vestfjarða í maí 2026 (skýrsla NV nr. 07-26 eftir Atla Rúnarsson), þar sem sex minjar voru staðsettar innan skipulagsmarkanna, var óskað eftir umsögn Minjastofnunar Íslands.
Umsögn Minjastofnunar liggur fyrir, dagsett 30. júní 2026, þar sem gerð er krafa um að gerðar verði breytingar á hönnun stíga og vega til að hlífa tilgreindum minjum, einkum steinhleðslu nr. 3575-002 og götu nr. 3575-005, og tryggja 15 metra friðhelgi þeirra á framkvæmdatíma.
Skipulags- og umhverfisráð Vesturbyggðar samþykkir fyrirliggjandi tillögu A að deiliskipulagi fyrir með þeim breytingum og skilyrðum sem leiðir af umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 30. júní 2026.
Ráðið metur að þær breytingar sem gerðar eru á hinni auglýstu tillögu til að hlífa fornleifum feli í sér minniháttar lagfæringar á legu vega og stíga. Breytingarnar er í grundvallaratriðum í samræmi við stefnu skipulagsins og krefst því ekki endurauglýsingar á tillögunni í samræmi við skipulagslög.
Málinu er vísað til endanlegrar afgreiðslu hjá heimastjórn Patreksfjarðar.
Ráðið felur skipulagsfulltrúa að láta uppfæra skipulagsuppdrátt og greinargerð í samræmi við ofangreindar breytingar áður en málið er sent Skipulagsstofnun til lokaafgreiðslu.
3. Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Aðalstræti 112 - Flokkur 1
Erindi frá Orkubúi Vestfjarða ohf., dags. 29. júní 2026, þar sem óskað er samþykkis byggingaráforma vegna Aðalstrætis 112 á Patreksfirði. Byggingaráformin fela meðal annars í sér breytta notkun hluta húsnæðisins fyrir spennistöð og kyndistöð, breytingar á innra skipulagi, endurnýjun raf- og frárennslislagna, lokun fimm glugga á norðurhlið hússins og uppsetningu tveggja vatnstanka á lóð sunnan við húsið. Gert er ráð fyrir að tankarnir verði 8,6 m á hæð.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að byggingaráformin verði grenndarkynnt í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir eigendum og umráðamönnum nærliggjandi fasteigna sem kunna að eiga hagsmuna að gæta.
Áður en grenndarkynning hefst skulu liggja fyrir fullnægjandi gögn sem sýna staðsetningu, hæð, útlit og ásýnd vatnstankanna, ásamt upplýsingum um möguleg áhrif starfseminnar á nærliggjandi byggð.
4. Hafnargata 4, Patreksfirði, beiðni um stöðuleyfi, Logi ehf.
Erindi frá Loga ehf. dags. 14. júlí 2026. Í erindinu er sótt um stöðuleyfi fyrir 6x3m gám utan við Hafnargötu 4b og 4d á Patreksfirði. Gámurinn er ætlaður undir geymslu á vörum í verslun.
Skipulags- og umhverfisráð frestar afgreiðslu málsins og felur byggingarfulltrúa að fá frekari upplýsingar hjá umsækjenda.
5. Lóðamál við Lönguhlíð 1,3 og 5 á Bíldudal
Fyrir liggur tillaga byggingarfulltrúa að afmörkun lóða við Lönguhlíð 1, 3 og 5 á Bíldudal, ásamt minnisblaði um meðferð málsins.
Málið kom til meðferðar í kjölfar þess að lóðarhafi Lönguhlíðar 3 óskaði eftir því að bílastæði austan við húsið yrði talið hluti af lóð fasteignarinnar. Við skoðun málsins kom í ljós óvissa um legu lóðarmarka, meðal annars þar sem uppdrættir sem vísað er til í eldri lóðarleigusamningum hafa ekki fundist og lóðarleigusamningur Lönguhlíðar 3 virðist ekki hafa verið endurskoðaður þegar lóðir við Lönguhlíð 5 og síðar Lönguhlíð 1 voru stofnaðar.
Byggingarfulltrúi leggur því fram tillögu að afmörkun lóða sem byggir á fyrirliggjandi gögnum og heildarmati á aðstæðum.
Skipulags- og umhverfisráð hefur farið yfir fyrirliggjandi gögn málsins, þar á meðal lóðarleigusamninga, eldri loftmyndir, gögn um stofnun lóða, umsagnir lóðarhafa, álit lögfræðings sveitarfélagsins og tillögu byggingarfulltrúa að afmörkun lóða.
Ráðið telur að fyrirliggjandi gögn sýni að veruleg óvissa sé um upprunalega legu lóðarmarka. Uppdrættir sem vísað er til í eldri lóðarleigusamningum liggja ekki fyrir og ekki verður séð að lóðarleigusamningur Lönguhlíðar 3 hafi verið endurskoðaður þegar lóðir við Lönguhlíð 5 og síðar Lönguhlíð 1 voru stofnaðar.
Við úrlausn málsins hefur verið litið til fyrirliggjandi lóðarleigusamninga, gagna um stofnun lóða, þróunar byggðar á svæðinu, sögulegrar landnýtingar og þeirra sjónarmiða sem fram hafa komið við meðferð málsins.
Að mati skipulags- og umhverfisráðs er fyrirliggjandi tillaga byggingarfulltrúa sú afmörkun sem best samræmist fyrirliggjandi gögnum og þeim aðstæðum sem nú eru uppi á svæðinu.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir því tillögu byggingarfulltrúa að afmörkun lóða við Lönguhlíð 1, 3 og 5 og felur byggingarfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við samþykkta afmörkun, þar á meðal að undirbúa gerð nýs lóðarleigusamnings fyrir Lönguhlíð 3.
6. Hjallar 20, Patreksfirði. Ósk umstækkun lóðar.
Erindi frá Geir Gestssyni, dags. 9. júlí 2026. Í erindinu er sótt um u.þ.b. 98 m2 stækkun á lóð Hjalla 20 inn á óbyggða lóð Hjalla 22. Vilji er hjá lóðarhafa Hjalla 20 til að bæta við bílastæði við hús sitt fyrir tvo bíla til viðbótar. Í erindinu er vísað í fjölgun húsa og íbúa í götunni og þrengslum í bílastæðamálum.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir ekki varanlega stækkun lóðarinnar inn á lóð Hjalla 22. Ráðið vísar til bókunar Skipulags- og umhverfisráðs þann 22. september 2014 þar sem sótt var um gerð bílastæðis á sama svæði, a fundinum 2014 var eftirfarandi bókað:
"Skipulags- og umhverfisráð samþykkir erindið með þeim fyrirvara að ef sótt verði um lóðina til byggingar eða sveitarfélagið þurfi afnot af henni þá falli þessi afnotaréttur niður. Framkvæmdir þessar skulu vera framkvæmdar í samráði við forstöðumann tæknideildar."
Ráðið samþykkir áframhaldandi nýtingu lóðarinnar líkt og verið hefur en lóðin skal auglýst sem byggingarlóð.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:00
Óskar Örn Gunnarsson skipulagsfulltrúi var viðstaddur fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.