Hoppa yfir valmynd

Skipulags- og umhverfisráð #3

Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 26. ágúst 2026 og hófst hann kl. 09:00

Nefndarmenn
  • Aðalsteinn Magnússon (AM) aðalmaður
  • Hlynur Ársælsson (HÁ) aðalmaður
  • Jóhann Pétur Ágústsson (JPÁ) formaður
  • Steinunn Sigmundsdóttir (SS) aðalmaður
  • Þorbjörn Guðmundsson (ÞG) aðalmaður
Starfsmenn
  • Elfar Steinn Karlsson (ESK) byggingarfulltrúi
  • Óskar Örn Gunnarsson (ÓÖG) skipulagsfulltrúi

Fundargerð ritaði
  • Elfar Steinn Karlsson byggingarfulltrúi

Óskar Örn skipulagsfulltrúi var viðstaddur fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.

Almenn erindi

1. Aðalskipulagsbreyting - Strengfell og Krossholt

Lögð fram skipulagslýsing vegna fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2018-2035, dags. ágúst 2026. Breytingin fjallar annars vegar um að skilgreina nýtt afþreyingar- og ferðamannasvæði við Strengfell ofan Bíldudals vegna fyrirhugaðs áningar- og útsýnisstaðar og hins vegar um stækkun íbúðarsvæðis ÍB17 við Krossholt vegna einnar nýrrar íbúðarlóðar.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir fyrirliggjandi skipulagslýsingu með viðbótum þar sem gera skuli ráð fyrir fjórum nýjum lóðum í heildina á Krossholtum og felur skipulagsfulltrúa að kynna hana í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og leita umsagna HMS og annarra umsagnaraðila eftir því sem við á.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Aðalstræti 105 Patreksfirði - ósk um samræmingu lóðargagna

Erindi frá Andra Þ. Arinbjörnssyni, dags. 11. ágúst 2026. Í erindinu er óskað eftir að lóðarmörk fasteignarinnar að Aðalstræti 105 á Patreksfirði verði tekin til skoðunar og samræmd gildandi deiliskipulagi.

Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er lóðin 625 m² að stærð en samkvæmt gildandi lóðarleigusamningi er hún skráð 549 m². Jafnframt er munur á afmörkun lóðarinnar samkvæmt uppdrætti deiliskipulags og lóðarleigusamningi.

Lóðarhafi óskar eftir að lóðin verði stækkuð og lóðargögn uppfærð til samræmis við afmörkun hennar í gildandi deiliskipulagi. Fram kemur í erindinu að fyrirhugað sé að bæta lóðarfrágang og afmörkun gagnvart aðliggjandi tjaldsvæði, meðal annars með gróðursetningu trjáa og runna.

Skipulags- og umhverfisráð tekur jákvætt í erindið og samþykkir fyrir sitt leyti að lóðarmörk Aðalstrætis 105 verði samræmd afmörkun lóðarinnar samkvæmt gildandi deiliskipulagi.

Ráðið felur byggingarfulltrúa að vinna að uppfærslu lóðargagna í samræmi við framangreint og undirbúa nýjan lóðarleigusamning.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Láginúpur, stofnun lóðar - Stóra Svarðarholt

Erindi frá landeigendum Láganúps, Kollsvík, L139899. Í erindinu er sótt um stofnun 3,51 ha lóðar úr landi Láganúps. Erindinu fylgir merkjalýsing dags. 9. júlí 2026. Ný lóð mun bera heitið Stóra Svarðarholt.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir stofnun lóðarinnar.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Hafnargata 4, Patreksfirði, beiðni um stöðuleyfi, Logi ehf.

Erindi frá Loga ehf., dags. 14. júlí 2026, þar sem sótt er um stöðuleyfi fyrir gám utan við Hafnargötu 4b og 4d á Patreksfirði. Gámurinn er ætlaður undir vörulager fyrirtækisins.

Málið var áður tekið fyrir á 2. fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 22. júlí 2026. Afgreiðslu málsins var þá frestað og byggingarfulltrúa falið að afla frekari upplýsinga frá umsækjanda um fyrirhugaða nýtingu gámsins, hvort um tímabundna eða varanlega ráðstöfun væri að ræða og, ef um tímabundna lausn væri að ræða, hver langtímaáform fyrirtækisins væru.

Viðbótarupplýsingar bárust frá umsækjanda þann 14. ágúst 2026. Þar kemur fram að gámurinn sé ætlaður undir vörulager. Jafnframt kemur fram að langtímaáform fyrirtækisins séu að efla og stækka starfsemina og að lögð sé áhersla á góða umgengni og snyrtilegt umhverfi. Umsækjandi tekur jafnframt fram að gámurinn falli að húsnæðinu og sé í sama lit og húsið.

Ráðið telur að stöðuleyfi fyrir gám eigi ekki að vera varanleg lausn á húsnæðis- eða lagerþörf starfsemi til lengri tíma. Svæðið sem um ræðir er ekki innan lóðar fasteignarinnar. Með vísan til framangreinds hafnar ráðið umsókninni.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

5. Hvatning um að taka afstöðu til loðdýraræktar í aðalskipulagi

Lagt fram til kynningar tölvupóstur frá Samtökum um dýravelferð með hvatningu um að taka afstöðu til loðdýraræktar í aðalskipulagi.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00