Hoppa yfir valmynd

Skipulags- og umhverfisráð #4

Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 23. september 2026 og hófst hann kl. 09:00

Nefndarmenn
  • Aðalsteinn Magnússon (AM) aðalmaður
  • Jóhann Pétur Ágústsson (JPÁ) formaður
  • Steinunn Sigmundsdóttir (SS) aðalmaður
  • Þorbjörn Guðmundsson (ÞG) aðalmaður
Starfsmenn
  • Elfar Steinn Karlsson (ESK) byggingarfulltrúi
  • Óskar Örn Gunnarsson (ÓÖG) skipulagsfulltrúi

Fundargerð ritaði
  • Elfar Steinn Karlsson byggingarfulltrúi

Almenn erindi

1. Þúfneyri útivistarsvæði

Skipulags- og umhverfisráð tekur fyrir afgreiðslubréf Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS), dags. 9. september 2026, vegna deiliskipulags Þúfneyrar, ásamt leiðréttum skipulagsgögnum.

Ráðið samþykkir fyrirliggjandi leiðrétt skipulagsgögn með fyrirvara um jákvæða umsögn Vegagerðarinnar og veitingu undanþágu frá ákvæði skipulagsreglugerðar um fjarlægð mannvirkja frá sjó.

Tillagan hefur verið send Vegagerðinni til umsagnar. Fyrir endanlega afgreiðslu og gildistöku deiliskipulagsins skal liggja fyrir afstaða Vegagerðarinnar til fyrirhugaðrar vegtengingar við Barðastrandarveg og upplýsingar frá stofnuninni sem unnt er að leggja til grundvallar ákvörðun lágmarksgólfkóta mannvirkja á lágsvæðum.

Jafnframt samþykkir ráðið að óska eftir undanþágu ráðherra, sbr. 45. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, frá ákvæði 5.3.2.14. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013, vegna þeirra byggingarreita innan deiliskipulagssvæðisins sem eru nær sjó en 50 m.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við heimastjórn Patreksfjarðar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá og senda undanþágubeiðni ásamt tilheyrandi gögnum og að uppfæra skipulagsgögn í samræmi við umsögn Vegagerðarinnar og niðurstöðu undanþágubeiðninnar. Gefi umsögn Vegagerðarinnar eða afgreiðsla undanþágubeiðninnar tilefni til efnislegra breytinga á tillögunni skal málið tekið fyrir að nýju.

Málsnúmer11

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Deiliskipulag hafnar- og þjónustusvæðis á Patreksfirði - Breyting.

Skipulags- og umhverfisráð tekur fyrir breytingu á deiliskipulagi hafnar- og þjónustusvæðis á Patreksfirði ásamt afgreiðslubréfi Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar og umsögn Veðurstofu Íslands, dags. 21. september 2026.

Í umsögn Veðurstofu Íslands kemur fram að þær hættumatslínur sem sýndar hafa verið á tillöguuppdrætti séu tillögur úr frumathugun vegna ofanflóðavarna og að hættumat fyrir Patreksfjörð hafi ekki verið endurskoðað. Hættumatslínur samkvæmt staðfestu hættumati frá árinu 2003 eru því áfram í gildi.

Ráðið samþykkir breytingu á deiliskipulaginu með þeirri breytingu að gildandi hættumatslínur samkvæmt staðfestu hættumati frá 2003 verði sýndar með skýrum hætti á uppdrætti og lagðar til grundvallar skipulagsskilmálum.

Jafnframt er heimilt að sýna tillögur að breyttum hættumatslínum samkvæmt frumathugun Veðurstofu Íslands til skýringar, enda komi skýrt fram á uppdrætti og í greinargerð að um óstaðfestar tillögulínur sé að ræða sem hafi ekki réttaráhrif og verði ekki lagðar til grundvallar leyfisveitingum fyrr en endurskoðað hættumat hefur öðlast gildi.

Skipulagsfulltrúa er falið að uppfæra skipulagsgögn til samræmis við framangreint og senda þau Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun til yfirferðar og afgreiðslu.

Málsnúmer11

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Bíldudalsflugvöllur. Umsókn um stöðuleyfi.

Lögð fram umsókn Isavia Innanlandsflugvalla um stöðuleyfi fyrir tvo samtengda 20 feta gáma sem fyrirhugað er að nýta sem tímabundna starfsmannaaðstöðu á Bíldudalsflugvelli.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir veitingu stöðuleyfis til 12 mánaða.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Brunnahæð og Urðarhjalli. Umsókn um framkvæmdaleyfi - plæging á streng.

Skipulags- og umhverfisráð tekur fyrir umsókn Orkubús Vestfjarða um framkvæmdaleyfi vegna lagningar 24 kV háspennustrengs og ljósleiðara frá Breiðavík að Brunnahæð og Urðarhjalla, samkvæmt fyrirliggjandi umsókn, minnisblaði og lagnaleiðaruppdrætti.

Ráðið leggur til við heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps að samþykkt verði að veita framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdinni með fyrirvara um jákvæða umsögn Minjastofnunar Íslands vegna fyrirliggjandi fornleifaskráningar og að nauðsynleg leyfi og samþykki Vegagerðarinnar liggi fyrir vegna þverunar Örlygshafnarvegar nr. 612 og eftir atvikum annarra vega sem framkvæmdin tekur til.

Framkvæmdir skulu fylgja þeirri lagnaleið sem sýnd er í fyrirliggjandi gögnum. Rask á landi skal lágmarkað og ganga skal snyrtilega frá framkvæmdasvæðinu að framkvæmd lokinni, þ.m.t. með jöfnun yfirborðs og uppgræðslu þar sem jarðvegur raskast.

Komi fram í umsögn Minjastofnunar eða við afgreiðslu Vegagerðarinnar skilyrði sem kalla á efnislegar breytingar á legu eða umfangi framkvæmdarinnar, skal málið tekið fyrir að nýju í ráðinu.

Skipulagsfulltrúa er falið að gefa út framkvæmdaleyfi þegar framangreind skilyrði hafa verið uppfyllt.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


5. Vegur að skógrækt á Bíldudal

Málið var áður tekið fyrir á 17. fundi skipulags- og framkvæmdaráðs þar sem afgreiðslu þess var frestað. Ráðið fól byggingarfulltrúa að kalla eftir umsögn Vegagerðarinnar um fyrirhugaða vegtengingu og jafnframt að ræða við umsækjanda um möguleika á að samræma legu vegarins deiliskipulagi frístundabyggðar við Tagl. Umsögn Vegagerðarinnar liggur nú fyrir og hefur verið rætt við forsvarsmenn Skógræktarfélags Bíldudals um mögulegar útfærslur vegarins

Fyrir liggur umsögn Vegagerðarinnar um fyrirhugaða vegtengingu að skógræktarsvæðinu í Seljadal. Vegagerðin samþykkir vegtenginguna með þeim skilyrðum sem fram koma í umsögn hennar, m.a. um frágang tengingar við Bíldudalsveg og lokun núverandi slóða sem er á móti fyrirhugaðri tengingu. Einnig liggur fyrir að umsækjandi óskar ekki eftir að notast verði við vegstæði samkvæmt deiliskipulagi frístundabyggðar við Tagl þar sem sú leið telst umfangsmeiri og erfiðari í framkvæmd.

Ráðið hefur farið yfir þær útfærslur sem ræddar hafa verið við umsækjanda vegna legu vegarins. Skipulags- og umhverfisráð leggur áherslu á að fylgt verði því deiliskipulagi sem í gildi er á svæðinu. Að mati ráðsins er mikilvægt að mannvirkjagerð og uppbygging á svæðinu taki mið af þeim skipulagsforsendum sem þegar hafa verið samþykktar og liggja til grundvallar framtíðarnýtingu svæðisins.

Ráðið hafnar veglínum sem þvera fyrirhugaðar frístundalóðir innan skipulagssvæðisins þar sem slíkt gæti takmarkað möguleika á framtíðaruppbyggingu og gengið gegn þeim áherslum sem lagðar hafa verið til grundvallar í deiliskipulaginu. Jafnframt hefur ráðið áhyggjur af þeirri legu sem lögð hefur verið til undir hlíðinni. Að mati ráðsins er hætta á að slíkur vegslóði verði erfiður yfirferðar yfir vetrartímann sem gæti haft neikvæð áhrif á aðgengi og nýtingu svæðisins til lengri tíma.

Í ljósi framangreinds ítrekar skipulags- og umhverfisráð fyrri afstöðu sína um að aðkoma að skógræktarsvæðinu skuli vera í samræmi við gildandi deiliskipulag frístundabyggðar við Tagl. Óskað er eftir uppfærðum framkvæmdaleyfisgögnum sem byggja á leið samkvæmt gildandi deiliskipulagi.

Málinu er vísað til Heimastjórnar Arnarfjarðar.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


6. Umsagnarbeiðni v. byggingarleyfisumsókna fyrir mannvirki á hafi utan netlaga.

Skipulags- og umhverfisráð tekur fyrir umsagnarbeiðni Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS), dags. 14. september 2026, vegna umsókna Arnarlax ehf. um byggingarleyfi fyrir sjókvíar við Hringsdal, Haganes, Fossfjörð og Steinanes í Arnarfirði.

Samkvæmt umsagnarbeiðni HMS eru fyrirhuguð mannvirki innan skipulagsreita SN8 Hringsdalur, SN10 Haganes og Fossfjörður og SN13 Steinanes samkvæmt staðfestu Strandsvæðisskipulagi Vestfjarða.

Skipulags- og umhverfisráð gerir ekki athugasemd við staðsetningu fyrirhugaðra sjókvía, enda séu sjókvíar, botnfestingar, akkeri og annar búnaður staðsett í samræmi við staðfest Strandsvæðisskipulag Vestfjarða og þau almennu og sértæku skipulagsákvæði sem gilda um viðkomandi reiti.

Ráðið áréttar að við frekari leyfisveitingar verði tekið mið af ákvæðum strandsvæðisskipulags um siglingaöryggi, náttúruvernd, fuglalíf og sjónræn áhrif eftir því sem við á, sérstaklega þeim sérákvæðum sem gilda um reiti SN8 og SN10.

Umsögn Vesturbyggðar tekur samkvæmt framangreindu til staðsetningar mannvirkjanna, sbr. a-lið 3. mgr. 9. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


7. Ósk um svæði undir flugvöll í Sauðlauksdal.

Erindi hefur borist frá Módelsmiðju Vestfjarða þar sem óskað er eftir afnotum af svæði í Sauðlauksdal undir braut fyrir módelflug. Vesturbyggð hefur landið á leigu frá ríkinu og hefur málið verið unnið í samráði við Framkvæmdasýsluna - Ríkiseignir. Aflað var umsagna frá hagsmunaaðilum á svæðinu. Sauðlauksdalssókn lýsti jákvæðri afstöðu til erindisins en eigendur og íbúar Sauðlauksdals III lögðust gegn því. Málið er lagt fyrir skipulags- og umhverfisráð til afgreiðslu.

Skipulags- og umhverfisráð hefur farið yfir erindið og framkomnar umsagnir. Með vísan til andstöðu á svæðinu telur ráðið ekki rétt að mæla með umbeðinni staðsetningu módelflugvallar í Sauðlauksdal.

Ráðið leggur þess í stað til að skoðaður verði sá hluti þverbrautar flugvallarins sem liggur innan lands Sauðlauksdals, L139917, sem mögulegt svæði fyrir módelflugvöll. Ráðið felur byggingarfulltrúi að vinna málið áfram.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


8. Endurskoðun á reglum um úthlutun lóða í Vesturbyggð.

Fyrir liggur tillaga að breytingu á 2. gr. reglna Vesturbyggðar um úthlutun lóða. Tilefni breytingarinnar er að skýra og rýmka heimildir sveitarfélagsins til úthlutunar lóða í þeim tilvikum þegar umsækjandi hefur að eigin frumkvæði óskað eftir afmörkun nýrrar lóðar eða byggingarréttar á óskipulögðu eða óúthlutuðu svæði.

Markmið breytingarinnar er að stuðla að frumkvæði, uppbyggingu og atvinnusköpun innan sveitarfélagsins.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn breytingu á 2. gr. reglna Vesturbyggðar um úthlutun lóða. Breytingin felur í sér að bæjarstjórn verði heimilt að úthluta lóð án auglýsingar þegar umsækjandi hefur að eigin frumkvæði óskað eftir afmörkun nýrrar lóðar eða byggingarréttar á óskipulögðu eða óúthlutuðu svæði.

Ráðið telur breytinguna stuðla að auknu frumkvæði og uppbyggingu innan sveitarfélagsins, þar sem hún gerir sveitarfélaginu kleift að bregðast við nýjum hugmyndum og verkefnum sem verða til að frumkvæði einstaklinga eða fyrirtækja.

Málinu er vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:00