Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 28. október 2026 og hófst hann kl. 09:00
Nefndarmenn
- Aðalsteinn Magnússon (AM) aðalmaður
- Jóhann Pétur Ágústsson (JPÁ) formaður
- Steinunn Sigmundsdóttir (SS) aðalmaður
- Þorbjörn Guðmundsson (ÞG) aðalmaður
Starfsmenn
- Elfar Steinn Karlsson (ESK) byggingarfulltrúi
- Geir Gestsson (GG) sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
- Óskar Örn Gunnarsson (ÓÖG) skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði
- Elfar Steinn Karlsson byggingarfulltrúi
Almenn erindi
1. Strandgata 42b - Umsókn um stöðuleyfi.
Erindi frá Björgunarsveitinni Tálkna, dags. 25. september 2026. Í erindinu er sótt um stöðuleyfi fyrir 40feta gám við húsnæði björgunarsveitarinnar að Strandgötu 42b, Tálknafirði. Gámurinn er ætlaður undir dósatalningu sveitarinnar.
Skipulags- og umhverfisráð frestar afgreiðslu málsins og felur byggingarfulltrúa að kalla eftir frekari upplýsingum frá umsækjenda um framtíðaráform.
Ráðið vekur athygli á því að samkvæmt byggingarreglugerð nr. 112/2012 eru stöðuleyfi tímabundin heimild, einkum ætluð vegna framkvæmda eða sambærilegra aðstæðna þar sem þörf er á tímabundinni aðstöðu á meðan unnið er að varanlegri lausn. Stöðuleyfi er því ekki ætlað að koma í stað varanlegrar heimildar fyrir staðsetningu gáma.
2. Aðalstræti 112, Patreksfirði. Ósk um stöðuleyfi.
Erindi frá Orkubú Vestfjarða, dags. 6. október 2026. Í erinidnu er sótt um stöðuleyfi fyrir gámum sem nýttir verða tímabundið sem vinnuaðstaða verktaka vegna lagningar hitaveitulagnar á Patreksfirði. Fyrirhugað er að staðsetja gámana innan lóðar Orkubús Vestfjarða að Aðalstræti 112.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir veitingu stöðuleyfis til 12 mánaða fyrir vinnuaðstöðu verktaka innan lóðar Orkubús Vestfjarða að Aðalstræti 112 á Patreksfirði.
Ráðið felur byggingarfulltrúa að afgreiða stöðuleyfið að uppfylltum viðeigandi skilyrðum. Gámana skal fjarlægja og ganga snyrtilega frá svæðinu þegar framkvæmdum lýkur.
Ráðið vekur athygli á því að samkvæmt byggingarreglugerð nr. 112/2012 eru stöðuleyfi tímabundin heimild, einkum ætluð vegna framkvæmda eða sambærilegra aðstæðna þar sem þörf er á tímabundinni aðstöðu á meðan unnið er að varanlegri lausn. Stöðuleyfi er því ekki ætlað að koma í stað varanlegrar heimildar fyrir staðsetningu gáma.
3. Ósk um afnot af hluta lóðar Urðargötu 24.
Erindi frá Einari Helgasyni Urðargötu 26 þar sem óskað er eftir leyfi til að staðsetja garðhús á óúthlutaðri lóð að Urðargötu 24, austan við viðbyggingu að Urðargötu 26.
Garðhúsið er 4,52 × 3,30 m að stærð, eða um 14,9 m², og verður að hluta nýtt fyrir hænur. Umsækjandi tekur fram að hann muni fjarlægja húsið ef til stendur að nýta lóðina.
Með umsókninni fylgir ljósmynd af garðhúsinu og afstöðumynd sem sýnir fyrirhugaða staðsetningu þess.
Skipulags- og umhverfisráð tekur jákvætt í erindið og gerir ekki athugasemd við að garðhúsinu verði komið fyrir tímabundið á óúthlutaðri lóð að Urðargötu 24 með fyrirvara um samþykki annarra eigenda Urðargötu 26 sem og aðliggjandi lóðarhafa að Urðargötu 22
Heimildin skal vera tímabundin og felur ekki í sér neinn rétt til lóðarinnar. Umsækjanda ber að fjarlægja garðhúsið á eigin kostnað ef lóðinni verður úthlutað eða sveitarfélagið óskar þess.
Ráðið vekur jafnframt athygli á ákvæðum 11. gr. samþykktar nr. 81/2018 um kattahald og gæludýrahald annað en hundahald í Vesturbyggð, þar sem kveðið er á um að eigendur og umráðamenn gæludýra sem haldin eru utandyra skuli sjá til þess að dýrin valdi nágrönnum ekki ama, svo sem með hávaða eða óhreinindum.
4. Ofanflóðavarnir á Bíldudal, Stekkjargil og Milligil. Umsókn um framkvæmdaleyfi
Lögð eru fram drög að viðauka við framkvæmdaleyfi vegna ofanflóðavarna á Bíldudal, sem gefið var út 14. janúar 2026.
Viðaukinn tekur til lagningar 66 kV jarðstrengs (Bíldudalslínu) á um 1 km löngum kafla frá tengivirki Landsvirkjunar við Járnhól 8 að deiliskipulagsmörkum ofan Dalbrautar 58.
Í greinargerð gildandi deiliskipulags ofanflóðavarna er gert ráð fyrir að núverandi háspennulína verði færð í jörð samhliða framkvæmdum við varnarmannvirkin. Sá hluti strengsins sem liggur innan deiliskipulagsmarka fellur undir þegar útgefið framkvæmdaleyfi fyrir ofanflóðavörnunum.
Þar sem hluti lagnaleiðarinnar liggur utan deiliskipulagsmarka er þörf á viðauka við framkvæmdaleyfið vegna þess kafla. Jafnframt er unnið að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2018-2035 vegna legu strengsins.
Viðaukinn verður ekki gefinn út fyrr en breyting á aðalskipulagi hefur tekið gildi og önnur skilyrði leyfisins hafa verið uppfyllt.
Skipulags- og umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við framlagða tillögu að viðauka við framkvæmdaleyfi vegna ofanflóðavarna á Bíldudal, sem tekur til lagningar 66 kV jarðstrengs (Bíldudalslínu) utan deiliskipulagsmarka ofanflóðavarna.
Ráðið leggur til við heimastjórn Arnarfjarðar að viðaukinn verði samþykktur og skipulagsfulltrúa falið að gefa hann út þegar breyting á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2018-2035 vegna legu Bíldudalslínu hefur tekið gildi og önnur skilyrði leyfisins hafa verið uppfyllt.
5. Norður-Botn, Tálknafirði. Nýtt skotíþróttasvæði.
Lögð fram skipulags- og matslýsing, dags. 15. október 2026, vegna fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Tálknafjarðarhrepps 2019?2039 og breytingar á deiliskipulagi Norður-Botns í Tálknafirði.
Breytingarnar eru unnar vegna áforma Skotíþróttafélags Vestfjarða um uppbyggingu skotíþróttasvæðis í Botnsdal, austan við seiðaeldisstöð Arctic Fish. Fyrirhugað er að skilgreina nýtt íþróttasvæði í aðalskipulagi og breyta gildandi deiliskipulagi þannig að þar verði heimilt að koma fyrir leirdúfu- og riffilskotvöllum ásamt tilheyrandi öryggissvæðum, aðkomu og aðstöðuhúsi.
Í skipulagslýsingunni er gerð grein fyrir forsendum breytinganna, fyrirhugaðri málsmeðferð og helstu umhverfisþáttum sem verða til skoðunar við áframhaldandi skipulagsvinnu. Sérstaklega verður horft til hljóðvistar, mögulegrar mengunar vegna skotstarfsemi, áhrifa á náttúrufar og vatnafar Botnsár ásamt samspili skotíþróttastarfsemi við núverandi efnistöku og aðra landnotkun á svæðinu.Þorbjörn Guðmundsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Skipulags- og umhverfisráð tekur jákvætt í fyrirhugaða skipulagsvinnu og samþykkir fyrir sitt leyti framlagða skipulags- og matslýsingu. Ráðið leggur til við bæjarstjórn Vesturbyggðar og heimastjórn Tálknafjarðar að lýsingin verði samþykkt til kynningar og umsagnar í samræmi við 1. mgr. 30. gr. og 40. gr., sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Þorbjörn Guðmundsson kom aftur inn á fundinn.
6. Aðalskipulag - Bíldudalslína. Óveruleg breyting á þéttbýlis- og dreifbýlisuppdrætti.
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2018?2035 vegna fyrirhugaðrar lagningar Bíldudalslínu í jarðstreng í tengslum við framkvæmdir við ofanflóðavarnir ofan Bíldudals, ásamt greinargerð og gátlista vegna mats á því hvort breytingin geti talist óveruleg.
Breytingin felur í sér að um 1,5 km kafli núverandi loftlínu verður lagður í jarðstreng, sem verður um 2 km að lengd. Lega línunnar er færð til á skipulagsuppdrætti til samræmis við fyrirhugaða staðsetningu ofanflóðavarnargarða. Breytingin hefur ekki í för með sér breytta landnotkun eða nýja stefnumörkun og er hluti af nauðsynlegum undirbúningi framkvæmda við ofanflóðavarnir.
Skipulags- og umhverfisráð hefur farið yfir fyrirliggjandi skipulagsgögn og rökstuðning fyrir breytingunni. Ráðið telur að breytingin hafi ekki í för með sér verulegar breytingar á landnotkun, hafi ekki áhrif á stórt svæði og sé ekki líkleg til að hafa veruleg áhrif á hagsmuni einstakra aðila. Jafnframt er talið að lagning línunnar í jarðstreng dragi úr sjónrænum áhrifum og stuðli að auknu afhendingaröryggi raforku á Bíldudal.
Með vísan til framangreinds telur ráðið að breytingin geti talist óveruleg samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ráðið samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og leggur til við bæjarstjórn Vesturbyggðar að hún verði samþykkt og send Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun til staðfestingar.
Ráðið felur skipulagsfulltrúa að annast framhald málsins í samræmi við framangreint.
7. Brjánslækur 1, deiliskipulag ferðaþjónusta.
Lagðar fram umsagnir sem bárust við auglýsta tillögu að deiliskipulagi fyrir Brjánslæk 1 á Barðaströnd, ásamt uppfærðum skipulagsgögnum þar sem brugðist hefur verið við framkomnum ábendingum. Tillagan var auglýst frá 24. ágúst til 5. október 2026.
Umsagnir bárust frá Slökkviliði Vesturbyggðar, Náttúruverndarstofnun, Vegagerðinni og Minjastofnun Íslands.
Í uppfærðum skipulagsgögnum hefur meðal annars verið skerpt á ákvæðum um brunavarnir og slökkvivatn, fornleifar og vernd menningarminja, aðkomu og bílastæði ásamt aðlögun mannvirkja að landslagi og sögulegu umhverfi. Jafnframt hefur aðkomu að fyrirhugaðri gistibyggð verið hnikað til, byggingarreitir stækkaðir til að auka svigrúm við nánari hönnun og gerð nánari grein fyrir núverandi byggingum og starfsemi á svæðinu. Alls eru skilgreind 32 bílastæði innan skipulagssvæðisins sem teljast fullnægjandi miðað við fyrirhugaða nýtingu.Jóhann Pétur Ágústsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Skipulags- og umhverfisráð þakkar framkomnar umsagnir og telur að brugðist hafi verið við þeim með fullnægjandi hætti í uppfærðum skipulagsgögnum. Ráðið telur að breytingar sem gerðar hafa verið á tillögunni eftir auglýsingu breyti ekki grundvallarforsendum deiliskipulagsins og kalli því ekki á endurauglýsingu.
Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti uppfærða tillögu að deiliskipulagi fyrir Brjánslæk 1 og leggur til við heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps að tillagan verði samþykkt til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 41. og 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, samhliða afgreiðslu breytingar á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2018-2035 vegna verslunar- og þjónustusvæðis VÞ8.
Ráðið felur skipulagsfulltrúa að annast framhald málsins og lögformlega afgreiðslu þess að fenginni samþykkt heimastjórnar
Jóhann Pétur Ágústsson kom aftur inn á fundinn.
8. Brjánslækur - aðalskipulagsbreyting
Lagðar fram umsagnir sem bárust við auglýsingu tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2018?2035 vegna verslunar- og þjónustusvæðis VÞ8 við Brjánslæk, ásamt uppfærðri greinargerð. Tillagan var auglýst frá 24. ágúst til 5. október 2026, samhliða tillögu að deiliskipulagi fyrir Brjánslæk 1.
Breytingin felur í sér stækkun verslunar- og þjónustusvæðis VÞ8 úr 6,7 ha í 8,3 ha og aukningu heimilaðs byggingarmagns úr 500 m² í 1.000 m², með heimild fyrir allt að 86 gistirúmum.
Umsagnir bárust frá Slökkviliði Vesturbyggðar, Veðurstofu Íslands, Minjastofnun Íslands og Vegagerðinni. Umsagnaraðilar gera ekki athugasemdir við fyrirhugaða breytingu en Vegagerðin bendir á atriði varðandi veghelgunarsvæði og vegtengingar.
Í uppfærðri greinargerð hefur verið skerpt á umfjöllun um veitur, fráveitu og brunavarnir, umferð og aðkomu ásamt umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar uppbyggingar. Uppdráttur er óbreyttur frá auglýstri tillögu.Jóhann Pétur Ágústsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Skipulags- og umhverfisráð telur að brugðist hafi verið við þeim með fullnægjandi hætti í uppfærðum skipulagsgögnum. Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti uppfærða tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2018-2035 vegna verslunar- og þjónustusvæðis VÞ8 við Brjánslæk og leggur til við bæjarstjórn Vesturbyggðar að tillagan verði samþykkt til endanlegrar afgreiðslu samkvæmt 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, samhliða afgreiðslu deiliskipulags fyrir Brjánslæk 1.
Ráðið felur skipulagsfulltrúa að annast framhald málsins og senda skipulagsgögn til Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til staðfestingar að fenginni samþykkt bæjarstjórnar.
Jóhann Pétur Ágústsson kom aftur inn á fundinn.
9. Aðalskipulagsbreyting - Strengfell og Krossholt
Lagðar fram umsagnir sem bárust við kynningu skipulagslýsingar vegna fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2018-2035, sem tekur annars vegar til skilgreiningar á nýju afþreyingar- og ferðamannasvæði við Strengfell ofan Bíldudals og hins vegar stækkunar íbúðarsvæðis ÍB17 við Krossholt. Skipulagslýsingin var kynnt frá 24. september til 22. október 2026 í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Alls bárust fimm umsagnir, frá Minjastofnun Íslands, Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS), Náttúrufræðistofnun, Vegagerðinni og Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða.
Minjastofnun Íslands og Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða gera ekki athugasemdir við fyrirhugaða breytingu á þessu stigi málsins. Minjastofnun bendir þó á að fornleifaskráning þurfi að liggja fyrir við gerð deiliskipulags. Náttúrufræðistofnun gerir heldur ekki athugasemdir á þessu stigi en bendir á að við Strengfell sé samkvæmt vistgerðakorti að finna starungsmýravist með mjög hátt verndargildi og að taka þurfi tillit til þess við nánari útfærslu framkvæmda.
HMS bendir á að skýra þurfi betur forsendur fyrir aukinni íbúðarbyggð við Krossholt og setja fyrirhugaða uppbyggingu í samhengi við húsnæðisáætlun sveitarfélagsins. Jafnframt þurfi að fjalla um áhrif skipulagsbreytingarinnar á vatnshlot og umhverfismarkmið þeirra. Vegagerðin leggur áherslu á að tekið verði tillit til veghelgunarsvæða, umferðaröryggis og tenginga við þjóðvegi við áframhaldandi skipulagsvinnu.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að vinna áfram að tillögu að breytingu á aðalskipulagi á grundvelli fyrirliggjandi skipulagslýsingar. Við gerð tillögunnar verði tekið tillit til framkominna ábendinga, meðal annars varðandi forsendur íbúðaruppbyggingar við Krossholt, náttúrufar við Strengfell, vatnamál og tengingar við vegakerfið. Jafnframt verði leitað umsagna Náttúruverndarstofnunar og Umhverfis- og orkustofnunar í samræmi við ábendingar HMS.
Ráðið felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við framangreint og leggja tillögu að aðalskipulagsbreytingu fyrir ráðið til frekari afgreiðslu.
10. Umsagnarbeiðni v. byggingarleyfisumsókna fyrir mannvirki á hafi utan netlaga.
Skipulags- og umhverfisráð tekur fyrir umsagnarbeiðni Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS), dags. 16.október 2026, vegna umsókna Arnarlax ehf. um byggingarleyfi fyrir sjókvíar við Laugardal í Tálknafirði og við Þúfneyri og Vatneyri í Patreksfirði.
Samkvæmt umsagnarbeiðni HMS eru fyrirhuguð mannvirki innan skipulagsreita SN3 - Þúfneyri, SN4 - Vatneyri og SN6 - Laugardalur samkvæmt staðfestu Strandsvæðisskipulagi Vestfjarða.Rúnar Ingi Pétursson vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Skipulags- og umhverfisráð gerir ekki athugasemd við staðsetningu fyrirhugaðra sjókvía, enda séu sjókvíar, botnfestingar, akkeri og annar búnaður staðsett í samræmi við staðfest Strandsvæðisskipulag Vestfjarða og þau almennu og sértæku skipulagsákvæði sem gilda um viðkomandi reiti.
Ráðið áréttar að við frekari leyfisveitingar verði tekið mið af ákvæðum strandsvæðisskipulags um siglingaöryggi, náttúruvernd, fuglalíf og sjónræn áhrif eftir því sem við á.
Umsögn Vesturbyggðar tekur samkvæmt framangreindu til staðsetningar mannvirkjanna, sbr. a-lið 3. mgr. 9. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.
Rúnar Ingi Pétursson kom aftur inn á fundinn.
11. Lagning rafstrengs og ljósleiðara yfir Dynjandisheiði - Mat á framkvæmdaleyfisskyldu
Tekið fyrir erindi Vegagerðarinnar vegna fyrirhugaðrar lagningar rafstrengs og ljósleiðara meðfram Vestfjarðavegi um Dynjandisheiði, ásamt uppfærðum uppdráttum dags. 3. september 2026 og nánari upplýsingum um framkvæmdina.
Framkvæmdin er unnin í samstarfi Vegagerðarinnar og veitufyrirtækja og er tilgangurinn að tryggja rafmagn og fjarskiptasamband fyrir veðurstöðvar, myndavélar og fjarskiptabúnað á Dynjandisheiði. Heildarlengd lagnaleiðarinnar er um 28 km, þar af um 19 km innan Vesturbyggðar.
Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum er fyrirhugað að plægja strengina niður meðfram nýjum og eldri vegi, að mestu innan þegar raskaðra svæða í vegfláum, vegrásum og gömlu vegstæði. Við þverun vatnsfalla kann að þurfa að beita öðrum aðferðum og á einstökum stöðum, meðal annars við Norðdalsá, gæti þurft að víkja út fyrir þegar raskað svæði.
Skipulags- og umhverfisráð hefur farið yfir fyrirliggjandi gögn og metið framkvæmdaleyfisskyldu með vísan til 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 4. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.
Að mati ráðsins felur fyrirhuguð plæging strengja innan þegar raskaðs vegsvæðis ekki í sér meiri háttar framkvæmd sem hafi varanleg áhrif á umhverfi eða breyti ásýnd þess, enda verði jarðrask takmarkað og gengið frá yfirborði að framkvæmd lokinni. Ráðið telur því að sá hluti framkvæmdarinnar sé ekki háður framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga.
Ráðið leggur áherslu á að framkvæmdin fylgi fyrirliggjandi lagnaleið og að rask á landi og við vatnsföll verði lágmarkað. Komi til þess að víkja þurfi verulega frá fyrirhugaðri lagnaleið eða ráðast í umfangsmeira jarðrask utan þegar raskaðra svæða skal leggja þær breytingar fyrir sveitarfélagið til mats á því hvort þörf sé á sérstakri leyfisveitingu.
Jafnframt er áréttað að niðurstaða ráðsins tekur ekki til nýrra mannvirkja eða annarra framkvæmda sem kunna að vera sjálfstætt leyfisskyldar og að framkvæmdaraðili ber ábyrgð á að afla annarra nauðsynlegra leyfa og samþykkta vegna framkvæmdarinnar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:20
Óskar Örn Gunnarsson, skipulagsfulltrúi var viðstaddur fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.