Hoppa yfir valmynd

Umhverfis- og loftslagsráð #9

Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 19. maí 2025 og hófst hann kl. 15:00

Nefndarmenn
  • Freyja Ragnarsdóttir Pedersen (FRP) formaður
  • Guðrún A. Finnbogadóttir (GAF) aðalmaður
  • Jónas Snæbjörnsson (JS) aðalmaður
Starfsmenn
  • Lilja Magnúsdóttir (LM) ritari

Fundargerð ritaði
  • Lilja Magnúsdóttir ritari

Formaður setti fund og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðið.

Svo var ekki og formaður lýsti fundinn lögmætan.

Jón Árnason og Guðmundur Björn Þórsson gátu ekki mætt og ekki tókst að boða varamenn í þeirra stað í tæka tíð.

Almenn erindi

1. Kynning á starfsemi Arnarlax

Kynning á starfsemi Arnarlax

Hjörtur Metúsalemsson, yfirmaður viðskiptaþróunardeildar kom inn á fundinn og kynnti starfsemi Arnarlax.

Umhverfis- og loftslagsráð þakkar ítarlega kynningu.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Umsagnarbeiðni vegna máls nr. 05842025 - Stærð seiða Arctic Sea Farm í Arnarfirði

Umsagnarbeiðni frá Skipulagsstofnun vegna máls nr. 0584/2025 í Skipulagsgátt. Stærð seiða Arctic Sea Farm í Arnarfirði.

Umhverfis- og loftslagsráð styður við samræmingu stærðar á seiðum milli svæða en spyr af hverju ekki sé farið með mörkin í 120 gr. Einnig styður ráðið áform um að setja út stærri seiði í stað minni þar sem minni seiði lengja eldistíma og auka hættu á sjúkdómum og lúsavandamálum. Ráðið leggur áherslu á að minni seiði fari út að vori.

Umsögn samþykkt samhljóða.

Málsnúmer

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Umhverfisstefna Vesturbyggðar

Fundargerð vinnuhóps um umhverfisstefnu Vesturbyggðar

Á 16. Fundi bæjarráðs þann 14.01.2025 var samþykkt að skipa vinnuhóp til að vinna drög að umhverfis- og loftslagsstefnu Vesturbyggðar. Hópurinn fundaði tvisvar um umhverfis- og loftslagsstefnu og setti saman fyrstu drög.
Formaður í samráði við bæjarstjóra leggur til við umhverfis- og loftslagsráð að vinnuhópurinn leggi meiri áherslu á gerð loftslagsstefnu í samræmi við ályktun 68. Fjórðungsþings frá 06.-07.10.2023 og fresti vinnu við gerð umhverfisstefnu á meðan.

Ráðið samþykkir þessa breytingu og vísar afgreiðslu málsins áfram til bæjarráðs til staðfestingar.

Formaður gerði grein fyrir vinnu við gerð loftslagsstefnu og fór yfir fundargerð og vinnugögn vinnuhópsins.
Frekari vinnu vísað til næsta vinnufundar.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer7

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Til kynningar

4. Skógar og lýðheilsa ályktun aðalfundar Skógfræðingafélags Íslans

Skógfræðingafélags Íslands óskar eftir að meðfylgjandi ályktun aðalfundar félagsins 25. mars síðastliðinn verði komið á viðeigandi aðila innan ykkar sveitarfélags.

Lagt fram til kynningar.

Umhverfis - og loftslagsráð fagnar ábendingu Skógfræðingafélagsins og beinir til Vesturbyggðar að aðstoða skógræktarfélögin í Vesturbyggð við að fá fræðslu um uppbyggingu og umhirðu skógarsvæða í sveitarfélaginu.

Samþykkt samhljóða.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


5. Svæðisáætlun um úrgang

Fundargerðir Úrgangsráðs frá 19.03.2025 og frá 29.04.2025

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


6. Umsagnarbeiðni vegna máls nr. 05912023 - Aukið sjókvíaeldi í Arnarfirði á vegum Arnarlax

Umsögn Vesturbyggðar um mál nr. 0591/2023 - aukið sjókvíaeldi í Arnarfirði á vegum Arnarlax, send inn í samráðsgátt.

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:47