Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 16. júní 2025 og hófst hann kl. 15:00
Nefndarmenn
- Freyja Ragnarsdóttir Pedersen (FRP) formaður
- Guðmundur Björn Þórsson (GBÞ) aðalmaður
- Guðrún A. Finnbogadóttir (GAF) aðalmaður
- Jón Árnason (JÁ) aðalmaður
- Jónas Snæbjörnsson (JS) aðalmaður
Starfsmenn
- Lilja Magnúsdóttir (LM) ritari
Fundargerð ritaði
- Lilja Magnúsdóttir ritari
Almenn erindi
1. Umhverfisstefna Vesturbyggðar
Fundargerð vinnuhóps um loftslagsstefnu Vesturbyggðar og umræður um vinnu við framhald stefnumótunar í loftslagsmálum.
Lögð fram drög að loftslagsstefnu Vesturbyggðar ásamt drögum að aðgerðaáætlun og fundargerð vinnuhóps frá 13.06.2025. Freyja og Guðrún Anna kynntu drögin fyrir nefndinni. Nefndin samþykkir að drögin séu send til Finns Ricart hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga til yfirlestrar og ábendinga og í framhaldi kynnt fyrir nefndinni með tölvupósti áður en drögin verða lögð fyrir bæjarráð til samþykktar. Formanni falið að senda drögin til Finns og upplýsa nefndina í framhaldi.
Nefndin þakkar vinnuhópnum fyrir vel unnin störf.
Samþykkt samhljóða.
Til kynningar
3. Fundargerðir sorphirða Verkfundargerðir Verktaka og Verkkaupa
Fundargerð 14. verkfundar ásamt framlengingu samnings og viðauka við hann.
Lagt fram til kynningar
4. Sorphirðusamningur
Framlenging á sorphirðusamningi og viðauki við samninginn.
Lagt fram til kynningar
Umhverfis- og loftslagsráð hvetur til að aðferðir til kynninga verði uppfærðar svo sem á samfélagsmiðlum og öðrum rafrænum miðlum.
5. Svæðisskipulag Vestfjarða vinnslutillaga
Svæðisskipulag Vestfjarða, vinnslutillaga til kynningar á skipulagsgátt
https://skipulagsgatt.is/issues/2024/603
Lagt fram til kynningar
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00
Formaður setti fund og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðið.
Svo var ekki og formaður lýsti fundinn lögmætan.
Guðrún Anna er í fjarfundi.