Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 16. febrúar 2026 og hófst hann kl. 15:00
Nefndarmenn
- Freyja Ragnarsdóttir Pedersen (FRP) formaður
- Guðrún A. Finnbogadóttir (GAF) aðalmaður
- Jenný Lára Magnadóttir (JLM) varamaður
- Jónas Snæbjörnsson (JS) aðalmaður
Starfsmenn
- Elfar Steinn Karlsson (ESK) byggingarfulltrúi
- Lilja Magnúsdóttir (LM) ritari
Fundargerð ritaði
- Lilja Magnúsdóttir ritari
Almenn erindi
1. Ofanflóðavarnir - Urðir, Hólar og Mýrar. Verkframkvæmd.
Frágangur ofanflóðavarna og eftirfylgni við framkvæmdir. Elfar Steinn Karlsson, byggingarfulltrúi sat fundinn undir þessum lið.
Elfar Steinn Karlsson, byggingarfulltrúi fór yfir fyrirhugaðar framkvæmdir í sambandi við ofanflóðavarnir í sveitarfélaginu. Umhverfis- og loftslagsráð lagði áherslu á mikilvægi þess að hafa frágang og mótvægisaðgerðir gróðurs í huga varðandi þessar framkvæmdir og tryggja fjármagn til að fylgja eftir umhirðu og viðhaldi umhverfis á ofanflóðagörðunum.
Samþykkt samhljóða.
Elfar Steinn Karlsson vék af fundi.
Til kynningar
2. Líffræðileg fjölbreytni - stefna og markmið
Líffræðileg fjölbreytni: Stefna og markmið til ársins 2030
Lagt fram til kynningar.
Umhverfis- og loftslagsráð leggur áherslu á nauðsyn þess að störf við vöktun og grunnrannsóknir haldist í héraði í gegnum náttúrustofurnar.
Einnig hvetur ráðið til þess að þessi stefna verði nýtt við áframhaldandi vinnu við aðal- og deiliskipulag sveitarfélagsins.
4. Sorpurðunarsamningur
5. Svæðisáætlun um úrgang og fundargerðir úrgangsráðs
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:16
Formaður setti fund og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðið.
Svo var ekki og formaður lýsti fundinn lögmætan.