Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 20. apríl 2026 og hófst hann kl. 15:00
Nefndarmenn
- Freyja Ragnarsdóttir Pedersen (FRP) formaður
- Guðrún A. Finnbogadóttir (GAF) aðalmaður
- Jenný Lára Magnadóttir (JLM) varamaður
Starfsmenn
- Lilja Magnúsdóttir (LM) ritari
Fundargerð ritaði
- Lilja Magnúsdóttir ritari
Almenn erindi
1. Umhverfisstefna Vesturbyggðar
Loftslagsstefna Vesturbyggðar, staða á máli
Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri og Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs sátu fundinn undir þessum lið.
Fjallað um stöðu á loftslagsstefnu Vesturbyggðar og næstu skref í afgreiðslu stefnunnar rædd.
Tekin er ákvörðun um að leggja tillögu að loftslagsstefnu fyrir bæjarráð og bæjarstjórn fyrir lok kjörtímabils.
Bæjarstjóra falið að fylgja málinu eftir.
Samþykkt samhljóða.
Til kynningar
2. Sláttur og hirðing 2026
3. Úrgangs- og hringrásarhópur
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00
Formaður setti fund og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðið. Svo var ekki og formaður lýsti fundinn lögmætan.
Jónas Snæbjörnsson boðaði forföll og Jenný Lára Magnadóttir fyrsti varamaður sat fundinn í hans stað.
Jón Árnason boðaði forföll og ekki tókst að boða varamann í hans stað. Guðmundur Björn Þórsson mætti ekki.