106,8 milljónir úr Fiskeldissjóði
Fiskeldissjóður samþykkti styrk til tveggja verkefna í Vesturbyggð. Veittur var styrkur upp á 30 milljónir vegna skólalóðar á Bíldudal og 76,8 milljónir til malbiksframkvæmda.
Auk þessa var sótt um fyrir lagningu nýrrar vatnslagnar á Patreksfirði og niðurrifi á Straumnesi en þær umsóknir hlutu ekki brautargengi.
Samkvæmt skilyrðum Fiskeldissjóðs 2026 skal styrkfjárhæð vera að hámarki 50% af heildarkostnaði verkefnisins. Lágmarksumfang verkefnis skuli vera 40 milljónir og hámarksstyrkur til sveitarfélags 150 milljónir.