17. júní hátíðarhöld 2026
Vesturbyggð heldur þjóðhátíðardaginn 17. júní hátíðlegan á Bíldudal. Þá standa kvenfélagið Neisti og Ungmennafélag Barðstrendinga einnig að hátíðarhöldum í Birkimel á Barðaströnd.
Dagskrá á Bíldudal
- 11:00-13:00 — Opið hús í Gömlu smiðjunni, Smiðjustíg 2.
- 12:00-13:00 — Fjölskylduratleikur um miðbæ Bíldudals. Hvert lið sækir eyðublað á Vegamót, Tjarnarbraut 2, hvenær sem er eftir kl. 12:00. Ratleikurinn tekur í mesta lagi hálftíma. Þegar liðið hefur fyllt út eyðublaðið er því skilað á Skrímslasetrið hvenær sem er fyrir kl. 13:00. Sigurliðið hlýtur verðlaun. Börn um 6 ára og eldri gætu þurft á aðstoð eldri liðsmanna að halda, en eldri börn ættu að geta leyst hann á eigin spýtum.
- 11:00 — Messa í Bíldudalskirkju.
- 13:00 — Skrúðganga. fer frá planinu við Vegamót að Skrímslasetrinu, Strandgötu 7.
- 13:15 — Hátíðardagskrá á Skrímslasetrinu:
— Hátíðarræða. Nanna Sjöfn Pétursdóttir flytur.
— Ávarp fjallkonu.
— Bæjarlistamaður Vesturbyggðar 2026 tilkynntur.
— Tónlistaratriði.
— Sigurvegarar úr ratleik tilkynntir.
— Karamellukast úr kirkjuturninum.
— Leikir fyrir börnin og fjölskylduna.
Hátíðarhöld í Birkimel á Barðaströnd
Kvenfélagið Neistu og Ungmennafélag Barðstrendinga standa fyrir hátíðarhöldum í félagsheimilinu Birkimel. Aðgangur er 3.000 kr. fyrir 12 ára og eldri, ókeypis er fyrir 11 ára og yngri. Herlegheitin byrja kl. 14:30 og dagskráin inniheldur meðal annars:
- Kaffihlaðborð
- Samsöng
- Leiki
- Úrslit í ljóðasamkeppni kvenfélagsins