Hoppa yfir valmynd

17. júní í Birkimel

Kven­fé­lagið Neisti og Ungmenna­félag Barð­strend­inga standa fyrir hátíð­ar­höldum á þjóð­há­tíð­ar­daginn 17. júní í félags­heim­ilinu Birkimel á Barða­strönd.


Skrifað: 16. júní 2025

Dagskráin hefst kl. 14:30. Kvenfélagið sér um kökuhlaðborð og UMFB um leiki. Þar að auki verður fjallkona og sölubásar. Aðgangur er 2500 kr. fyrir fullorðna, 1000 kr. fyrir 7-12 ára og ókeypis fyrir 6 ára og yngri. Öll hjartanlega velkomin.